Morgunblaðið - 12.03.2020, Qupperneq 52
Jón Örn Guðbjartsson
Samskiptastjóri
Hvað eiga Þjóðleikhúsið og Hösk-
uldsskáli sameiginlegt? Við þessari
spurningu eru án vafa mörg ólík
svör en líklega er það besta tengt því
að bæði þessi hús fá drjúgan hluta af
persónuleika sínum í hrafntinnu.
Höskuldsskáli stendur í rösklega
þúsund metra hæð yfir sjávarmáli
við Hrafntinnusker sem er ekkert
venjulegt sker, heldur ríflega ellefu
hundruð metra hátt fjall á sjálfum
Laugaveginum, einni þekktustu
gönguleið á Íslandi.
Staðurinn sækir nafngiftina í
hrafntinnu sem er svart eða mjög
dökklitað gler sem myndast í eldgosi
þar sem líparít kemur gjarnan við
sögu. Hér á landi er mest af hrafn-
tinnu í Hrafntinnuskeri og Hrafn-
tinnuhrauni á Torfajökulssvæðinu.
Fyrr á öldum var hrafntinna notuð í
vopn en þekktasta notkun hennar á
Íslandi á síðari tímum er líklega í
mulningi utan á Þjóðleikhúsið sem
Guðjón Samúelsson teiknaði. Reynd-
ar hafði Guðjón dálæti á hrafntinnu
eins og margir Íslendingar og því er
hún líka einkennandi fyrir margt í
Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Þar
eru tröppur við innganginn úr hrafn-
tinnu og grænar hellur fyrir utan að-
aldyrnar eru úr blöndu af grænu líp-
aríti og hrafntinnu.
Höskuldsskáli í uppháhaldi
Höskuldsskáli er einn af fjölmörg-
um skálum Ferðafélagsins sem allir
geta notað óháð aðild að félaginu. Jó-
hann Kári Ívarsson, rekstrarstjóri
skála hjá Ferðafélaginu, þekkir vel
alla þessa skála en líklega engan bet-
ur en Höskuldsskála í Hrafntinnu-
skeri. Jóhann hóf störf hjá Ferða-
félaginu sem skálavörður árið 2012
og vann lengst af í Hrafntinnuskeri
áður en hann færði sig um set en
hann starfar nú á skrifstofu FÍ í
Reykjavík. Þar hefur hann umsjón
með skálavörðunum og vaktaplönum
þeirra ásamt dreifingu rekstrar- og
söluvarnings til skálanna. Það gerir
hann með góðu samstarfsfólki, þeim
Stefáni Jökli Jakobssyni, Lilju
Hrönn Guðmundsdóttur og Halldóri
Hafdal Halldórssyni eða Dóra í
Hornbjargsvita eins og sumir kalla
hann.
„Systir mín vann sem skálavörður
í fjöldamörg sumur í Langadal og
því fannst mér alveg rakið að fylgja í
hennar fótspor og sækja líka um
sem skálavörður,“ segir Jóhann
Kári. „Ég fékk starfið og það hent-
aði mér fullkomlega. Ég byrjaði tvö
sumur í Landmannalaugum, og svo
dró ég besta vin minn, Anders Rafn
Sigþórsson, með mér upp í Hrafn-
tinnusker þar sem við eyddum fimm
sumrum saman. Það er án efa uppá-
haldsskálinn minn, enda hafði ég oft
heimsótt skálann í æsku með pabba
sem var mikið tengdur Ferðafélag-
inu.“
Jóhann Kári segir að faðir sinn
hafi eiginlega verið sjálfboðaliði
hjá Ferðafélaginu með Höskulds-
skála í Hrafntinnuskeri í fóstri
ásamt góðum vinum sínum í meira
en tvo áratugi. Að hans dómi er
Höskuldsskáli í hálfgerðum sér-
flokki þegar horft er til sæluhúsa á
Laugaveginum. Það liggi enginn
almennilegur vegur að honum, ein-
göngu illfær slóði sem sé undir
snjó langt fram á sumar. „Yfirleitt
eru engir þarna á ferðinni nema
fótgangandi og stundum trússarar
á öflugum jeppum.“
Mikilvægir skálar
á merkilegri leið
Yfir sumarið eru skálaverðir í nær
öllum stærri skálum Ferðafélagsins
sem standa við fjölfarnar gönguleið-
ir, eins og til dæmis á Laugaveg-
inum. En hver er þessi vinsæli
Laugavegur sem á sér alnafna í mið-
borg Reykjavík sem hefur í hartnær
öld verið fjölfarnasta gatan í þétt-
býli?
Jú, Laugavegurinn er gönguleiðin
á milli Landmannalauga og Þórs-
merkur og fagnar því að vera á lista
yfir fegurstu og bestu gönguleiðir í
heimi. Landslagið er með ólíkindum
á þessari leið, kjarrlendi og svartir
sandar, litskrúðugt líparít, hrafn-
tinnuhraun og sker, hvæsandi hver-
ir, lækir, vötn og tindar. Þótt náttúr-
an leiki auðvitað aðalhlutverkið í
vinsældum Laugavegarins má líka
þakka þær markvissri uppbyggingu
Ferðafélagsins allt frá árinu 1975.
Skálar Ferðafélagsins á Laugaveg-
inum eru nú sjö talsins: Hrafntinnu-
sker auðvitað, Landmannalaugar,
Álftavatn, Botnar á Emstrum,
Langidalur, Þórsmörk og Hvanngil.
Þessir skálar tryggja afdrep, öryggi
og aðstöðu á veginum.
Svefnplássin í öllum þessum skál-
um, og í öðrum vinsælum skálum,
eru umsetin svo mælt er með því að
fólk panti gistingu og tryggi sér
pláss með góðum fyrirvara. Þeir sem
eru með staðfesta pöntun ganga allt-
af fyrir og ef laust er í skálunum eru
félagsmenn FÍ næstir í röðinni. Í
stærstu skálunum er bæði rennandi
vatn og vatnssalerni en í sumum
þeim minni þarf að sækja vatn í ná-
læga læki og það þarf enginn að ör-
vænta þótt notast þurfi við kamar á
nokkrum stöðum. Það á einmitt við
um Hrafntinnusker. Kamaraðstaða
með vöskum er sambyggð húsinu en
þó er ekki innangengt úr skálanum á
kamarinn sem flestum finnst nú
bara ágætt. Stór og rúmgóður tré-
pallur liggur allt í kringum húsið og
tengir skálann og kamarinn.
Miklar umbætur
í Hrafntinnuskeri
„Þrátt fyrir harkalegar ytri að-
stæður í Hrafntinnuskeri er skálinn
þar í frábæru standi, þökk sé góðri
vinnu sjálfboðaliða sem unnið hafa
þrekvirki undanfarin tuttugu ár í
vinnuferðum,“ segir Jóhann Kári.
„Náttúrulegur hver er steinsnar
frá skálanum og byggðu fóstrar
skálans hitaveitu sem hitar upp skál-
ann með náttúrulegri hringrás. Svo
eru sólarsellur sem sjá skálanum
fyrir rafmagni, svo skálinn er mjög
umhverfisvænn miðað við marga
aðra skála á hálendinu.“
Jóhann Kári segir að skálinn hafi
tekið miklum breytingum á þeim
fimm árum sem þeir Anders dvöldu
þar við skálavörslu. „Fyrsta sumarið
var hvorki net- né símasamband,
hvað þá ísskápur eða sturta. Matur-
inn var geymdur grafinn úti í snjó-
skafli. Ekki var skálavarðarhús
heldur lítið herbergi upp á lofti sem
rúmaði tvö rúm með herkjum. Á
fjögurra daga fresti hljóp annar okk-
ar niður í Landmannalaugar eða á
Álftavatn til að komast í sturtu. Svo
var gengið til baka ofurhægt til að
svitna nú ekki of mikið.“
Jóhann Kári segir að núna sé
komið síma- og netsamband í Hrafn-
Fegurð
á fjöllum
Hvað eiga Þjóðleikhúsið og Höskuldsskáli sameigin-
legt? Við þessari spurningu eru án vafa mörg ólík svör
en líklega er það besta tengt því að bæði þessi hús fá
drjúgan hluta af persónuleika sínum í hrafntinnu.
Ganga Jóhann Kári í drauma-
landinu á rölti úr Hrafntinnu-
skeri niður í Álftavatn.
Undur Það þarf ekki að ganga langt frá
Hrafntinnuskeri til að sjá undur á al-
heimsmælikvarða. Þetta er á leiðinni í
Jökulgil. Fjallið í fjarska er Hábarmur
Snjór Hrafntinnusker í
upphafi tímabils árið 2015,
en það sumar var óvenju-
snjóþungt að fjallabaki.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020
A U G N V Í T A M Í N
Fæst í öllum helstu apótekum
www.provision.is
Viteyes augnvítamínin er nauðsynleg
augum sérstaklega þeim sem glíma
við augnþurrk eða aldursbundina
augnbotnahrörnun.
Ferðalög á