Morgunblaðið - 12.03.2020, Side 56
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 5175000 | stalogstansar.is
Gott úrval af reimum í
snjósleða, bíla og fjórhjól.
reimar
í snjósleða, bíla og fjórhjól
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020
Þurfum ekki að geyma allt
föndur sem börnin gera
Skipuleggjandi
Virpi Jokinen býður
upp á skipulagsþjónustu
fyrir Íslendinga sem
vilja koma skipulagi
á heimilið.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Virpi Jokinen, fyrsti vottaði skipuleggjandinn (e. Pro-
fessional Organizer) hér á landi, kom í viðtal í Síð-
degisþáttinn til Sigga Gunnars og Loga Bergmanns í
vikunni og fræddi hlustendur um leyndarmál skipu-
lagningar. Virpi, sem er upprunalega finnsk en hefur
búið hér á landi í um aldarfjórðung, stofnaði fyrir-
tækið Á réttri hillu og tekur að sér að aðstoða fólk við að
koma skipulagi á heimili sitt.
Hefur Virpi meðal annars verið líkt við japanska
skipuleggjandann Marie Kondo sem hefur slegið í
gegn víða um heim með svipaðri aðstoð.
Sagði hún aðspurð að fyrsta reglan til að byrja
að skipuleggja sig sig væri að fara rólega af
stað.
„Ætla sér ekki of mikið og skammta sér
stuttan tíma, klukkustund eða tvær eða
þrjár í einu, ekki meira,“ sagði Virpi.
Sagði hún að gott væri að byrja á einum
afmörkuðum stað í einu eins og einum
kassa, skúffu, skáp eða hillu.
„Það fallega er að þú mátt
geyma það sem þú vilt geyma,“
Virpi Jokinen, fyrsti vottaði skipuleggj-
andinn hér á landi, fræddi hlustendur
K100 um leyndardóma skipulagningar
í Síðdegisþættinum í vikunni.
sagði hún og bætti við að gott væri að hafa ákveðinn
kassa fyrir minningar.
„Málið með þessa hluti sem við eigum er að þetta
hætta að vera bara hlutir þegar þeir koma til okkar. Við
förum að tengja fólk, atburði, tilfinningar og minningar
við allt þetta sem við eigum. Þá fyrst verður þetta svo
erfitt. Um leið og þetta eru minningar þá förum við að
halda í hluti,“ sagði Virpi.
Spurð út í það hvernig eigi að fara í að flokka tilfinn-
ingalega hluti eins og föndur frá börnum skipti
máli hversu gömul sem börnin eru.
„Þegar börnin eru lítil verðum við að
hugsa um hvaða skilaboð við erum að
senda til barnanna. Þau eru að koma
heim með eitthvað, rosalega stolt og
ánægð, þá að sjálfsögðu geymum við það
og notum þetta í nokkur ár, höfum þetta
frammi og svona. Við megum ekki henda
strax því sem börnin okkar koma með. En
það það líða, segjum tíu ár, þá er spurninin
hvort þetta skipti börnin lengur einhverju
máli. Við eigum ekki að vera að geyma
allt föndur bara af því að barnið okk-
ar bjó það til,“ sagði hún.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
„Maður tekur ekki svona stórar
ákvarðanir í einhverju „flippi“.
Þetta er alveg gert að vel athuguðu
máli,“
sagði Páll Óskar Hjálmtýsson í
samtali við morgunþáttinn Ísland
vaknar en hann greindi frá ákvörð-
un sinni í vikunni um að fresta 50
ára afmælistónleikum sínum sem
fara áttu fram í Háskólabíói um
helgina vegna kórónuveirunnar.
Uppselt var á alla þrenna tón-
leikana.
„Þetta er að fara mjög vel. Í
fyrsta lagi vildi ég ekki stefna mín-
um áhorfendum inn í einhverjar að-
stæður sem gætu reynst þeim eða
þeirra nánustu skaðlegar,“ sagði
hann.
Enginn fór í fýlu
„Ég tók eftir því að enginn fór í
einhverja fýlu. Hver einasta at-
hugasemd var bara: „Thumbs up“,
„Skynsamleg ákvörðun“. „Takk,
Palli“.“
Greindi Páll Óskar frá því í þætt-
inum að þegar hefðu verið fundnar
nýjar dagsetningar fyrir tónleikana
sem verði haldnir í Háskólabíói 10.,
11. og 12. september.
Furðulegt að vinna í óvissu
„Ég held að þetta „show“ verði
bara miklu flottara og þetta var flott
fyrir,“ sagði Páll.
„Það hefur verið svolítið furðulegt
að búa til svona risa „show“ með
þessa óvissu yfir hausamótunum á
manni. Einhver partur af mér vill
ekki vinna svona vinnu undir þess-
um kringumstæðum. En um leið og
svarið er já, já, já alls staðar þá er
miklu betra og fallegra að leggja af
stað í svona gleði-„show“.“
Munu ekki hafa undan
„Ég get lofað því að næsti mán-
uður og jafnvel næstu tveir mánuðir
verða svolítið skrýtnir fyrir mjög
marga. Einkum og sér í lagi verk-
taka eins og mig,“ sagði hann.
„Margir þurfa að taka mjög margt á
kassann og ég er einn af þeim. Mig
grunar að allar þessar árshátíðir
sem er verið að afbóka núna, og ég
hef ekki farið varhluta af því, allar
þessar árshátíðir, einkapartí og tón-
leikar, þetta mun allt færast yfir í
september október,“ sagði hann.
„Það verður brjálað „action“ í
september og október, og það verð-
ur ekki hægt að hafa undan,“ sagði
Páll. Kveðst hann ætla að haga sér
eins og hann sé í launalausu leyfi á
næstunni á meðan óvissan gengur
yfir.
Fagnar með sínum nánustu
Afmælisdagur Páls Óskars er á
mánudaginn kemur, 16. mars, og
ætlar hann að fagna deginum með
sínum nánustu hvort sem sett verð-
ur á samkomubann eða ekki.
„Ég ætlaði að gera þetta á
ákveðnum veitingastað hér í borg
sem heitir Apótek. Vera bara með
nánustu fjölskyldu og vinum. En
segjum svo að það skelli á
samkomubann þá bara bíð ég þessu
fólki heim til mín og við eldum eitt-
hvað fallegt. Eða ég panta bara
pítsu,“ sagði Páll kíminn í bragði.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Eftirminnilegt Páll Óskar er þekktur fyrir eftirminnilega framkomu á tón-
leikum og ætlar ekki að gefa neitt eftir á 50 ára afmælistónleikum sínum.
Verður miklu
flottara „show“
Páll Óskar fagnar 50 ára afmæli sínu á mánudaginn
kemur en tók ákvörðun í vikunni um að fresta
stórafmælistónleikum sínum, sem halda átti í
Háskólabíói um helgina, vegna kórónuveirunnar.