Morgunblaðið - 12.03.2020, Qupperneq 58
58 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020
70 ára Sigrún er fædd
og uppalin á Ísafirði en
býr nú í Hafnarfirði.
Hún var skurðhjúkr-
unarfræðingur á St.
Jósefsspítala en lengst
af á Landspítalanum.
Börn: Halldór, f. 1973,
Hildigunnur, f. 1977, Björn Viðar, f. 1986,
og Margrét, f. 1991. Barnabörnin eru orð-
in 7.
Foreldrar: Halldór Pétur Kristjánsson, f.
1914, d. 1997, fiskmatsmaður, og Hildi-
gunnur Jóakimsdóttir, f. 1912, d. 1982,
húsfreyja. Þau voru búsett á Ísafirði.
Sigrún
Halldórsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert ekki viss um hvað þú vilt
gera í rómantískum málum. Eitthvað bær-
ist undir yfirborðinu sem þú áttar þig ekki
fyllilega á.
20. apríl - 20. maí
Naut Vani getur verið þægilegur. Vertu
ekki ósanngjarn/gjörn. Mundu að ekki er
allt gull sem glóir og dreifðu áhættunni
sem mest.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur safnað að þér upplýs-
ingum og getur nú farið að vinna úr þeim.
Mundu að ekki eru allir viðhlæjendur vinir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Annaðhvort þú eða vinur þinn
verður gagntekinn af ákveðinni hugmynd.
Líttu á námskeið sem þú átt að sækja sem
tækifæri til að læra eitthvað nýtt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Dagurinn í dag hentar vel fyrir
gönguferð eða sundsprett. Hafðu þína
hluti á hreinu og láttu aðra vita um af-
stöðu þína.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú er rétti tíminn til að hlúa að nán-
asta fólkinu þínu. Sumarið verður spenn-
andi og líklega muntu fara til útlanda.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú finnur hjá þér sterka hvöt til þess
að komast eitthvað í burtu um tíma. Hugs-
un þín er skýr og þú ert tilbúin/n til að
sökkva þér niður í hlutina.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú gefur höggstað á sér en
kemur áhrifamikilli manneskju á kné á
sama tíma. Gerðu eitthvað til að gera
heimili þitt meira spennandi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú munt líklega þurfa að
ganga frá ákveðnum málum við yfirvöld í
dag. Vertu þolinmóð/ur og leyfðu hlut-
unum að hafa sinn gang.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur sjálfsagann sem allir
aðrir vilja hafa – en ekki gleyma að vera
sveigjanleg/ur líka. Hertu upp hugann og
hringdu í þann sem þig hefur lengi langað
til að heyra í.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Fjarlægðin sem vanalega
myndar bilið milli fólks mun minnka. Flýttu
þér samt hægt og gefðu öðrum mögu-
leikum gaum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú er tími til þess að endurmeta
sjálfa/n sig. Það að sætta sig við orðinn
hlut er merki um þroska.
verjum drjúgum tíma á árbakk-
anum á sumrin með góðum vinum
og fjölskyldunni. Við eigum okkur
athvarf á Velli á Rangárvöllum hvar
Njálssaga hefst og var bústaður
Marðar gígju. Þar erum við nánast á
bökkum Eystri-Rangár þar sem við
höfum veitt mikið til margra ára.
Það eru auðvitað forréttindi að fá
notið íslenskrar náttúru með þeim
hætti og fyrir það er ég þakklát.
Þakklátust er ég þó auðvitað fyrir
matarklúbbur. Við eldum saman
mat úr ólíkum áttum. Höldum
þemakvöld með allri fjölskyldunni
og komum þá saman og tökum dag-
inn í að elda, indverskan, ítalskan,
líbanskan, spænskan eða hvers kon-
ar áhugaverðan framandi mat.“
Fjölskyldan hefur alltaf ferðast
mikið saman. „Eftir því sem hóp-
urinn stækkar er erfiðara að ná hon-
um öllum en það tekst merkilega
oft. Við erum mikið laxveiðifólk og
A
nna Júlíusdóttir er fædd
12. mars 1960 í Reykja-
vík og bjó fyrst í
Skaftahlíð og síðan í
Bólstaðarhlíð en flutt-
ist 12 ára í Fossvoginn, í Haðaland
23. Hún var í sveit á sumrin á Víði-
völlum í Skagafirði hjá móðursystur
sinni, Unni Gröndal, og manni henn-
ar, Gísla Jónssyni. Einnig var hún í
sveit á Furubrekku í Staðarsveit á
Snæfellsnesi hjá föðursystur sinni,
Ásgerði Halldórsdóttur, og hennar
manni, Jóhannesi Guðjónssyni.
Anna stundaði nám í Ísaksskóla,
Æfingadeild kennaraháskólans,
Kvennaskólanum, Menntaskólanum
við Hamrahlíð, þaðan sem hún varð
stúdent 1980 og síðan Háskóla Ís-
lands þaðan sem hún lauk BA-námi í
stjórnmálafræði.
Lengst af hefur Anna unnið
heima við uppeldi sex barna sinna
og á skrifstofu við fyrirtæki föður
síns, Búvélar.
Helstu áhugamál Önnu eru ferða-
lög, prjónaskapur og hönnum á
barnafötum, laxveiði og matargerð.
„Fjölskyldan er okkur allt,“ segir
Anna. „Það hefur verið mikilvægt
fyrir mig að hlúa að henni, börnum
og nú barnabörnum. Við erum mjög
samheldin fjölskylda sem hittist oft
og þá er gjarnan borðað saman. Má
segja að fjölskyldan sé mjög virkur
hið mikla barnalán sem við höfum
notið.
Þar sem ég er mikil prjónakona
hef ég hannað og prjónað mikinn
fjölda af flíkum og teppum fyrir
barnabörnin sem mér finnst gaman
að gefa og hef ég aldrei undan pönt-
unum á nýjum peysum frá þeim.
Við eigum stóran vinahóp sem er
dýrmætt og höfum við nú enn betri
tíma að sinna en áður þegar allur
tíminn fór í að hugsa um börnin.“
Fjölskylda
Eiginmaður Önnu er Gunnlaugur
Sævar Gunnlaugsson f. 29.12. 1958,
lögfræðingur, stjórnarformaður í
Lýsi, Ísfélagi Vestmannaeyja og
inn- og útflutningsfyrirtækinu
ÍSAM. Þau eru búsett í Garðabæ.
Foreldrar Gunnlaugs: Hjónin Erla
Levy, f. 4.9. 1937, d. 31.12. 2019,
verslunarkona í Reykjavík, og
Gunnlaugur Guðmundsson f. 8.2.
1931, fyrrverandi kaupmaður í
Reykjavík. Hann er búsettur í
Reykjavík.
Börn Önnu og Gunnlaugs eru 1)
Þórunn Gunnlaugsdóttir, f. 18.9.
1981, lögfræðingur, gift Friðbirni
Orra Ketilssyni, f. 13.10. 1983, við-
skiptafræðingi og framkvæmda-
stjóra. Börn þeirra eru Friðbjörn
Orri, f. 16.9. 2009, Anna Margrét, f.
10.4. 2011, og Þórey, f. 2.6. 2016; 2)
Anna Júlíusdóttir húsmóðir – 60 ára
Samheldin og stór fjölskylda
Með strákunum sínum Pétur, Gunnlaugur yngri, Anna og Gunnlaugur.
Fjölskyldan Anna, Gunnlaugur og börn, makar þeirra og börn, og móðir
Önnu, Þórunn Gröndal, á Tenerife í fyrra. Á myndina vantar Andreu Björk.
Með stelpunum sínum Anna Lára, Erla, Edda, Þórunn og Anna.
Í dag eiga hjónin Elín Krist-
mundsdóttir og Oddleifur Þor-
steinsson 60 ára brúðkaups-
afmæli. Þau gengu í hjónaband í
Hrunakirkju 12. mars 1960. Odd-
leifur og Elín hafa búið í Hauk-
holtum í Hrunamannahreppi
allan sinn búskap.
Árnað heilla
Demantsbrúðkaup
40 ára Auðunn er
Akureyringur en býr í
Garðabæ. Hann er
hótelstjóri.
Maki: Elísabet Kvar-
an, f. 1980, vinnur á
veitingahúsinu Hjá
Höllu.
Börn: Anna Þrúður, f. 2003, Antonína
Björk, f. 2007, og Viðar Darri, f. 2012.
Foreldrar: Bergsveinn Auðunsson, f.
1949, d. 1998, skólastjóri, lengst af í
Stóru-Vogaskóla í Vogum, og Sigurbjörg
Ósmann Jónsdóttir, f. 1949, d. 2014,
kennari, lengst af á Akureyri.
Auðunn
Bergsveinsson
Til hamingju með daginn