Rit Búvísindadeildar - 01.06.1993, Side 7

Rit Búvísindadeildar - 01.06.1993, Side 7
FORMÁLSORÐ Bændaskólinn á Hvanneyri sendir nú frá sér tilraunaskýrslu fyrir árið 1992. í riti þessu er að finna umfjöllun um þann þátt í starfsemi skólans sem tengist rannsóknum og tilraunum. Þrátt fyrir takmörkuð fjánáð er leitast við að hafa starfsemina all fjölbreytta eins og fram kemur í riti þessu. Fjármagn til rannsókna og tilraunastarfsemi skólans er ýmist af fjárveitingum á fjárlögum eða fjármagn sem veitt er sem styrkir frá ýmsum aðilum. Á árinu 1992 fengust styrkir til tilraunaverkefna frá Vísindasjóði, Rannsóknarráði, Framleiðnisjóði landbúnaðarins og fyrirtækjum. Þá hafa Landssambönd kúabænda og sauðfjárbænda veitt skólanum styrki úr þróunarsjóðum greinanna. Þau verkefni sem um getur í riti þessu eru ýmist unnin af starfsmönnum skólans eingöngu eða í samvinnu við starfsmenn annara stofnanna landbúnaðarins. I mörgum tilvikum er hér um áratuga samvinnu að ræða. Með þessum samstarfsverkefnum aukum við bolmagn okkar í rannsókna og tilraunastarfsemi og ber því að efla hana eins og kostur er. Rannsókna og tilraunastarfsemi skólans nemur um 10 -15% af heildarumsvifum hans. Á undanfömum árum hefur rannsóknarstarfsemi skólans verið að eflast en áfram verður að vinna að því að tryggja grunnfjármögnun hennar svo unnt sé að nýta til fuíls þá aðstöðu og mannafla sem skólinn hefur til umráða á sviði rannsókna og tilrauna. Yfirlitsskýrsla þessi um rannsókna og tilraunastarfsemi ársins 1992 er samvinnuverkefni margra aðila. Runólfur Sigursveinsson hefur safnað gögnunum saman og búið þau til birtingar. Öllum aðstandendum skýrslunnar flyt ég þakkir fyrir vel unnin störf að vinnslu hennar. Það er von okkar að hún megi verða einhverjum til gagns og fróðleiks. Hvanneyri í maí 1993 Magnús B. Jónsson 3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102

x

Rit Búvísindadeildar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.