Rit Búvísindadeildar - 01.06.1993, Side 13
LOÐDÝRATILRAUNIR 1992
Líneik Anna Sœvarsdóttir
Á árinu 1992 voru loðdýratilraunir á Hvanneyri undir umsjón Bjarna
Stefánssonar. Hann hætti störfum á árinu og Líneik Anna Sævarsdóttir mun
vinna úr þeim gögnum sem safnað var.
Samanburður á þurrfóðri og votfóðri
Gerður var samanburður á fóðrun minka og refa á mismunandi fóðri. Borið var
saman þurrfóður frá Fóðurblöndunni h/f í Reykjavík, þurrfóður frá Laxá h/f á
Akureyri og votfóður. Samstarf um tilraunina höfðu Bændaskólinn á
Hvanneyri, Laxá h/f og Fóðurblandan h/f.
Niðurstöður hafa ekki enn verið teknar saman nema að hluta og ekki hefur
verið unnið úr gögnunum tölfræðilega.
Tilraunir með ref og mink voru alveg aðskildar en vegna þess hvað uppsetning
og framkvæmd var lík er þeim lýst sameiginlega hér.
Uppsetning
Minkar: í upphafi tihaunar var læðum skipt í þrjá hópa, með jafna
aldursdreifingu og fékk hver hópur eina gerð af fóðri. í tilrauninni voru
aðallega svartar læður en einnig nokkrar pastel. f hópunum voru 56, 57 og 58
læður, þar af um 10 pastel læður í hverjum hóp.
Við fráfærur voru 100 hvolpar valdir til þess að halda áfram í hverjum hóp,
50 íæður og 50 högnar. Mikil afföll urðu á hvolpum í öllum hópum. Hvolpar
héldu áfram í sömu fóðurhópum og fyrir fráfærur nema að nokkrir hvolpar úr
votfóðurhóp fóru í Fóðurblönduhóp.
Refir: í upphafi tilraunar var læðum skipt í þrjá fóðrunarhópa, 19 læður í
hverjum hóp.
Við fráfærur, voru 50 hvolpar úr hverjum hóp látnir halda áfram í sama
fóðurhóp og áður, kynskipting var jöfn og reynt var að hafa aldursdreifingu
jafna.
Læðumar voru í búrum sem standa í þremur röðum, læður í sama fóðurhóp
dreifðust á allar raðimar þó þannig að dýr í sama hóp vom hlið við hlið. Eftir
fráfærur vom tveir hvolpai' saman í búri og allir hvolpar í sama fóðurhóp voru
í sömu búraröð.
7