Rit Búvísindadeildar - 01.06.1993, Page 25
Anna Guðrún Þórhallsdóttir
Ríkharð Brynjólfsson
B. Hrossabeit í skógræktargirðingu
Áhugi hefur verið á að kanna hvort beit hrossa innan skógræktargirðinga geti verið
aðferð til að halda niðri samkeppnisgróðri og koma í veg fyrir mikla sinumyndun.
Hrossabeit og skógrækt fara saman svo framarlega sem hrossin valda ekki tjóni á
trjáplöntunum. Athugulir hafa bent á að hross virðast sneiða hjá trjágróðri í beit,
og bíti jafnvel gras alveg upp að mjög litlum tijáplöntum. Haustið 1991 fór fram
athugun á áhrifum hrossabeitar á trjáplöntur í skógræktargirðingu nálægt Hvanneyri.
Athugunin var endurtekin haustið 1992. Markmið athugunarinnar var að kanna hvort
geti farið saman, hrossabeit og skógrækt, á sama landinu.
Framkvæmd
Athugunin fór fram í Stallaskógi, skógræktargirðingu Guðmundar Þorsteinssonar, sem
staðsett er inn með norðurhlíðum Brekkufjalls. Girðingin er 30 ha að stærð og með
trjáplöntum af fjölmörgum stærðum og gerðum. Stærstu trén eru rúmir 3 m á hæð.
Ellefu hross voru sett inn í skógræktargirðinguna 27. september og voni þar til 2
nóvember eða alls í 473 beitardaga. Þann 8. október voru lagðar út 7 línur víðs
vegar um girðinguna og ástand og útlit trjáplantna við línuna skráð. Engin af
skráðum plöntum báru þá merki beitar. Sömu plöntur voru síðan athugaðar þann 21
apríl 1993 og ástand og hugsanlegar beitarskemmdir skráðar. Skemmdir voru
flokkaðar í fjóra flokka:
0. Engin skemmd.
1. Lítil skemmd, t.d. ein grein brotin. Skaðar ekki lífslíkur
plöntunnar.
2. Nokkur skemmd, fleiri greinar brotnar, toppstífð. Skaðar
lífslíkur plöntunnar.
3. Mikil skemmd, litlar lífslíkur.
Alls voru athugaðar 225
plöntur af Birki (Betula
pubescens), Furu (Pinus sp.),
Greni (Picea sp.), Víði (Salix
sp.) og Ösp (Populus sp.).
Fjöldi hverrar tegundar er í
töflu 1.
Tafla 2. Fjöldi hverrar tegundar sem var athugaöur.
Birki (Betula pubescens) 119
Fura (Pinus sp.) 31
Greni (Picea sp.) 63
Víðir (Salix sp.) 8
Ösp (Populus sp.) 4
Hæð plantnanna sem var
athugaður var á bilinu 10 sm til 3 metrar. Um helmingur plantnanna var um 1 metri
á hæð, en um fjórðungur undir 25 sm.
18