Rit Búvísindadeildar - 01.06.1993, Page 28
burðartíma. Heyið í báðum liðum reyndist dável verkað. Öllu meira bar á myglu í
forþurrkaða heyinu, enda hafði það lent í nokkrum hrakningi á velli (sjá bls. 25 í
Tilr.sk. 1991). Kýmar sem forþurrkaða heyið fengu átu að jafnaði hálfu kílói meira af
votheysþurrefninu og svöruðu í nyt samkvæmt þvf. Um marktækan mun virtist þó vart vera
að ræða. Uppgjöri tilraunarinnar er ekki lokið.
*
Ahrif heyskurðar og hjálparefna á verkun heys
Fyrir skipulagi þessarar tilraunar er gerð grein á bls. 24 í Tilr.sk. 1991. f tilrauninni voru
rannsökuð áhrif heyskurðar, forþurrkunar og notkunar hjálparefna á verkun og lystugleika
heys sem verkað var f rúlluböggum. Úr tilrauninni hefur verið unnið. Helstu niðurstöður
hennar vom kynntar á Ráðunautafundi 1993, sjá ritaskrá. Þær er m.a. þessar:
a) Skurdur (smækkurt) heysins við bindingu bætti hvorki verkun heysins né
lystugleika þess, metinn með gemlingum;
b) Forþurrkun heysins að 56-58% þurreftii bœtti fóðrunarvirði þess til mutia;
c) Bætandi áhrifa maurasýru gœtti einkum íferskufóðri (tneð 28-29% þurrefni)
en Kofa-Pluss hafði meiri áhrifíforþurrkaða fóðrinufrneð 56-58%
þurrefni).
Tilraunin var gerð með snemmslegið hey og ekki gróft(sjá b-lið á bls. 23 í Tilr.sk. 1991).
Skurðarhluti hennar var endurtekinn með snarrótarpunti. Ekki reyndist skurðurinn hafa
marktæk áhrif á verkun heysins þar heldur.
Súrsnn Mpínnblandaðs heys og fóðrnnarvirði þess
í samstarfi við Landgræðslu ríkisins í Gunnansholti var gerð athugun á súrverkun heys sem
að helmingi var lúpína og að helmingi túngrös (mest vallarfoxgras). Fóðrið var slegið á
tveimur þroskastigum (lS.júlf og 9. ágúst). Það var verkað í rúlluböggum. Þurrefni þess var
um 30-33%. Fóðrið verkaðist ágætlega. Fullverkað var fóðrið borið fyrir ær og einnig
geldneyti. Reyndist það mjög ólystugt, og óljósar bendingar komu fram um skaðleg áhrif
fóðursins á heilsufar ánna. Snemmslægjan reyndist heldur lystugri en síðslægjan.
Bráðabirgðaskýrsla um niðurstöðumar liggur fyrir.
Verkun háar og rýgresis handa mjólkurkám
Fóðranarþætti þessarar athugunar lauk í janúar 1992. Fullnaðaruppgjöri hennar er ekki
tokið. Bráðabirgðauppgjör sýnir m.a. þetta:
21