Rit Búvísindadeildar - 01.06.1993, Síða 31
Heilt og skorið rúlluhey handa sauðfé
Þar eð á markað eru komnar rúllubindivéiar sem skera heyið um leið og þær vöndla því f
bagga þótti rétt að gera athuganir á verkun og notagildi heysins samanborið við óskorið
rúlluhey af sama uppruna. Þegar hefur verið sagt frá einni tilraun þessa efnis en sumarið
1992 var hafin önnur tilraun - gerð f stærri mælikvarða. Fylgst er með verkun heysins frá
slætti til gjafa. Bomir eru saman tveir liðir:
a) Forþurrkað hey, óskorið, verkað f níllum,
b) Forþurrkað heys, skorið, verkað í níllum.
Heyið er af sömu spildum sem skipt var til helminga er að hirðingu kom, þannig að úr öðrum
hvorum garði var heyið skorið við bindingu en hinum látið óskorið. Notuð var bindivél af
gerðinni Welger RP 200 (sjá búvélaprófun nr. 627 1992). Baggar vom að venju sveipaðir
sexföldum plasthjúp og geymdir f óyfirbreiddri stæðu utan dyra.
f tilrauninni er mæld og metin aflþörf við bindingu heysins, rúmþyngd bagga, verkun
heysins, heyát, þunga- og holdabreytingar, heyslæðingur og hvemig heyið er í meðförum.
Síðan verða afurðir fjánns bornar saman að venju. Gert er ráð fyrir að tilraun þessi verði
endurtekin að ári (1993-94). Nokkrar einkennistölur úr tilrauninni koma fram í næstu töflu.
Uppskerutölur merkja töðufall við slátt. Þurrefni heys við hirðingu var um 60% á öllum
þremur spildunum. Þéttleiki heysins í böggunum er talinn í kg þurrefnis í bagga, en stærð
þeirra er 1,6 rúmmetrar. Reyndist þéttleikinn heldur meiri í skoma heyinu.
l.tafla. Yfxrlit yfir uppskeru, fóðurgildi heys og þéttleika bagga
f tilraun með verkun óskorins og skorins heys í rúllum.
Spilda nr. Sl.tími dags. Uppskera kg þe./ha Fóður FE/ha Hirt eftir klst Þéttleiki bagga óskorið skorið Fóðurg. v.sl./v.hirð.
Sk.l 9.júlí 3675 2756 79 277 285 0,75/0,72
Sk.2 9.júlí 4116 3005 77 275 2.85 0,73/0,71
B2 20.júlí 4030 2900 29 316 322 0,72/0,64
í nóvember 1992 hófst mælifóðrun 2 x 60 áa á heyinu sem standa mun út innistöðu vetrarins.
Hvorum hópi var skipt fram yfir fengitíð þannig að helmingur hans fékk lítið eitt af
fískimjöli, en hinn aðeins heyið.
Undir þessum lið viðfangsefna hófst einnig athugun á verkun og nýtingu heys sem er tætt
fyrir þjöppun í rúllubagga. Athugunin er gerð í tengslum við prófun bindivélarinnar hjá
Bútæknideild Rala sem hófst sumarið 1992, en vélin er af gerðinni Orkel GP 1202.
24