Rit Búvísindadeildar - 01.06.1993, Side 32
Súgþurrkuð taða og rúlluhey handa mjólkurkúm
Með tilraun þessari á að bera saman verkun og notagildi heys handa mjólkurkúm sem annars
vegar er verkað í rúlluböggum eftir hæfilega forþurrkun en hins vegar súgþurrkað í hlöðu.
Fóðurs var aflað á tveimur túnspildum í góðri rækt sem að mestu voru sprottnar vallarfoxgrasi
og snarrótarpunti (svipuðum hlutföllum ( um 40% af hvorri grastegund). Spildumar voru
slegnar lO.júlí 1992, tæpri viku fyrirskrið vallarfoxgrassins. Væta tafði þurrkun heysins,
svo ekki var unnt að vöndla rúlluheyið fyrr en 12.júlí, en þurrheyshlutinn varð hirðandi
14.júlf. Rúllum hjúpuðum sexföldu plasti var komið fyrir í óyfirbreiddri útistæðu, en
þurrheyið hirt neðst í hlöðu með góðum búnaði til súgþurrkunar.
2.tafla. Yílrlityfiruppskeruog fóðurgildi heysítilraun
með samanburð á verkun heys f rúllum og súgþurrkun.
Rúllur Súgþurrkað hey
Uppskera við slátt, kg þe./ha 5250
Fóðurgildi við slátt, FE/kg þe. 0,77
Fóður við slátt, FE/ha 4038
Klst á velli 50 100
Þurrefni heys við hirðingu,% 49,8 69,8
Fóðurgildi við hirðingu, FE/kg þe. 0,72 0,74
Heyið verður boðið mjólkurkúm veturinn 1993 og viðbrögð þeirra mæld, svo sem heyát,
nyt, þungabreytingar og fleira.
Áhrif forþurrkunar, heyskurðar og Kofa-Safa á
verkun votheys
Tilraun þessi er gerð í samvinnu við fyrirtækið Vélar og þjónustu hf í Reykjavík, sem tekur
þátt í kostnaði við þann hluta hennar, er snýr að notkun hjálparefnisins Kofa-Safa (Kofa-
Sil). Tilraunin er skipulögð f eftirfarandi liðum:
I. Hey verkað án hjálparefnis;
II. Hey verkað með Kofa-Safa (2,5 1/tonn)
A. Ferskt hey - af ljá;
B. Forþurrkað hey;
1. Óskorið hey;
2. Skorið hey.
25