Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1970, Síða 33
VATNSLEYSANLEGAR SYKRUR í GRASI 31
PROTEIN
í ÞURREFNI
----------------VEL VERKAÐ Chlorophyll
----------------VEL VERKA-Ð, DÁLÍTI-Ð ORNAÐ
----------------SÆMILEGA VERKAO
---------------- ILLA VERKAÐ
Mynd 9. Próteín og blaðgræna í heysýnum.
Fig. 9. Protein a,nd chlorophyll in haysamples.
Sykrusöfnunin eykst einnig með fosfórgjöf,
en aðeins þar til miðlungsuppskeru er náð.
Lélegri heyverkun fylgir lítið sykrumagn
í þurrefni, einnig er illa verkað hey með
minni blaðgrænu. Próteínmagn er hins veg-
ar lítið eitt meira í illa verkuðu heyi. Raun-
veruleg aukning í próteínmagni verður að
sjálfsögðu ekki, heldur er um breytt hlut-
fall milli efnaflokka að ræða.
Rannsóknin bendir til þess, að dæma
megi um heyverkun með ákvörðun á vatns-
leysanlegum sykrum og blaðgrænu á ein-
faldan hátt, þar sem möguleikar eru á að
gera báðar efnagreiningarnar að hraðvirk-
um aðferðum.
ÞAKKARORÐ
Höfundur vill þakka fjölmörgum einstakl-
ingunr við Rannsóknastofnun landbúnað-
arins og einnig Magnúsi Óskarssyni, til-
raunastjóra á Hvanneyri, fyrir ómetanlega
aðstoð. Ólafur Björn Hallgrímsson gerði
flestar sykrugreiningarnar, og vil ég sér-
staklega þakka honum fyrir vel unnið starf
af mikilli nákvæmni og alúð.