Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1970, Page 38
Mynd 1. Kort af miðhálendinu sunnan jökla, er sýnir staðsetningu uppgræðslureita á Sprengi-
sandi og við Sprengisandsleið á Holtamannaafrétti.
Fig. 1. The south-central district of Iceland showing the part of the desert with the experi-
mental sites.
finna í grein Stefáns Stefánssonar skóla-
meistara um gróður á Sprengisandi (Bruun
1902). En hann segir, að hinar allra harð-
gerðustu fjallategundir myndi gróðurinn á
þessu svæði; t. d. myndi lambagras, holurt,
vetrarblóm, skriðnablóm og melskriðna-
blóm strjálar smáþúfur og einstaka grasstrá
af sauðvingli og blásveifgrasi vaxi á stangli
og myndi kolla á skjólríkari stöðum.
Eins og að Iranran getur, er á Sprengi-
sandi víðáttumikil gróðurlaus auðn. Og
þar á upptök sín ein vatnsmesta og lengsta
á landsins, Þjórsá. Syðst að svæðinu liggur
Tungnaá, og er Sprengisandsauðnin fram-
hald hinna miklu eyðivikra Tungnaár-
öræfa. Á þeim öræfaslóðum höfðu verið
gerðar nokkrar athuganir til uppgræðslu.
Hófust þær árið 1960 og sýndu fljótlega
alljákvæðan árangur (Sturla Friðriksson
1969).
I framhaldi þeirra uppgræðslurannsókna,
sem áður höfðu verið gerðar, þótti rétt að