Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1970, Síða 41
LANDGRÆÐSLUTILRAUN Á SPRENGISANDI 39
N
S
Mynd 3. Skipulag mælingastaða í gróðurreit.
Fig. 3. Plan of the growthestablishment plot with points of soil surface measurements.
norðaustan við O og svipuðu gegnir um
hina. Teinn NN var settur 10 m utan við
reitinn og norðan við N. Á hverjum þess-
ara átta radíusa, sem afmarkast af O og
teini á ferli hringsins, eru fimm mælistaðir.
Þeir eru í fjarlægðinni 723, 1398, 1768,
2073 og 2393 cm lrá O.
Skammt frá hverjum reit er bolti festur
í klöpp eða stóran stein. Hæðir mælistað-
anna voru miðaðar við yfirborð boltans.
Við mælinguna var hafður skór á stönginni
— einnig þegar mælt var á boltann — og
var hann um 15 cm í þvermál. Mælingin
var gerð með fallmælitæki Ni2, sem stillt
var upp yfir O. Ef boltinn var ekki fast
við reitinn, var rekinn niður hæll við reit-
inn og hæð hans, miðuð við boltann, mæld
sérstaklega (Mynd 3).
Auk framanskráðra hringreita voru af-
markaðir ferhyrndir reitir 5 X m við
Svartá og Eyvindarkofaver og í þá sáð tún-
vingulsfræi, sem svarar til 30 kg á hektara,
en innan þess svæðis var auk þess sáð fræi
af hvítsmára (10 kg/ha) og Alaska lúpínu
(100 kg/ha) í 10 m2 reiti með þremur end-
urtekningum.
Gróðurfar í reitunum var mælt með
punktamælingum á hverju sumri síðan
1967. Var það gert á þann hátt, að mældir
voru 1000 punktar með 10 cm millibili í