Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1970, Blaðsíða 47
LANDGRÆÐSLUTILRAUN Á SPRENGISANDI 45
Mynd 6. Sáð í hina svörtu auðn á Sprengisandi.
Fig. 6. The black basallic gravel is fertilized and soxon to.
Fjórðungsvatn, að liann kemur árlega fram
á mælingum. Aftur á móti er fjallapuntur
til í reitunum við Eyvindarkofaver og 111-
ugaver, en svo lítið er af honum þar, að
hans gætir ekki í mælingum. Melanóra
myndar mestan hluta hulunnar við Eyvind-
arkofaver, og við lllugaver eru melskriðna-
blóm og skeggsandi mjög áberandi. Allar
þessar jurtir eru til í hinum reitunum (þó
ekki við Fjórðungsvatn), en í mun minna
rnæli. Geldingahnappur hefur alls staðar
brugðizt vel við áburðargjöf, en þó einkum
við Illugaver. Axhæra virðist ekkert aukast
við áburðargjöf, og er hula hennar svipuð
innan reita og utan.
Þess má og geta, að gæs sækir mjög í
reitina. Flefur verið komið að hópum
heiðagæsa á beit í reitunum, og mikið
liefur verið um gæsadrit í reitunum öll ár-
in, þó ekki við Fjórðungsvatn, en sá reitur
er rnjög afskekktur og lítt gróinn.
Gunnar Þorbergsson skipulagði mæling-
arnar af hálfu Orkustofnunar og sá um úr-
vinnslu þeirra, en Gunnar Jónsson fram-
kvæmdi mælingarnar.
Tilgangur yfirborðsmælinganna var: