Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1970, Síða 63
ÁBURÐARNOTKUN OG VETRARÞOL 61
ÞURREFNI HKG/HA
DRY MATTER HKG/HA
kg/ha.
Fig. 4. Potassium application and yield before and after winter killing.
á Korpu og í Reykjavík er því sem næst
það sama eins og taflan sýnir.1
ÁLYKTUNARORÐ
Skortur á köfnunarefni og kalí hamlaði
mjög sprettu, þar sem þessi efni voru ekki
borin á. Köfnunarefnis- og kalískorturinn
var enn þá greinilegri á öðru ári en á sán-
ingarárinu, og nrá heita, að dauðkalið hafi
verið, þar sem kalískorturinn var mestur.
Miðlungsstór köfnunarefnisskammtur,
1) Hitamælingar eru ekki gerðar á Korpu að
vetrinum, en stuðzt við mælingar úr Reykjavík,
línurit 8.
120 kg/ha N, reyndist bezt gegn kalinu.
Eftir 180—240 kg/ha N kól, en kalið var
hins vegar minnst eftir ríflegt magn af
kalíáburði.
Fosfórþörf mýrarjarðvegs á Korpu er
geysimikil, og eru niðurstöður pottatilraun-
anna í þeim efnum mjög áþekkar niður-
stöðum úr vallartilraunum.
Fosfórþörfin í pottatilraununum reynd-
ist vera að minnsta kosti 60 kg/ha eða sem
svarar 300 kg/ha af þrífosfati. í þeim hluta
tilraunanna, þar sem fosfórþörfin var at-
huguð, var grunnáburður 180 N og 75 K
kg/ha. í vallartilraun á Korpu hefur verið
vaxtarauki fyrir allt að 330 kg/ha þrífosfat
árlega i fjögur ár (Bjarni Helgason, 1969).