Safnablaðið Kvistur - 2020, Page 5

Safnablaðið Kvistur - 2020, Page 5
7 Safnablaðið Kvistur Útgefandi Félag íslenskra safna og safnmanna Ritstjóri Þóra Sigurbjörnsdóttir Ritstjórn Ágústa Kristófersdóttir, Gunnþóra Halldórsdóttir, Ingunn Jónsdóttir, Sigrún Kristjánsdóttir, Sigurjón Baldur Hafsteinsson. Auglýsingar Þóra Sigurbjörnsdóttir Hönnun Ármann Agnarsson, Helgi Páll Melsted Teikning á kápu Erla María Árnadóttir Prentun Prentmet Höfundum greina eru færðar kærar þakkir fyrir þeirra framlag ISSN-2298-6944 hve fá þeirra geta haft safnkennara í fullri stöðu. Allt of margir vinna fræðslustörf í hlutastarfi eða koma inn sem verktakar. Þessi staða tengist fjármagni, pólitík og forgangsröðun þeirra sem fara með stjórn. Það er umhugsunarvert að fræðslustarf sé þannig gert hornreka í þeim menntastofnunum sem söfnin eru. Við vitum hvert við viljum stefna og hvað við höfum í höndunum. Er þá ekki kominn tími til að við hefjumst handa, byggjum upp og mótum metnaðar fulla stefnu fyrir safn- fræðslu á Íslandi svo eftir verði tekið? Þóra Sigurbjörnsdóttir Árið 2020 hefur vægast sagt verið óvenjulegt ár og safnmenn hafa fundið fyrir því til jafns við aðra í samfélaginu. Það hefur reynt á að þurfa að loka sýningum, hætta við hvern viðburðinn á fætur öðrum og sum söfn hafa orðið af mikilvægum tekjum sem ört vaxandi ferðamennska í landinu skapar. Og enn sér ekki fyrir endann á þessari plágu. Áhersla blaðsins að þessu sinni er samt ekki um hvaða áhrif Covid-19 hefur haft á söfnin, heldur fjöllum við um það sem upphaflega var stefnt að, safnfræðslu safna á Íslandi. Við stingum þó ekki höfðinu í sand- inn og birtum umfjöllun um könnun safnaráðs, Íslandsdeildar ICOM og FÍSOS þar sem fram kemur alvarleg staða margra safna. Könnunin var send út í lok samkomubanns þann 2. maí og var ætlunin að komast að því hvaða áhrif ástandið hefði á söfn, rekstur þeirra og afkomu sem og á líðan starfsfólks. Niðurstöðurnar eru áhugaverðar og mikilvægt að safn- menn kynni sér þær. Þemaumfjöllun í Kvisti að þessu sinni eru eftirtektarverð fræðsluverkefni sem eru í gangi, þróunarstarf sem komið er vel á veg og rannsóknir á safnfræðslu. Reynsla þeirra sem vinna við fræðslustörf er mikilvæg og það er óskandi að hlúð verði að henni til framtíðar. Rétt er að benda á grein ÖlmuDísar Kristinsdóttur í þessu sam- hengi þar sem m.a. er velt upp starfs- heiti þeirra sem koma að safnfræðslu, en þau eru ansi fjölbreytt. Það eitt og sér lýsir viðhorfi til fagsins og er eitt- hvað sem þarf að ræða innan safna- geirans. Hins vegar er áberandi hve mikil fagmennska einkennir fræðslu- starfið og hve sterkar starfskenningar fagfólk í fræðslu hefur tileinkað sér, sama hvaða titil það ber. Ekki er fjallað um sögu safnfræðslu í þessu blaði en það má benda á og mæla með að fólk kynni sér þær ritgerðir og umfjallanir sem hafa nú þegar verið gerðar um efnið. Þar má nefna meistararitgerð Bryndísar Sverrisdóttur þar sem farið er yfir upphaf safnkennslu við menningar- minjasöfn landsins sem hófst um 1960. Í ritgerðinni er því lýst hvernig safnkennarar, Sólveig Georgsdóttir og Bryndís Sverrisdóttir störfuðu á vegum menntamálaráðuneytis og sáu um fræðslu á ólíkum söfnum staðsettum í Reykjavík til ársins 1986 þegar stofn- aðar voru fræðslustöður innan safn- anna. Sem dæmi þá tók Rakel Péturs- dóttir til starfa á Listasafni Íslands árið 1987 sem fyrsti safnkennari þess. AlmaDís Kristinsdóttir fjallar einnig um safnfræðslu, þróun og viðhorf gagnvart henni í doktorsritgerð sinni og þá sérstaklega í Listasafni Reykjavíkur. Öflugt fræðslustarf innan safna þar sem boðið er upp á fjölbreytt efni fyrir gesti er markmið þeirra sem koma að safnkennslu. Metnaðurinn er svo sannarlega fyrir hendi og fræðslufólk íslenskra safna hæft og hugmynda- ríkt. Mikill vöxtur hefur nú þegar orðið í safnfræðslu, eins og sést á efni þessa blaðs. Hins vegar er það alvarleg staða fyrir söfnin í landinu Hornreka eða stofustáss? verkefnisstjóri, fulltrúi, safnkennari, safnvörður, sjálfboðaliði… RITSTJÓRASPJALL

x

Safnablaðið Kvistur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.