Safnablaðið Kvistur - 2020, Page 8

Safnablaðið Kvistur - 2020, Page 8
10 Hönnun snýst í grunninn um það að gera hlutina vel. Bæta það sem betur má fara, finna lausnir og tækifæri. Sem hönnuður lærir maður ýmsar aðferðir sem nýta má í þessum tilgangi. Mig langar til að deila með ykkur í stuttu máli hvernig við höfum nýtt aðferðafræði hönnunar í Hönnunarsafni Íslands undanfarin þrjú ár. Á árunum 2007–2010 stýrði ég rannsóknar- og þróunarverkefni við Listaháskóla Íslands sem bar heitið Stefnumót bænda og hönnuða. Í verkefninu var teflt saman einni elstu starfsstétt landsins, bændum, og þeirri yngstu, vöruhönnuðum. Markmiðið var skýrt, að skapa virðis- auka á hráefni samstarfsbænda verkefnisins. Aðferðafræðin var í stuttu máli þessi: Nemendur kynntu sér hráefni hvers bónda fyrir sig sem og tækjabúnað og þekkingu sem var til staðar á hverjum bæ. Þetta er grunnurinn sem byggt er á. Einnig kynntu nemendur sér framtíðarsýn og drauma samstarfsbænda sinna. Þessi atriði voru kortlögð og hafist handa við hugmyndavinnu sem mið- aðist við að ná markmiðinu með því að nýta einungis það sem er til staðar á hverjum bæ. Það er að segja, ekki var gert ráð fyrir fjárfestingu í nýjum tækjum og tólum. Við mátum það svo að með þessum ramma yrðu verk efnin líklegri til að verða að veruleika. Hönnunarstjórar verkefnisis voru Brynhildur Pálsdóttir og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir vöruhönnuðir en auk þeirra og nemendanna komu aðrir fagaðilar að verkefninu svo sem matreiðslumenn, sérfræðingar hjá Matís, viðskiptafræðingar og grafískir hönnuðir. Aðkoma þessara fagaðila var möguleg þar sem verkefnið fékk veglegan styrk frá Rannís úr Tækni- þróunarsjóði. Lokaafurðirnar voru meðal annars rabbarbarakaramella, sláturterta, matseðill í anda Þórbergs Þórðarsonar og skyrkonfekt. Hug- myndirnar voru að sjálfsögðu marg- falt fleiri. Allt sett í pottinn og svo hrært til skiptis með samtali, tilraun- um, samtali, tilraunum þar til loka- niðurstaða næst. Ef um annars konar verkefni væri að ræða til dæmis byggingu á nýju safni væri auðvitað notuð önnur aðferða- fræði, en ég nefni þetta dæmi þar sem þetta er sú aðferðafræði sem við höfum nýtt okkur í Hönnunarsafni Íslands undanfarið. Draumur safnstjórans var að að gera safnið líflegra og að fleira fólki fyndist það tilheyra safninu. Áherslurnar snér- ust um að á safninu skapaðist meira samtal, þekking og hugmyndir og að safnið væri staður þar sem maður tækist á flug, yrði spenntur, forvitinn, uppgötvaði hluti og framkvæmdi. Á virkum dögum er fjöldi starfs- manna á Hönnunarsafni Íslands 2–3, á víð og dreif í 1400 fermetra hús- næði. Um helgar er þar einn starfs- maður. Þetta eru ekki kjöraðstæður fyrir líflegt safn. En ef maður notar sömu aðferðafræði og lýst er hér fyrir ofan lítur dæmið svona út: – Markmið: Líflegt safn. AÐ SKAPA SAMTÖL Aðferðafræði hönnunar í safnastarfi Líflegt safn Markmið Útkoma Verkfæri Grunnur Efniviður Samtöl Sköpunargleði Tilraunir (frumgerðir) Hugrekki / Opinn hugur Húsnæði / Þekking Einstakur safnkostur Starfsfólk / Stafræn tilvist

x

Safnablaðið Kvistur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.