Safnablaðið Kvistur - 2020, Blaðsíða 11
13
FRÉTTIR ÚR SAFNAHEIMINUM
sem var streymt eða allskyns mynd-
böndum um söfnin stóðu lands-
mönnum sem og heiminum öllum til
boða. Skráning safnkosts jókst einnig
til muna sem og viðhald og viðgerðir
á safnhúsum og sýningum.
Svo kom sumar. Á ferð um landið
voru heimamenn í meirihluta og voru
þeir duglegir við að sækja menningar-
tengda þjónustu. Viðburðir voru
aðlagaðir að sóttvarnartakmörkunum
með góðum árangri. Félagar í FÍSOS
hafa í gegnum árin rætt um hve erfið-
lega hefur gengið að auka heimsóknir
heimamanna á söfn og þó svo að það
hafi þurft heimsfaraldur til þess, þá er
von nú um að söfnin hafi stimplað sig
rækilega inn hjá heimamönnum.
Og nú er komið haust. Ljóst er að far-
sóttin hefur ekki sungið sitt síðasta
og enn þurfum við að aðlaga okkur
að breyttum aðstæðum. En gleymum
því ekki að söfn eru og eiga að vera
varanlegar stofnanir sem starfa í þágu
almennings, samkvæmt laganna
bókstaf. Ágjöf sem þessi má ekki og á
ekki að slá okkur út af laginu. Mikil-
vægast á þessum tímapunkti er að
tala saman, styrkja tengslanetið og
leita ráða hjá hvert öðru. Sköpunar-
krafturinn og hugmyndaauðgin sem
býr í félögum FÍSOS er ómetanlegur.
Tökumst á við komandi vetur með
bjartsýnina að vopni og umhyggju
fyrir hvort öðru. Við erum öll í þessu
saman, við erum öll almannavarnir.
Ekki gleyma að anda.
Þetta líður hjá …
Árið 2020 hefur fært okkur gríðarlega
erfitt verkefni að vinna úr, farsótt
sem hefur heltekið heimsbyggðina.
Covid-19 hefur reynst starfsemi safna,
sem og annarri menningartengdri
starfsemi, óþægur ljár í þúfu. Reglur
um samkomutakmarkanir, gríðarleg
fækkun erlendra ferðamanna og
lokanir þekkjum við öll. FÍSOS, ICOM
á Íslandi og safnaráð hafa saman
lagst á árar og lögðu fyrir stjórnendur
viðkenndra safna könnun í apríl um
áhrif Covid-19 á safnastarf í landinu.
Niðurstöður sýna að farsóttin hefur
mikil áhrif er kemur að áætlun um
fjölda gesta og tekjuáætlunum, hún
hefur víða orsakað mikla rekstrar-
erfiðleika og áframhaldandi óvissa er
í kortunum. Nauðsynlegt er að endur-
taka könnunina í lok árs og sjá þá
svart á hvítu raunstöðu viðurkenndra
safna á Íslandi.
Þrátt fyrir þessi áföll hafa félagar í
FÍSOS, sem starfa á söfnum, setrum
og sýningum landsins, sýnt að þó
skellt hafi verið í lás þá stóðu allar
dyr opnar þeim sem vildu fá að
vita meira um starfsemi safna og
þann mikla fjársjóð sem felst í safn-
kostinum. Nýjar leiðir í miðlun voru
nýttar, e.o. sýningar á listaverkum í
gluggum safna eða að blásið var til
safnabingós! Stafræn miðlun jókst
til muna þar sem safnkosturinn var
óspart nýttur til að vekja athygli á
starfseminni með góðum árangri.
Beinar útsendingar frá viðburðum
Þetta líður hjá …
Á bakka Varmár er stærðar bjarg þar sem áin rennur flesta
daga lygn og falleg. Bjargið er listaverk eftir myndhöggvarann
Matthías Rúnar Sigurðsson, sem hefur höggvið út stól í
bjargið sem snýr í hásuður. Í honum geta allir setið og notið
kyrrðar og fallegs útsýnis yfir ána. Hugmyndin, sem Elísabet
Jökulsdóttir kynnti fyrir bæjaryfirvöldum Hveragerðisbæjar
árið 2016, er að stóllinn sé til að minna okkur á að líkt og áin
líður hjá, þá munu þau vandamál sem oft á tíðum virðast
óyfirstíganleg einnig líða hjá.
Með kveðju, stjórn FÍSOS
©
H
ör
ðu
r
G
ei
rs
so
n
, 2
01
9