Safnablaðið Kvistur - 2020, Blaðsíða 22

Safnablaðið Kvistur - 2020, Blaðsíða 22
24 Á síðustu árum hef ég litið til rann- sókna og kannana Alþjóðaefnahags- ráðsins (WEF), Sameinuðu þjóðanna og heimsþings OECD. Það sem er áhugavert þar er að þau skoða hvað fólk óttast mest með spurningum eins og: Hverju hefur þú áhyggjur af eða hvað eru mikilvægustu málin í þínu lífi, í þínu landi, í þínu fagi? Mér finnst þetta mjög gagnlegt. Við unnum með slíkar spurningar líka í undirbúningsvinnunni fyrir það sem varð að hringborðsumræðunum fyrir nýju safnaskilgreininguna hjá ICOM. Þegar ég var að vinna í Borgarsögu- safni Kaupmannahafnar varð ég mjög áhugasöm um félags-hagfræði- kort sem Kaupmannahafnarborg og margar aðrar stórborgir vinna árlega, en þau sýna með nákvæmum hætti hvernig staðfræði og lýðfræði koma saman. Hægt er að sjá á korti hvar fátækt er að finna og svæði þar sem fátækir hafa ekki aðgang að menntun, hafa ekki aðgang að menn- ingu, geta ekki keypt húsnæði og að þau verði sífellt fátækari, ekki ríkari. Kortið sýnir mynstur, en líka frávik, sem eru til dæmis svæði þar sem póli- tískur aktívismi blómstrar í kringum hafnarsvæðin í Kaupmannahöfn, þar sem íbúarnir fylgja ekki mynstrinu. Bæði lýðfræði og staðfræði eru áhuga- verð, en sérstaklega fyrir söfn. Ef ég fer yfir 100 metra langa brú sem liggur yfir vötnin hér í Kaupmanna- höfn, þá lækka lífslíkur mínar um sjö ár. Slíkar upplýsingar þarf borg- arsafnið að vita. Ef þú ert að vinna á Þjóðminjasafninu þá þarftu að þekkja inn á slíkar staðreyndir um misrétti sem viðgengst í landinu og vera vak- andi yfir því í öllu sem þú gerir. Ef þú telur þig vera að vinna með einsleitt samfélag, þá ertu hálfsjónlaus. Á ráðstefnunni í Kyoto árið 2019 þegar nýja safnaskilgreiningin var rædd virtist sem stjórn ICOM væri óundirbúin þeirri gagn- rýni sem þar kom fram, og að íhaldsamari þjóðir, nefndir og fólk hafi haft óskorað vald til að hindra framkvæmd breytinga. Kosningunni sem var á dagskrá var frestað á grundvelli laga- tæknilegra atriða í franskri lög- sögu. Heldur þú að vandamál við að það að búa til nýja safnaskil- greiningu tengist stærra máli í heiminum í dag, pólariseringu eða kreppu alþjóðlegra stofn- anna þegar kemur að lýðræði, samvinnu og mannréttindum. Þeir sem vilja fara hægar eru við völd, eða að það sé ekki samstaða um gildin sem skipta máli? Það er vissulega pólarisering og orðræðan sem var í gangi allt að ráð- stefnunni í Kyoto kom mér virkilega á óvart. Hér á landi hafa ekki verið menningarstríð, en það virtist sem að á síðasta ári hafi brotist út stríð í safnaumhverfinu. Fólk, blaðamenn, dagblöð, eða tímarit leyfðu sér að segja nánast hvað sem er, í litlu samhengi við sannleikann og ég held að slíkt ástand sé mjög hættulegt pólitíkinni. Ég var mjög ánægð með fundinn á Íslandi um safnaskilgreininguna, því þar var fólk í salnum sem var mér ósammála, og gat tjáð sig opinskátt um það, ég gat brugðist við því og við gátum sætt okkur við þá staðreynd að við vorum ósammála. Af minni hálfu er það ein af stoðum lýðræðis- samfélags að hægt sé að finna leiðir til að kljást við ólíkar skoðanir. Ef við værum öll sammála, þá þyrftum við ekki á lögmálum eða aðferðum lýð- ræðis að halda. Lög og lagaumhverfið snúast um það að takast á við og komast að samkomulagi af virðingu. Og það er þess vegna sem sum okkar komust í uppnám í Kyoto, af því að lögunum og aðferðunum var kastað fyrir róða. Norðurlandaþjóðirnar voru sammála um þetta. Ekki af því að norrænu söfnin séu brautryðjend- ur, aðgerðasinnuð að einhverju ráði, eða af því að nýja skilgreiningin væri fullkomin eða komin frá guði. En norrænu þjóðirnar voru samstíga í mótmælum sínum gegn frávikum frá viðurkenndum leiðum. þau líka hafa aðra tjáningarmáta. Þetta hefur með ráðningar að gera. Fjölbreyttur bakgrunnur starfsfólks er raunverulegur styrkleiki, það þýð- ir að þú hafir mun fleiri möguleika að vinna með. Minnistæðasta upplifunin mín af tungumálakóðum var á Kvennasafn- inu þar sem við tókum mörg viðtöl til að skrásetja munnlega sögu. Með mér frá safninu var ung verkakona. Það áhugaverða var að hún þekkti marga tungumálakóða sem ég þekkti ekki, eins og að spyrja hvort að eig- inmaðurinn væri vondur þegar hann var fullur. Þetta var kóði sem kallaði fram langar og nákvæmar sögur hjá fjölda viðmælenda um hvernig mað- urinn hennar lamdi hana. Innbyggt í kóðann var það að hann lamdi hana greinilega, en af því það gerðist bara eða aðallega þegar hann var fullur, þá varð hún ekki að fara frá honum. Þetta voru kóðar sem ég var algjör- lega grunlaus um, ég hafði sem reynd fræðikona og sálfræðingur sem vann með kvennasögu aldrei áður heyrt slíkar sögur. Þetta kenndi mér margt um takmörk þess sem við teljum okk- ur vita og um þá þekkingu sem er stétt- og kynbundin. Þú hefur minnst á það, m.a. í erindi þínu á Íslandi, hvernig þú notaðir Mannréttindasáttmál- ann þegar þú varst í stefnumót- unarvinnunni á Heimsmenn- ingarsafninu í Gautaborg. Núna eru skjöl eins og UNESCO álykt- unin um þróun safna frá 2015 og nú nýlega sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna að koma fram. Myndir þú mæla með því að nýta slík gögn í vinnu við að þróa stefnu og markmið safns? Hvert á ég að leita til að gera bet- ur í starfi mínu á safni? Ég myndi einbeita mér að sjálfbærn- imarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og því hvað safnið getur uppfyllt í hverju markmiði fyrir sig og hvernig hægt er að tengja tilgang og markmið safnsins við sjálfbærnimarkmiðin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Safnablaðið Kvistur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.