Safnablaðið Kvistur - 2020, Síða 23

Safnablaðið Kvistur - 2020, Síða 23
25 Ingunn Jónsdóttir, safnafræðingur Hvað telur þú að muni gerast núna hjá ICOM? Er einhver vonar- glæta á sjóndeildarhringnum? Nú hafa tíu lykilmanneskjur sagt af sér. Afsögn er uppgjöf, gerningur sem endurspeglar vanmátt og að mann- eskjunni sé ekki leyfilegt að eiga sér rödd. Í henni felast hvorki mótmæli né hótun. Hún er aðgerð sem felur í sér getuleysi. En það sem er mjög áhugavert er að neikvæða orkan sem fylgir afsögn- unum hefur haft það í för með sér að annað fólk hefur risið upp í kröft- ugri mótspyrnu og andófi. Annað opið bréf til framkvæmdaráðsins er á leiðinni, undirritað af 50 manns, forsvarsfólki nefnda, sem krefjast gagnsæis og innsýnar í vinnu- og ákvarðanatökuferla framkvæmda- ráðsins. Sjálfsmat framkvæmda- ráðsins var ekki sannfærandi. Það er innri endurskoðun þar sem það metur sjálft sig og þar af leiðandi náttúrulega blindað og útþynnt. En það er hreyfiafl innan ICOM núna sem ég hef aldrei séð áður og ég veit ekki hver áhrifin verða. Þegar ég tala við mér yngra fólk þá heyri ég á þeim að þau eru sigurviss. Ég er að- eins minna viss því ég hef áður orðið vitni að hruni. Við sáum á síðasta ári hversu ótrúlega sterk íhaldsömu öflin eru. Ég veit ekki hvort nýja andspyrn- an muni vinna, en hreyfingin er áhugaverð. Það er líka áhugavert að sjá að hún er knúin af konum á aldrinum 35–50 ára. ICOM verður að passa að missa þær ekki frá sér. Eins og er þykir mér mjög mikið til þeirra koma og þær vinna algjörlega frábært starf. Verður af nýrri safnaskilgreiningu? Það fer eftir því hvar völdin munu liggja. ICOM er ekki ennþá búið að leggja niður MDPP nefndina (Standing Committee for Museum Definition, Prospects and Potentials) og hugmyndir um nýjan forsvars- mann hennar eru í lausu lofti. Niður- staðan mun sýna hvar völdin liggja núna. Afsögn forseta ICOM er stórvið- burður, fólk veit að hún sagði ekki af sér af neinni léttvægri ástæðu og sér að breytinga er þörf. Ef ICOM ætlar að halda sínum sessi, eða styrkja stöðu sína, þá verður safnaskilgreiningin að endurspegla breytingar, hvort sem það gerist núna eða ekki. Kosningarn- ar árið 2022 gætu breytt ICOM til muna. En ég veit ekki. Ef þér finnst hlutirnir gerast hægt á söfnum, þá gerast breytingar í ICOM varla á for- sögulegum tíma heldur jarðsöguleg- um. En ég beini því til ykkar, unga fólksins þarna úti, að einbeita ykkur að 2022. L jó sm yn da ri : C ar st en S n ej bj er g

x

Safnablaðið Kvistur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.