Safnablaðið Kvistur - 2020, Qupperneq 26

Safnablaðið Kvistur - 2020, Qupperneq 26
28 Vettvangur safna er margslunginn og mikil gróska hefur átt sér stað í safna- starfi víða um heim, þar með talið hér á landi. Til þess að vekja athygli á því sem vel er gert hefur Íslandsdeild ICOM, alþjóðaráðs safna, og FÍSOS, félag íslenskra safna og safnamanna, veitt Íslensku safnaverðlaunin annað hvert ár frá árinu 2000. Viðurkenn- ingin sem felst í verðlaununum er bæði heiður og hvatning þeim söfnun- um sem hljóta tilnefningu ekki síður en því safni sem hlýtur verðlaunin. Verðlaunin eru hvati faglegs metnaðs og góð kynning á því hvernig unnið er með menningu okkar á framsækinn og áhugaverðan hátt. Auglýst var eftir ábendingum frá almenningi, stofnunum og félagasam- tökum um safn eða einstök verkefni á starfssviði safna sem þykja til eftir- breytni og íslensku safnastarfi til fyr- irmyndar. Til greina komu sýningar, útgáfur og annað er snýr að þjónustu við safngesti jafnt sem verkefni er lúta að faglegu innra starfi svo sem rannsóknum og varðveislu. Í ár var met slegið í innsendum ábendingum, en þær voru alls 49 til 34 verkefna þar sem a.m.k. 21 safn kom við sögu. Vil ég nota tækifærið til að hvetja alla til að sýna áframhaldandi áhuga fyrir því að vekja athygli á því sem vel er gert með því að halda til haga upplýs- ingum um áhugaverð söfn og verk- efni og senda inn þegar næst verður auglýst eftir tilnefningum. Eins má gjarnan velta því fyrir sér hvort tími sé kominn til að efna til verðlauna og viðurkenninga á hverju ári og ef til vill skipta viðurkenningum upp í mismunandi flokka því eins og áður hefur verið nefnt eru viðfangsefnin margslungin og oft erfitt að bera saman mjög ólík verkefni til sömu verðlauna. Ýmsar vangaveltur komu Íslensku safnaverðlaunin 2020 hlaut Þjóðminjasafn íslands upp hjá valnefndinni sem vert væri að fjallað væri nánar um. Til Íslensku safnaverðlaunanna 2020 voru eftirtalin söfn valin fyrir tilnefningu fyrir verkefni sem þóttu til fyrirmyndar og íslensku safnastarfi til framdráttar. – Minjasafn Austurlands á Egilsstöð- um, Tækniminjasafn Austurlands á Seyðisfirði, Sjóminjasafn Austur- lands á Eskifirði ásamt Gunnars- stofnun, sem leiddu verkefnið Austfirskt fullveldi – sjálfbært fullveldi – Borgarsögusafn Reykjavíkur fyrir Fiskur & fólk – sjósókn í 150 ár og sam­ starf við hollvinasamtök skipanna Óðins og Magna – Listasafn Reykjavíkur fyrir 2019 – ár listar í almannarými – Náttúruminjasafn Íslands fyrir Vatnið í náttúru Íslands – Þjóðminjasafn Íslands fyrir Varð­ veislu­ og rannsóknamiðstöðvarnar ásamt Handbók um varðveislu safnkosts Verðlaunin, sem nú voru að upphæð ein og hálf milljón króna, féllu í skaut Þjóðminjasafns Íslands og því við hæfi að ræða við Margréti Hallgrímsdóttur, þjóðminjavörð og Lilju Árnadóttur, sviðsstjóra munasafns Þjóðminjasafns Íslands, um þessa viðurkenningu. Hvaða þýðingu hafa verðlaunin fyrir Þjóðminjasafn Íslands? Í fyrsta lagi var mikilvægt að hljóta til- nefninguna og öðlast sess með öðrum söfnum sem vinna kappsamlega að sínum markmiðum. Þjóðminjasafni Íslands ber samkvæmt lögum að vera í fararbroddi safna og safnaverðlaunin því til handa eru staðfesting þess að mikilvægur áfangi í löngu ferli náðist. Með bættum aðbúnaði og öryggi alls safnkosts hefur Þjóðminjasafn Íslands óyggjandi forystu á því sviði hérlendis. Það hefur tekið nokkur ár að ná settu marki en enn verður fram haldið. Verðlaunin eru til þess að minna bæði safnafólk og ekki síður eigendur safn- anna á að hvergi er hægt að slaka á í varðveislu, rannsóknum og miðlun. Þeir þættir eru grundvöllur söfnunar í framtíðinni og söfnun, rannsóknir og miðlun er undirstaða þess að sýn- ingastarfsemi blómstri, sé fræðandi, skemmtileg, veki umræður og vitund fólks um bæði um fortíð og samtíma. Þá hefur nauðsynleg yfirferð um safnkostinn sem áður var vistaður á nokkrum stöðum veitt glögga yf- irsýn yfir það sem er til í safninu. Yfirsýnin og bætt aðgengi er lykill- inn að því að hægt sé að halda áfram söfnun undir merkjum samtímans, að söfnun sé markviss og samkvæmt ákveðinni söfnunarstefnu sem við viljum sjá að verði þess eðlis að hún nýtist á landsvísu. Við vígslu nýju Varðveislu- og rannsóknamiðstöðvarinnar í Hafnarfirði notaði Margrét áhugaverða samlíkingu; að mið- stöðin væri eins konar „hátækni- sjúkrahús fyrir þjóðminjar“. Getið þið útskýrt það nánar? Jú, það hefur verið gripið til þessa orðs til þess að vekja athygli á því að það fræða- og varðveislustarf sem söfnin ástunda krefst húsnæðis og tæknibún- aðar svo að þeim minjum sem ætlað er að varðveitast til komandi kynslóða verði tryggð framtíð. Um er að ræða grunnaðstöðu á okkar fagsviði sem leggur grundvöllinn að árangri al- mennt, þ.e. nauðsynlegir innviðir á sviði safnastarfs og þjóðminjavörslu. Hugtakið skírskotar og til þess að hús- næðið er rúmgott, sérhönnuð rými í samræmi við kröfur sérfræðinga okkar með tilheyrandi tæknibúnaði, loft- og hitastýringu allt eftir því hvaða skil- yrði þarf að uppfylla til þess að tryggja munum og minjum trausta varðveislu. VIÐTAL VIÐ MARGRÉTI HALLGRÍMSDÓTTUR ÞJÓÐMINJAVÖRÐ OG LILJU ÁRNADÓTTUR, SVIÐSSTJÓRA MUNASAFNS ÞJÓÐMINJASAFNS ÍSLANDS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Safnablaðið Kvistur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.