Safnablaðið Kvistur - 2020, Qupperneq 41

Safnablaðið Kvistur - 2020, Qupperneq 41
43 ríkislistasöfnin þrjú og í raun allar götur síðan í starfi mínu við Lista- safn Íslands. Að geta mátað eigin verkefni í alþjóðlegu samhengi á ráð- stefnum safnafólks var hvetjandi og mikilvægur þáttur í þróun starfsins. Þá vil ég nefna kynni mín af mörg- um reynslumiklum safnkennurum svo sem Michael Cassin sem þá starf- aði hjá National Gallery í London og kenndi mér um mikilvægi töfra augnabliksins, gagnvirkni og nánd auk kynna minna af fræðimannin- um George E. Hein og kenningum hans um nám og kennslu á söfnum. Kenningar Mikhail Bakhtin um mik- ilvægi gefandi samræðu í núningi tíma og rýmis studdu einnig mína nálgun. Endurgjöf þátttakenda, munnleg og skrifleg elfdi að jafnaði trú mína á mikilvægi starfsins. Ríkey Hlín Sævarsdóttir Jarðfræðingur og verkefnastjóri fræðslu og viðburða hjá Náttúru fræði- stofu Kópavogs: Hvað hefur helst haft áhrif á störf þín í safnfræðslu? Verkfærakistan mín geymir bjargir og tól úr ýmsum áttum sem ég gríp oft og iðulega til í hvers kyns fræðslu og verkefnum. Kenningar úr kennslu- fræðinámi eru ákveðinn grunnur að uppbyggingu fræðsluverkefna, t.d. með því að mæta nemendum/hópum þar sem þeir eru staddir, byggja ofan á það og hvetja til virkrar þátttöku og eigin lausnaleitar. Ég reyni að nýta áhuga- verðar kveikjur markvisst sem og ýmis hagnýt ráð úr leiðsögunámi þegar kemur að frásögn og raddbeitingu. Eins reynist það mér oft vel að segja hreint út að ég viti ekki svarið við ákveðnum spurningum og snúa þeim til hópsins í staðinn; “hvað haldið þið?”. Þannig næst hópurinn gjarnan á flug og valdeflist með eigin vangaveltum og uppgötvunum sem síðan eru dregnar saman og unnið með. Starfsreynsla úr leikskóla er einstak- lega góður og dýrmætur reynslu- banki sem nýtist mér vel í núverandi starfi; hlýleg og róleg nálgun og ýmsar hagnýtar kennsluaðferðir og vinnulag sem virka m.a. vel til að halda áhuga, athygli og ró hjá yngstu safnfræðslugestunum þegar á þarf að halda. Leiðarljós mitt í allri náttúrufræði- fræðslu er að “færa fræðin upp úr bók- inni og út út stofunni” á lifandi, sjón- rænan og áþreifanlegan hátt; að sá fræjum sem, vonandi, kveikja áhuga og undrun og hjálpa nemendum að lesa í landið og opna augun fyrir stór- fengleik og samspili náttúruferlanna allt í kring. Grunnþættir menntunar og hæfnivið- mið í aðalnámskrám leik- og grunn- skóla eru til hliðsjónar við fræðsluefn- isgerðina og ég leita innblásturs og efnisfanga víða; skoða fræðsluefni frá öðrum söfnum, skólum og stofnun- um, íslenskum og erlendum, les mér til og fylgist með helstu málefnum líðandi stundar er varða m.a. nátt- úrufræði og náttúruvernd. Samvinna verkefnastjóra mismunandi Menn- ingarhúsa hér í Kópavogi er einnig ómetanleg og fjöldi skemmtilegra fræðsluverkefna sem hafa litið dagsins ljós þar sem fléttaðar eru saman t.d. bókmenntir, listir og náttúrufræði. Kristín Harðardóttir Safnkennari og líffræðingur á Náttúru- minjasafni Íslands: Hvað hefur helst haft áhrif á störf þín í safnfræðslu? Ég er menntaður líffræðingur og yogakennari og áhugi minn og metn- aður felst í að miðla efni sem tengist náttúrufræði á áhugaverðan hátt til barna. Til að það sé hægt þarf að ná til hópsins strax í byrjun og mynda sam- hug. Þar nýti ég mínar bjargir úr yoga- -fræðum. Ég hef sótt ýmis yoga-nám- skeið m.a. krakka-yoga kennaranám á vegum Little flower yoga sem á rætur að rekja til New York. Kennarar þar fara inn í skólana og leiða nemendur í yoga-æfingum til að bæta líðan þeirra og auka núvitund. Til hliðsjónar hef ég lesefni sem Little flower yoga gefur út og heitir Teacher training part one, Foundations of children’s yoga and mindfulness. Við safnkennarar þurf- um að hafa í huga að við þekkjum ekki bakgrunn gesta okkar og trufl- andi hegðun þeirra er mjög líklega að endurspegla eitthvað sem þau glíma við í sínu persónulega lífi. Nemend- urnir eru gestir okkar og við eigum ávallt að koma fram við þá sem slíka. BJARGIR SAFNKENNARA Þóra Sigurbjörnsdóttir, safnafræðingur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Safnablaðið Kvistur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.