Safnablaðið Kvistur - 2020, Qupperneq 43

Safnablaðið Kvistur - 2020, Qupperneq 43
45 Þegar allir titlarnir eru búnir er hópurinn kallaður saman hjá mynd sem hefur fengið nokkra ólíka titla. Við ræðum hvernig þeir eiga við myndina, á hvaða hátt þeir eru ólíkir og hvað það er við myndina sem kall- ar á þessa margvíslegu titla. Nemend- ur eru oft mjög virkir í samtalinu því það snýst um þeirra framlag og hug- myndir. Þau geta verið ósammála um að ákveðinn titill passi við tiltekna mynd og þá þarf að leiða samtalið í þá átt að allar túlkanir eigi rétt á sér. Að þessu loknu fær hver nemandi tvo litla miða með stjörnu og fyrirmæli um að þau eigi að skoða alla titlana og setja stjörnu við þá tvo titla sem þeim finnst eiga sérstaklega vel við. Í lokin förum við svo yfir þá titla sem fengu flestar stjörnur og ræðum þá. Við það klárast leikurinn og eftir standa titlar sem hópurinn hefur kosið besta. Stjörnugjöfinni er sleppt hjá yngri bekkjum því hún getur snúist upp í vinsældakosningu og áherslan fer af myndlestri og fræðslutilgangi leiks- ins. Fyrir yngri nemendur skiptir meira máli að fá umfjöllun um sína túlkun og þá er betra að fara í lengra samtal um titlana svo allir fái við- brögð og athygli fyrir sitt framlag. Kostir leikjaformsins Leikurinn hægir á áhorfi nemenda, þau gefa sér betri tíma til að skoða hvert verk og velta því fyrir sér. Rammi leiksins veitir nemendum tækifæri til að slaka á og skemmta sér um leið og hann skapar umgjörð utan um samtal sem fær nemendur til að tjá sig. Að- almarkmiðið er að þjálfa nemendur í myndlestri, ræða um myndir og rök- styðja túlkun sína. Kostur leiksins er að hann virkjar þátttakendur því allir taka þátt og þau stjórna framkvæmd- inni að því leyti að þau velja hvort þau vinna stök eða með öðrum og á hvaða hraða leikurinn er. Leiknum svipar til borðspils en á það sameiginlegt með frjálsum leik að innan hans eru lögmál sem skapa skýran ramma. Á meðan leikurinn varir er hann það sem skiptir aðal- máli og þátttakendur geta leyft sér að hætta að hugsa um annað á meðan. Í honum felst þraut sem þau þurfa að leysa og stjörnugjöfin er spennandi því hún tryggir ákveðinn sigurvegara. Leikurinn gagnast vel til að skapa samtal um myndmál og rímar við hæfniviðmið Aðalnámskrár grunn- skóla um að nemendur allra skólastiga geti greint áhrif myndmáls. Viðbrögð hafa verið mjög góð bæði frá kennurum og nemendum. Krakk- arnir brosa og hlæja meðan á leikn- um stendur og draga spennt nýjan og nýjan titil. Um leið geta þau verið í samskiptum við jafningja sína og speglað viðhorf sín í þeim. Leikir búa yfir ótal möguleikum í safnfræðslu og það hefur verið mjög gaman að geta nýtt styrkleika safns eins og Ljósmyndasafns Reykjavíkur í að gefa nemendum tækifæri á að þroska hæfni sína í myndlæsi. Myndir eru teknar á sýningu Christophers Lund, Vitni, í Ljósmynda- safni Reykjavíkur. Hlín Gylfadóttir, sérfræðingur fræðslu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Safnablaðið Kvistur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.