Safnablaðið Kvistur - 2020, Blaðsíða 45
bæði stóra sem smáa til að taka þátt í
léttum leikjum og senda okkur spurn-
ingar ef fólk vill dýpka skilning sinn
á ákveðinni sýningu eða verkefnum
innan safnsins. Með jöfnu millibili
sendum við frá okkur póst sem kallast
Spurt og svarað, þar sem spurningum
frá áhugasömum gestum er svarað á
skýran og hnitmiðaðan hátt.
Á Instagram síðu safnsins eru settar
inn upplýsingar um verk úr safneign
og eins eru þar birt myndskeið af sér-
fræðingum safnsins við störf.
Vinsælasti leikurinn sem fór fram
bæði á Instagram og Facebook var
listaverka- og myndaleikurinn þar
sem fólk valdi sér listaverk, notaði
þrjá eða fleiri hluti í kringum sig og
endurgerði verkið með ljósmynd.
Á heimasíðu safnsins má finna
360 gráðu ljósmynd af sýningunni
Fjársjóður þjóðar og af safninu við
Fríkirkjuveg. Þannig geta gestir
skoðað safnið og sýninguna hvort sem
þeir eru heima hjá sér, á ferðalagi, í
vinnunni eða annars staðar. Vefsýn-
ingar á verkum Ásgrím Jónssonar má
finna á heimasíðu safnsins og einnig
má finna fjölbreyttar vefsýningar á
Sarpi, sarpur.is.
Þann 4. ágúst 2020 hófum við sam-
starf við DailyArt samkvæmt því
markmiði að miðla safneign okkar og
íslenskri listasögu innan alþjóðlega
listaheimsins. Þann dag birtist fyrsta
listaverkið frá listasafninu, Hekla eftir
Ásgrím Jónsson frá 1909. DailyArt er
öflugt og ókeypis fræðslu- og lista-
verka-app sem auðvelt er að sækja í
símann. Einnig kemur verk dagsins á
Facebook-síðu og heimasíðu DailyArt.
Á hverjum degi sendir DailyArt eitt
listaverk í símann til áskrifenda sinna
um allan heim, með upplýsingum um
verkið, listamanninn og safnið sem
varðveitir verkið. Í DailyArt-appinu er
einnig hægt að finna upplýsingar um
ýmsa listamenn og söfn víðsvegar um
heiminn.
safnsins við verkefnið horfðum
við á velgengni nágranna okkar í
Danmörku, nánar tiltekið Statens
Museum for Kunst – Þjóðlistasafni
Danmerkur. Safnið hefur verið mjög
virkt og leiðandi í sérstökum verkefn-
um fyrir innflytjendur í Danmörku.
Þá er safnkosturinn notaður sem
fræðsluefni um samfélagið, menningu
og sögu landsins. Boðleiðir til þessara
hópa geta stundum verið erfiðar en
Þjóðlistasafnið starfar með tungu-
málaskóla og kennari á vegum hans
leiðir hópana á safninu í samstarfi við
starfsmann safnsins.
Við höfðum samband við Rauða kross-
inn á Íslandi sem stendur fyrir öflugri
fræðslustarfsemi fyrir innflytjendur
og tók sérstaklega mið af samstarfs-
verkefni Rauða krossins og Mímis,
Æfingin skapar meistarann. Við buðum
nýjum íbúum landsins í heimsókn til
að kynnast safninu, starfsfólki þess
og safnkosti. Í hverri heimsókn eru
nokkur valin verk skoðuð, rædd og
sett í menningarlegt samhengi og
athygli er vakin á skírskotunum
þeirra til samfélagsins, auk þeirra
minninga og hughrifa sem vakna.
Undirbúningur gesta fyrir hverja heim-
sókn fer fram áður en þeir mæta og
úrvinnslan fer fram eftir að heimsókn
lýkur. Skemmtilegar samræður skapast
í hverri heimsókn og má finna mikinn
áhuga hjá gestunum. Í lok heimsóknar
eru þeir hvattir til þess að kynna sér
Krakkaklúbbinn Krumma og koma
aftur í heimsókn með fjölskylduna.
Áhersla lögð á stafrænan fróðleik
Í samræmi við markmið um fjöl-
breytni þegar kemur að auknu að-
gengi að menningararfinum leggjum
við áherslu á sýnileika á samfélags-
miðlum og á vefsvæði safnsins og þar
miðlum við fróðleiksmolum. Það er
okkar mat að samfélagsmiðlar séu
gott verkfæri í fræðslu og miðlun,
svo sem til að koma á framfæri upp-
lýsingum og vekja áhuga fólks óháð
staðsetningu. Þannig náum við að
verða sýnilegri fyrir alla landsbyggð-
ina. Á samfélagsmiðlum hvetjum við
47
Guðrún Jóna Halldórsdóttir,
verkefnisstjóri viðburða og fræðslu.
Fritz Hendrik Berndsen og Helga Kjartansdóttir, þátttakendur í listaverka og myndaleiknum, sendu inn þessa mynd