Safnablaðið Kvistur - 2020, Page 50

Safnablaðið Kvistur - 2020, Page 50
VIÐTAL VIÐ MENNTAMÁLARÁÐHERRA 52 Fyrst langar mig að fá þína sýn þín á stöðu safna í samfélaginu og hvar þú sérð fyrir þér mikilvægi safna; er það samfélagsleg hlutverk þeirra sem snýr að miðlun og fræðslu eða er það varðveislan. Söfn gegna mikilvægu samfélags- legu hlutverki og ég er mjög stolt af íslensku söfnunum. Þau eru fjöl- breytt og áhugaverð. Við erum vissu- lega með mörg söfn miðað við höfða- tölu, en það gerir það að verkum að allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Fræðsluhlutverk safna er að mínu mati mikilvægt, að þekkingu sé miðlað milli kynslóða þannig að þú getir séð þrjár kynslóðir fara inn á safn og þar finni allir eitthvað við sitt hæfi. Ég tel mikilvægt að söfn séu barnamiðuð því þannig færðu barnafólk inn á söfnin – því það vill fræða börnin sín. Þarna eru tæki- færi til að tvinna saman varðveislu menningararfsins og fræðslu. En varðveisluhlutverkið? Þarna erum við svolítið komin inn á hlutverk stjórnvalda, sem hefur til dæmis með nýjum geymslum Þjóðminjasafnsins í Hafnarfirði sýnt Söfn eru eitt mest spennandi tæki sem við höfum að stjórnvöld leggja áherslu á varð- veislumálin. Við þurfum að aðstoða við að koma menningararfinum í öruggt skjól. Við verðum að varð- veita til framtíðar til að auka skiln- ing þeirra kynslóða sem nú eru að vaxa úr grasi og komandi kynslóða – til að vita hvert við erum að fara þá þurfum við að vita hvaðan við erum að koma svolítið til að skilja hvar við erum. Söfnin eru eitt mest spennandi tækið sem við höfum til þess að miðla sögu, listum og þau þurfa að vera fjölbreytt eins og þau eru – allskonar. Safnamenn og sveitarfélögin sem eru eigendur margra safna spyrja sig hvort eðlilegt sé að öllu fé safna- sjóðs sé nú úthlutað til verkefna – en ekki til daglegs rekstrar eins og áður var. Jafnvel þó kröfur til viður- kenndra safna hafi aukist. Hefur ráðherra ákveðna sýn á þetta eða er treyst á stefnumótun safnaráðs? Rekstrarstyrkirnir voru ekki felldir niður heldur voru þeir felldir undir almenna úthlutun í umsóknarferl- inu, þannig erum við að gera þetta. Hugmyndin var að við værum að efla grunnstarfsemina, t.d. í gegnum Öndvegisstyrki. En ég er mjög með- vituð um það að þarna er einhver svolítil togstreita, við finnum það auðvitað. Við vitum það hvað óvissa í rekstri getur dregið þrótt úr söfnun- um að vera með þá sýn sem ég var að kynna. Erfitt er að meta reynsluna af breyttum áherslum við úthlutun vegna áhrifanna af heimsfaraldr- inum en stuðningskerfi við söfnin þarfnast stöðugrar endurskoðunar. Safnstjórar verða að geta einbeitt sér að inntakinu, varðveislunni, miðlun- inni. Við þurfum líka að taka tillit til þeirra sem vilja standa utan við viðurkenningarferlið og kjósa það frelsi sem finnst utan ramma safna- laga. Við erum búin að vera í mikl- um uppbyggingarfasa í menningar- tengdri ferðaþjónustu og auðvitað hefur maður áhyggjur af því hvaða áhrif núverandi ástand hefur. Þetta þurfum við að fara yfir í vetur. Hvar standa söfnin okkar? Við verðum að hlúa að þessari flóru. Ég settist niður með Lilju Alfreðsdóttur mennta­ og menningarmálaráðherra á sólríkum mánudegi í ágúst og átti við hana spjall um ýmislegt sem tengist söfnum, rekstri þeirra og stefnu. Ritnefnd Kvist hafði í undirbúningi sett saman spurningalista með nokkuð tæknilegum spurningum um söfn, stjórnsýsluna, safnaráð og fleira. Ráðherra svaraði þeim spurningum hratt og örugglega en leiddi síðan talið að því sem brennur á henni varðandi miðlun og varðveislu menningararfsins og var augljóst af okkar spjalli að Lilja er bandamaður íslenskra safna – og kannski bara safna almennt.

x

Safnablaðið Kvistur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.