Safnablaðið Kvistur - 2020, Side 54

Safnablaðið Kvistur - 2020, Side 54
Frá upphafi var lögð rík áhersla á að tengjast skólasamfélaginu og gera skólum kleyft að nýta sýningarnar og efnið í í kennslu. Í þeim tilgangi var útbúið fræðsluefni sem var gert aðgengilegt á heimasíðu verkefnisins. Efnið var bæði hugsað sem ýtarefni til að styðja við heimsóknir á sýninguna en einnig var lagt upp með að skólar sem ekki áttu þess kost að heimsækja sýningarstaðina, t.d. vegna fjarlægðar frá þeim, gætu nýtt efnið heima í skólastofunni. Upplýsingar um hve margir skólar nýttu sér fræðsluefnið liggja ekki fyrir en aðsókn þeirra að sýningunni sjálfri var ekki ýkja mikil. Erfitt er að segja til um hvað olli því, mögulega hefði mátt standa öðruvísi að kynningu á verkefninu til kennara og tengja einstaka hluta þess skýrar við aðalnámskrá grunnskóla og hæfn- viðmið hennar. Þá er nokkuð ljóst að fjarlægð skólanna frá sýningarstöð- unum hefur í einhverjum tilfellum verið stór áhrifaþáttur. Það er einmitt ein af þeim áskorunum sem söfn og skólar víða um land standa frammi fyrir þegar kemur að safnfræðslu og hvernig skólar geta nýtt söfn í sinni kennslu. Aðgengi skóla að söfnum og öðrum menningarstofnunum er mjög mismunandi eftir því hvar þeir eru staðsettir. Sumir hafa söfn í göngufæri og geta auðveldlega tvinnað safna- heimsókn inn í sína kennslu á meðan aðrir þurfa um mjög langan veg að fara og þurfa því að standa í flókinni skipulagningu til að fara í slíkar heim- Allar lögðu stofnanirnar sitt af mörku til verkefnisins. Söfnin hýstu sýningarnar og lögðu til muni og sérþekkingu á sviði heimildaöflunar og sýningargerðar. Héraðsskjalasafn Austfirðinga gegndi lykilhlutverki þegar kom að heimildaöflun, Land- græðslan lagði til sérþekkingu á sviði menntunar til sjálfbærni og Skólaskrifstofan og Menntaskólinn tengdu verkefnið við skólasamfélagið. Hönnuðirnir Litten Nystrøm og Ingvi Örn Þorsteinsson voru fengin til að hanna sýningarnar og allt efni þeim tengt. Þar var áhersla lögð á einfald- leika og sjálfbærni. Áherslurnar birtust meðal annars í sérstökum stöndum sem voru hannaðir og smíðaðir fyrir sýninguna en þá er auðvelt að taka í sundur og geyma. Standarnir eru fyrirferðarlitlir og auðvelt að setja þá upp aftur og þeir hafa nú þegar nýst á öðrum sýningum safnanna. Síðast en ekki síst lagði Austurbrú til verk- efnastjóra sem hafði yfirsýn fyrir alla þætti verkefnisins og stillti saman strengi svo úr yrði heilstætt verk. Allir fjórir sýningarhlutarnir voru opnaðir á þjóðhátíðardaginn, 17. júni 2018, en verkefnið markaði eins og áður sagði umgjörð um öll hátíðarhöld á Austurlandi í tilefni fullveldisafmæl- isins. Auk sýninganna var sett upp heimasíða, austfirsktfullveldi.is, en þar mátti nálgast upplýsingar um ver- kefnið og aðra viðburði á Austurlandi. Þá var búið til sérstakt fræðsluefni fyrir skóla sem kennarar gátu nálgast á heimasíðunni og nýtt í tengslum við heimsóknir á sýninguna. Heimasíðan er ennþá opin og þar er enn hægt að nálgast þetta efni. Hápunktur verkefnisins var síðan vegleg fullveldishátíð sem fram fór í Menntaskólanum á Egilsstöðum 1. desember 2018 þar sem áhersla var lögð á unga fólkið og framtíðina. Þar voru allir fjórir hlutar sýningarinn- ar sameinaðir og sýndir sem heild í fyrsta sinn auk þess sem nemendur skólans, listamenn, hönnuðir og fleiri stigu á stokk og fögnuðu áfanganum með margvíslegum hætti. Verkefnið var sérstakt á margan hátt. Í fyrsta lagi var hér um að ræða einstakt samstarfsverkefni þar sem níu ólíkar stofnanir tóku höndum saman með söfn í fararbroddi til að skapa sýningu sem bæði var ætlað að fræða og vekja til umhugsunar. Í öðru lagi teygði sýningin anga sína inn á fjögur mismunandi söfn á Austurlandi sem hvatti íbúa og gesti fjórðungsins til að sækja allar þessar stofnanir heim og vakti athygli á fjöl- breytti safnaflóru svæðisins. Í þriðja lagi var umfjöllunarefnið nýstárlegt og nálgunin frumleg. Þarna nýttu söfnin tækifærið til að taka á stórum málum eins og sjálfbærni, loftslagsbreyting- um og heimsmarkmiðunum. Síðast en ekki síst má nefna hönnun sýningar- innar og alls efnis í kringum hana en þar voru einfaldleikinn hafður að leiðarljósi sem skilaði sér í stílhreinum og áhrifamiklum sýningum þar sem aðalatriðin voru í forgrunni. Hvernig tókst til? Almenn ánægja var meðal allra sem að verkefninu komu um hvernig til tókst. Sýningarnar vöktu athygli meðal gesta safnanna og greinilegt að þeim þóttu sögur barnanna áhrifa- ríkar og að þær fengu fólk til að leiða hugann að eigin aðstæðum, fortíðinni og framtíðinni. Samspil gripa úr safn- kosti safnanna og úr nútímanum var skemmtilegt og myndaði áþreifanlegar tengingar við efnið. 56

x

Safnablaðið Kvistur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.