Freyr - 15.12.1967, Blaðsíða 20
Svona er umhorfs á Vallastað í dag
sæll af sóknarbörnum sínum, en búhöldur
mun hann ekki hafa verið mikill. Kona
hans var Valgerður, dóttir Jóns prests í
Steinnesi Jónssonar og komust fimm af
börnum þeirra til fullorðinsára. Er list-
fengi og fögur söngrödd víða í ættum
þeirra.
Orgel kom í kirkjuna 1 tíð séra Tómasar
og var fyrsti organistinn Jón Stefánsson,
sem lengi bjó í Hánefsstöðum. Hann var
tónelskur með afbrigðum og smíðaði sjálf-
ur langspil.
í ágústmánuði 1901 var föður mínum,
Stefáni Baldvini Kristinssyni, veitt Valla-
brauð, og vígður til staðarins mánuði síðar.
Hann var söngmaður góður og margar ræð-
ur hans festust í minni manna. Þjónaði
hann Völlum alla sína embættistíð, þar til
hann varð fyrir aldurs sakir að láta af em-
bætíi árið 1941. Faðir minn var sonur Krist-
ins Tryggva Stefánssonar Baldvinssonar
prests á Upsum Þorsteinssonar, og Kristín-
ar Hólmfríðar Þorvaldsdóttur frá Krossum,
en móðir hennar var dóttir séra Baldvins
og þau hjón því systkinabörn. Séra Bald-
vin var bróðir þeirra Vallapresta Stefáns
og Kristjáns.
Þegar faðir minn tók við staðnum, var
húsakostur ekki góður og réðst hann því
fljótlega í byggingu íbúðarhúss úr timbri á
hlöðnum steinkjallara. Þótti það mikil og
góð vistarvera á þess tíma mælikvarða,
geymslur í kjallara, tvær stofur, skrifstofa
og eldhús á aðalhæðinni, en 1 risi ein stofa
í kvisti og fjögur smáherbergi. Gamla bað-
stofan var tengd timburhúsinu með bæjar-
göngum, sem enduðu í skúrbyggingu við
bakdyr hússins. Var baðstofan endurbyggð
1929.
Mannmargt var í heimili á Völlum, gest-
komur tíðar og alloft tekið húsnæði undir
skólahald fyrir börn og unglinga á vetrum.
Söngæfingar, bæði kirkjukóra og annarra,
voru oft haldnar inni í stofunum og stund-
um fengum við krakkarnir að efna til
skemmtisamkoma, eins og þegar við vorum
að safna fé til sundskálabyggingar. Hvern
messudag var sjálfsagt að kirkjugestir
482
F R E Y R