Skessuhorn


Skessuhorn - 03.06.2020, Blaðsíða 40

Skessuhorn - 03.06.2020, Blaðsíða 40
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 201940 Horft yfir liðið ár og litið til þess nýjaSjómannadagurinn johannes Simonsen er hálfsextug- ur Færeyingur sem í áratugi hefur verið búsettur á Akranesi. Hann er fæddur í Þórshöfn í Færeyjum 1965 og ólst þar upp. johannes segir að uppeldið hafi einkennst af frjáls- ræði og sterkri tengingu við náttúru eyjanna, ekki ósvipað og hjá strák- um á hans aldri sem á sama tíma voru að alast upp í sjávarútvegs- bænum Akranesi. „Við krakkarn- ir vorum að leika okkur í fjörunni og á bryggjunni og svo var laumast í fuglabjörgin. Í rauninni vorum við að læra að verða sjálfstæðir, þetta frjálsræði mótaði okkur og efldi frumkvæði einstaklingsins, eitthvað sem í mínum huga er nauðsyn- legt öllum sem vilja spjara sig í líf- inu. nú þegar ég hætti launavinnu hjá öðrum atvinnurekanda var fyrsta vers hjá mér að kaupa stærri trillu og hefja útgerð. Það var allt- af draumur minn, allt frá því ég var polli,“ segir hann í upphafi samtals við blaðamann. Strax og tognaði úr stráknum úti í Færeyjum var johannes farinn að vinna fyrir sér. Byrjaði ungur á sjó, eins og raunin er með marga Fær- eyinga, en kláraði menntaskóla- nám í Þórshöfn. Eftir það lá leiðin hingað til Íslands þar sem johann- es kynntist verðandi eiginkonu sinni Þórdísi Skúladóttur frá Akra- nesi. Þau eiga þrjú börn en Þórdís átti einn son fyrir. Eftir flutning á Akranes vann johannes fyrst við smíðar með tengdaföður sínum og mági. Eftir það lá leiðin aftur á sjó- inn, fyrst á togurum frá Akranesi en síðan á frystitogara frá Skagaströnd og þar bjó fjölskyldan um tíma. Þegar johannes var kominn yfir þrítugt söðlaði hann svo algjörlega um. Hélt í verkfræðinám til Dan- merkur. Eftir fjögurra ára nám fékk hann vinnu hjá Skaganum sem þá var hratt að vaxa upp sem lausna- miðað framleiðslufyrirtæki á fisk- vinnslutækjum. Reynslan johann- esar af sjónum og verkfræðinámið nýttust honum og ekki síður Skag- anum vel við þróun hátækni fisk- vinnslubúnaðar. Allir þekkja ævin- týralegan vöxt og velgengni fyrir- tækisins. Hjá Skaganum 3X starfaði johannes samfleytt fram til 2019. „Þegar ég missti vinnuna stóð ég á tímamótum. nærtækast var að sækja aftur á sjóinn, til þess lífs sem ég þekkti kannski einna best til og líkar auk þess best við. Ég hafði alla tíð haft gaman að fiskveiðum, átti opinn bát hér á Akranesi og hef haft unun af því að róa til fiskjar, nú eða stunda silungsveiðar upp til lands- ins. nú hef ég ásamt Marinó Frey syni mínum keypt stærri bát, Guð- mund Þór AK-99, og gerum við út ýmist héðan frá Akranesi eða frá öðrum höfnum á suðvesturhorninu þar sem besta fiskinn er að fá hverju sinni.“ johannes er formaður Smá- bátafélagsins Sæljóns og brennur fyrir að útgerð smábáta við Íslands- strendur geti eflst og dafnað. Rætt er við hann um stöðu smábátaút- gerðar, hugsanlega kvótasetningu í grásleppu og framtíð fiskveiða á smærri bátum. Mæst á miðri leið Þegar johannes missti vinnuna á síðasta ári ákvað hann að fara á sjó. Hann hafði átt lítinn bát, Glódísi AK, en ákvað að fá sér meira sjó- skip og byrja að gera út án þess að eiga kvóta. „Ég kom mér í sam- band við útgerðarmann á Breið- dalsvík sem vildi selja bát sinn Guðmund Þór, 12 brúttótonna bát. Þessi bátur hafði upphaflega verið á snurvoð en var lengdur og breytt mikið árið 2015. „Þetta er mjög góður sjóbátur. Við feðgar höfum verið að leigja kvóta í vet- ur en verðum svo á strandveið- um í sumar. Það er útgerðarfélag- ið Arnarholt sem við feðgar höf- um um reksturinn. Seljandi Guð- mundar Þórs vildi taka Glódísina uppí. Þegar við vorum búnir að koma okkur saman um verð fyrir báða bátana sigldum við af stað og ákváðum að mætast á miðri leið í stað þess að keyra með þá landleið- ina. Þetta voru þannig lagað mjög óvenjuleg viðskipti sem byggðust á trausti sem sjaldgæft er í viðskipt- um nú til taks. Bátaskiptin áttu sér einfaldlega stað úti á rúmsjó utan við Höfn í Hornafirði. Við bund- um bátana saman og hann kenndi mér á helstu siglingatækin og svo hélt hvor í sína áttina. Við vor- um ekki búnir að ganga frá kaup- samningi en í kjölfarið fylgdi mikil vinna við afléttingu veða og papp- írsþátturinn allur sem er ótrúlega seinlegur. Þremur mánuðum síð- ar var sú vinna afstaðin og skrifað undir afsal.“ 75% í leiguverð fyrir kvótann Frá því um áramót hafa þeir jo- hannes og Marinó Freyr verið á veiðum, ýmist frá Akranesi en gerðu um tíma út frá Vestmanna- eyjum og héldu þá til í bátnum. Við gerðum rétt í því að fara til Eyja, þar var botnlaust fiskerí um tíma í vor.“ Svo snéru þeir feðgar til strandveiða þegar leið á maí. „Við eigum ekki kvóta og höfum því ver- ið að leigja kvóta á markaði í vetur. En umsvif okkar sem stundum slík- ar veiðar eru ekki eðlileg, geta ekki orðið það ef mið er tekið af leigu- verði fyrir kvóta.“ jóhannes sýnir blaðamanni útprentun af uppgjöri frá Reiknistofu fiskmarkaða frá því 19. mars síðastliðinn um veið- ar Guðmundar Þórs AK og uppgjör vikuna áður. Brúttó afli þorsks var þá vikuna 11,2 tonn á bátnum og meðalverðið 280 krónur. Veltan var því 3.151 þúsund krónur. Kostnað- urinn var svo þessi: Leiguverð fyr- ir kvótann var 2.370 þúsund krón- ur, aflagjöld í Akraneshöfn tæpar 50 þúsund krónur, fiskmarkaður- inn fékk 124 þúsund krónur fyr- ir að selja fiskinn, auðlindagjald var 112 þúsund krónur auk annars kostnaðar. Brúttó höfðu þeir feðg- ar 404 þúsund krónur eftir til að greiða sér laun og greiða af bátnum sínum. nákvæmlega 75% af heild- ar aflaverðmæti þessarar viku rann því beint til handhafa kvótans sem veitt var út á. „Staðreyndin er sú að hvert tonn í veiðiheimildum kostar á þriðju milljón króna ef þú kaupir. Til að geta til dæmis átt tíu tonna kvóta þarftu að fjárfesta fyrir 25-30 millj- ónir. Ríkið er því ekki að innheimta nema einn tuttugasta í auðlindagjald af því sem við erum að borga fyrir að fá að veiða fiskinn. Auðlindagjaldið er því smáaurar í samanburði við það sem handhafar kvótans eru að fá. Þarna liggur vandi okkar smá- bátakarlanna í hnotskurn. nýlið- un er því nánast útilokuð og sam- þjöppun hefur aukist.“ johannes segir að veiðar út á leigukvóta hafi verið nær vonlausar um tíma í vet- ur þar sem fiskverð hríðféll í kjölfar þess að markaðir ytra lokuðust út af Covid-19. „Ráðherra ákvað nýlega að leyfa mönnum að geyma 25% af afla þessa fiskveiðiárs í sjónum. Því hættu margir veiðum og ákváðu að geyma fjórðung kvótans fram á næsta fiskveiðiár. Við það hækkaði verðið á markaði og fékk ég til að mynda 420 krónur fyrir kílóið af stórum þorski sem ég landaði síð- astliðinn fimmtudag.“ Þrjár stoðir smábátaútgerðar En við færum nú talið að stöðu smábátaútgerðar, enda er johann- es formaður Sæljóns, smábátafélags Akraness. Hann brennur fyrir hags- munum síns félags. „Í dag byggir kerfið í kringum smábátaútgerð og nýliðun í greininni á þremur meg- instoðum. Það er byggðakvóti, grá- sleppuveiðar og strandveiðar. Aðra möguleika eiga menn ekki til að hefja útgerð, eigi þeir ekki sjálfir kvóta. Í raun má því segja að smá- bátaútgerð sé blómlegust á þeim Johannes Simonsen er formaður smábátafélagsins Sæljóns á Akranesi: „Framtíð smábátaútgerðar byggir á þremur megin stoðum“ Johannes Simonsen. Johannes Simonsen undir stýri á báti sínum Guðmundi Þór AK-99. Í sjóstangaveiðiferð utan við Akranes á litla opna bátnum sem hann átti áður. Ljósm HB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.