Skessuhorn - 03.06.2020, Page 52
MIÐVIKUDAGUR 3. júnÍ 202052
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Vísnahorn
jæja gott fólk. nú er
blessað birkið að springa
út og rétt að rifja upp orð
jakobs á Varmalæk:
Ilmur þinn með blænum berst
birkilaufið væna.
Ennþá hefur undrið gerst,
undrið fagurgræna.
Aðstæðurnar í þjóðfélaginu og svosem
heiminum öllum hafa valdið mörgum óþæg-
indum og tekjumissi að undanförnu en ein-
hvern veginn verðum við nú að halda eyðsl-
unni áfram. Eru samt nokkur ár síðan Sigfús
jónsson orti:
Jafnvel þó að nú sé neyð
nærist eyðslugenið,
allir stefna eina leið
ofan í skuldafenið.
Sigurður Hansen hinsvegar veit það mæta-
vel að það dugir ekki annað en stinga við fót-
um ef ekki á illa að fara í fjármálunum.
Hér skal reynt að varða veginn,
velta steini í skuldadíkið,
svo við kannske kreditmegin
komumst inn í himnaríkið.
Lengi hafa menn iðkað þá íþrótt að snúa út
úr vísum annarra og yrkja upp með þá breytt-
um áherslum. Steingrímur Thorsteinsson
orti á sinni tíð:
Stormur lægir stríður.
Stillist æstur sær.
Yfir landið líður
léttur hægur blær.
Þórbergur Þórðarson sneri síðan út úr
þessu undir dulnefninu Styr Stofuglamm:
Stormur æðir stríður
steypist Akrafjall.
Yfir landið líður
lítill piparkall.
Sjómannadagurinn er nú alveg á næstu
grösum eða næsta bárufaldi og væri full þörf
að sú starfsstétt fengi nú einhverja umfjöllun.
Sigurður Helgason frá jörfa orti um skip sem
nefnt var Vogsskeiðin:
Byrinn flýtir bragna för
boðar spýta hrönnum.
Skeiðin þýtur eins og ör
undir nítján mönnum.
Vogsskeiðin var mikið skip. Tólfróin og
notuð til ýmissa flutninga meðal annars. Um
hana kvað Sigurður einnig:
Leið er flogin furðu nett,
freyðir bogin alda.
Skeið frá Vogi rennur rétt
reyðar sogið kalda.
Margir muna eftir Akraborginni sem lengi
hélt uppi ferðum milli Akraness og Reykja-
víkur. Fyrst man ég eftir Laxfossi gamla en
á milli Laxfoss og Akraborgarinnar fyrri var
Fagranesið í förum. Þar var Sigríkur Sigríks-
son stýrimaður og eitt sinn er hann kom að
taka farseðla hafði Sigurdór Sigurðsson skrif-
að á sinn:
Keypti ég fyrir krónur tvær
kulda og slagvatns-fýlu.
Sigríkur leit á miðann og segir nánast við-
stöðulaust:
Frekt er logið. Fyrir þær
fórstu á tólftu mílu.
Sigurður Bjarnason frá Katadal orti á heim-
leið úr róðri:
Tíðum breiðum brims af geim
byr þá reiða söng um
fríðar skeiðar héldu heim
hlaðnar veiðiföngum.
Einn ágætur granni Magnúsar Teitssonar
var með bát sinn við saltuppskipun og sat á
kvarteli við stjórnina. Manni þessum var svo
farið að hann vildi gjarnan vinna hjá öðrum
en ekki endilega láta verkið ganga mjög greitt.
Það var drýgra í tímaskriftinni. nú henti það
hann í blíðviðri að báturinn steytti á skeri og
beið hann þá rólegur meðan féll undir skipið
svo það losnaði. Þá kvað Magnús:
Yfir bjartan bárupart
berst með hjarta ólinu.
Grætur vart, þótt gangi ei hart
Grímur á kvartelinu.
Gísli Gíslason hét maður og kenndur við
Lágmúla á Skaga. Gjarnan nefndur Gísli Lági
af Skaganum. Um hann orti Lúðvík Kemp
brag þar sem sú nafngift var lokahending
hverrar vísu
Beitti að háu boðunum
bátnum smáa í ofviðrum.
Grillti og brá við grönunum
Gísli Lági af Skaganum.
Þessi er einnig eftir Kemp og um þann hinn
sama Gísla:
Þó að sjáarbára blá
belgja nái túla
gengur ráargöltinn á
Gísli á Lágamúla.
Lengi var það siður að yrkja formannavísur
í verstöðvum en einhverjum snillingum datt í
hug að búa til ímyndaða verstöð og yrkja um
þekktustu umrenninga og letingja landsins.
„Formannatal í Letingjavogum í Ómennsku-
veri.“ Höfundar munu hafa verið fleiri en
einn en væntanlega Gísli Konráðsson meðal
þeirra en hér kemur sýnishorn af þeirri fram-
leiðslu:
Reglum þjónar tamar tón
til konbónar rofa
negluljón á fiskafrón
færir Jón í Kofa.
Gangs til fallinn kaskur kall
krás af sallar járni
þangs til vallar þeisti snjall
þrátt Beinhallar Árni.
Þessi vagar viður dag
verkum hagar súða
essi lagar eykur slag
Ólafur Skagabrúða.
Æðir þessi öldungess
opt þó hvessing lerki
græðis essi gjarnan hress
Gísli prestsson sterki.
Ákveðin vandamál gátu gert vart við sig fyr-
ir tíma þilskipanna og reyndar er ég ekki viss
nema þau hafi jafnvel látið á sér kræla á skútu-
öldinni. Einar á Reykjarhóli var eitt sinn á sjó
en kunni ekki að bera sig til líkt og vanir sjó-
menn við tilteknar aðgerðir. Leit í kringum
sig og kvað:
Enginn hólmi á sjónum sést.
Svartara hef ég aldrei litið.
Það er orðið erfitt flest
Einar getur hvergi skitið.
Annar Skagfirðingur, Hallgrímur á Steini,
orti um nágranna sinn:
Höskuldur vill hafa fisk,
hirðir hvorki um slór né dorsk,
röskur undir Reykjadisk
roskinn dró þar margan þorsk.
Með þökk fyrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Svo við kannske kreditmegin - komumst inn í himnaríkið