Morgunblaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2020
talsins. Í hverfið hefur vantað ýmsa
þjónustu, svo sem verslanir og
skóla, en úr því verður bætt í
Bryggjuhverfi vestur.
Þá bendir Ágústa á að margvísleg
þjónustufyrirtæki og verslanir sé
nú þegar að finna í næsta nágrenni,
á Ártúnshöfðanum. Fyrsta lota í
uppbyggingu Borgarlínu geri ráð
fyrir fyrir að ein af aðaltengistöðv-
unum verði við Breiðhöfða á Ár-
túnshöfða. Til að tengja hverfið við
Höfðann, og þar með Borgarlínu, sé
nú unnið að gerð aflíðandi stígs og
tröppustígs um Bryggjubrekku sem
verður hluti af stígakerfi borgar-
innar.
Deiliskipulagssvæði Bryggju-
hverfis vestur er 14 hektarar og
gerir ráð fyrir íbúðabyggð ásamt
tilheyrandi nærþjónustu. Gert er
ráð fyrir rúmlega 100 þúsund fer-
metrum nýbygginga ofanjarðar.
Sem fyrr segir verður hluti bygg-
inga reistur á landfyllingum og sá
Björgun ehf. um það verk.
Heiti sækonunga í þulum Snorra-
Eddu verða notuð sem nöfn á nýjum
götum í Bryggjuhverfi við Elliðaár-
vog. Þetta var tillaga nafnanefndar
Reykjavíkur, sem var samþykkt.
Umræddar götur, sem eru á
svæði 1, munu heita Beimabryggja,
Buðlabryggja, Endilsbryggja,
Gjúkabryggja og Leifnisbryggja.
Jafnframt hefur verið lagt fram
erindi nafnanefndar þar sem gerð
er tillaga að nöfnum gatna á svæði 2
í Elliðaárvogi. Göturnar þar munu
heita: Álabryggja, Eitilsbryggja,
Gautreksbryggja, Geitisbryggja,
Hakabryggja, Högnabryggja,
Lyngvabryggja, Mundilsbryggja og
Rökkvabryggja.
Hús rísa í Bryggjuhverfi vestur
Búseti og Bjarg eru að reisa sex hús með 124 íbúðum Nýtt íbúahverfi verður byggt á fyrrver-
andi lóð Björgunar og landfyllingum Lögð verður áhersla á að íbúar hafi gott aðgengi að sjónum
ÁTVR hefur ákveðið að hefja við-
ræður við Eik fasteignafélag um
áframhaldandi leigu á húsnæði við
Borgartún fyrir vínbúð.
Í október síðastliðnum óskuðu
Ríkiskaup fyrir hönd Vínbúðarinnar
eftir að taka á leigu húsnæði fyrir
vínbúð í Reykjavík. Birtist auglýsing
þess efnis í dagblöðunum.
Fram kemur á vef Ríkiskaupa að
tvö félög hafi svarað auglýsingunni,
Eik fasteignafélag og Íþaka ehf.
Niðurstaðan varð sú að ganga til
samninga við Eik.
Í auglýsingunni kom fram að hús-
næðið skuli vera á svæði sem af-
markast í grófum dráttum af
Kringlumýrarbraut, Skipholti, Bar-
ónsstíg og Sæbraut. Á þessu svæði
er nú þegar að finna vínbúð, sem
staðsett er í Borgartúni 26. Sú versl-
un var opnuð í maí árið 2008.
Sigrún Ósk Sigurðardóttir, að-
stoðarforstjóri ÁTVR, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að núverandi
leigusamningur fyrir vínbúðina í
Borgartúni væri að renna út. Því
væri staðan á húsnæðismarkaði
könnuð en ekki stæði til að bæta við
búð í þessum hluta borgarinnar.
ÁTVR rekur nú 14 vínbúðir á höf-
uðborgarsvæðinu og 37 vínbúðir á
landsbyggðinni, samkvæmt yfirliti á
heimasíðu fyrirtækisins. sisi@mbl.is
Ljósmynd/ÁTVR
Borgartún 26 Nú stefnir allt í að Vínbúðin verði áfram rekin á þessum stað.
Vínbúðin verður
áfram í Borgartúni
Búseti er húsnæðissamvinnu-
félag að norrænni fyrirmynd
sem býður upp á fasteignir af
fjölbreyttum stærðum og gerð-
um á höfuðborgarsvæðinu.
Kaup á búseturétti er val-
kostur fyrir þá sem vilja búa
við öryggi og festu en vilja
ekki endilega kaupa fasteign,
segir á heimasíðu félagsins.
Félagsmenn Búseta eru yfir
5.000 talsins og rúmlega
1.000 af þeim eru búseturétt-
arhafar.
Bjarg íbúðafélag er húsnæð-
issjálfseignarstofnun stofnuð
af ASÍ og BSRB. Félaginu er
ætlað að tryggja einstaklingum
og fjölskyldum á vinnumarkaði
aðgengi að öruggu íbúðar-
húsnæði í langtímaleigu.
Búseta til
langs tíma
BJARG OG BÚSETI
Ljósmynd/Búseti
Bryggjuhverfi vestur Húsin rísa vestan við eldra hverfið. Fremst eru landfyllingar sem síðar verður byggt á.
Tölvumynd/Arkþing
Nýju húsin Útlitsmynd af nýjum íbúðum sem Bjarg og Búseti eru að byggja
í Bryggjuhverfi vestur, þau fyrstu í nýja hverfinu. Húsin mynda randbyggð.
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Fyrstu húsin eru byrjuð að rísa í
nýju íbúðahverfi Reykjavíkur,
Bryggjuhverfi vestur. Þarna er gert
ráð fyrir allt að 850 íbúðum, að
hluta til á landfyllingum og að hluta
til á athafnasvæði Björgunar ehf. í
Sævarhöfða, en fyrirtækið hefur
sem kunnugt er hætt starfsemi þar.
Það eru Búseti húsnæðis-
samvinnufélag og Bjarg íbúðafélag
sem byggja á sameiginlegum bygg-
ingarreit 124 íbúðir í sex húsum í
austurhluta nýja hverfisins. Ark-
þing annaðist arkitektahönnun og
Ístak er byggingarverktaki.
Þótt byggt sé á sameiginlegum
reit eru félögin hvort með sínar
áherslur, segir Ágústa Guðmunds-
dóttir, sölu- og markaðsstjóri Bú-
seta. Fyrsta skóflustunga var tekin
í júní 2020 og gert er ráð fyrir því að
íbúðirnar verði tilbúnar seinni hluta
ársins 2021. Húsin munu mynda
randbyggð sem umlykur sameig-
inlegt garðrými.
Við Beimabryggju 5 reisir Búseti
fjögurra hæða hús með mænisþaki
þar sem verða 26 íbúðir 2ja, 3ja og
4ra herbergja, á stærðarbilinu 43-
90 fermetrar.
Áhersla lögð á skjól og birtu
Að sögn Ágústu var við hönnun
húsanna lögð áhersla á skjólmynd-
un og heppilega afstöðu til sólar.
„Hverfið á að þróa á skemmtilegan
hátt og þar er meðal annars gert
ráð fyrir vel útfærðu torgi sem
myndar miðpunkt hverfisins. Lögð
verður áhersla á að íbúar hafi að-
gengi að sjónum til að njóta útsýn-
isins og manngerðrar fjöru með
þrepastöllum, þar sem hægt verður
að setjast niður.“
Bryggjuhverfi austur, við Elliða-
árvog/Grafarvog, er fullbyggt. Upp-
byggingin hófst fyrir rúmlega 20 ár-
um, eða árið 1998. Þarna eru nú 600
íbúðir og skráðir íbúar um 1.100
Bolholti 4 • 105 Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a
Úrval aukahluta:
Hulstur, Hleðslutæki, Snúrur,
Minniskort, USB lyklar og fleira
VIÐ GERUM VIÐ
allar tegundir síma,
spjaldtölva, tölva og dróna
Bolholt 4