Vinnan - 01.05.1966, Side 7

Vinnan - 01.05.1966, Side 7
u innan 5 in, sem áður virtust óleysanleg, leysast eins og af sjálfu sér. Á Dagsbrúnarfundi 28. október 1915 ber Ottó N. Þorláksson fram svohljóðandi tillögu: „Fundurinn óskar eftir, að samband komist á milli Dagsbrúnarfélagsins, Hásetafélagsins, Verkakvenna- félagsins, Prentarafélagsins og Bókbindarafélagsins, og kýs 2 menn til að koma þeim í framkvæmd í samráði við væntanlegar nefndir úr ofangreindum félögum.“ Tillagan var samþykkt einróma og Prentarafélag- inu, Hásetafélaginu, Bókbandssveinafélaginu og Verkakvennafélaginu Framsókn skrifað, og þau beðin hvert um sig að kjósa tvo menn í sameiginlega nefnd til undirbúnings sambandsstofnun. Um þetta segir svo í 10 ára starfssögu Sjómanna- félags Reykjavíkur: „Á fundi 3. nóv. var lesið bréf frá Verkamanna- félaginu Dagsbrún með áskorun til Hásetafélagsins um að kjósa tvo menn, til þess að undirbúa stofnun verkamannasambands (Alþýðusambands íslands). Var það samþykkt einum rómi, og kosnir þeir Jónas Jóns- son frá Hriflu og Guðleifur Hjörleifsson.“ Um viðbrögð Hins íslenzka prentarafélags við er- indinu fáum við að vita af eftirfarandi bókun í gjörða- bók þess, 9. marz 1916: „Loks gat formaður þess, að stjórnin hefði skipað þá Jón Þórðarson og Guðjón Einarsson til þess, ásamt nefndum úr öðrum verkalýðsfélögum hér í bænum að koma á sambandi milli félaganna, samkvæmt til- mælum frá Dagsbrúnarfélaginu . . . Hefði samvinnu- nefnd sú nú lokið störfum sínum, og væri árangur- inn sambandslagafrumvarp það, er nú væri lagt fyrir þennan fund. ■— Jón Þórðarson las frumvarp til laga fyrir Alþýðusamband íslands og talaði nokkur orð því til skýringar.“ Gerði Prentarafélagið síðan ályktun um, að það aðhylltist frumvarpið. Svipað þessu hefur málið sjálfsagt borið að í hin- um félögunum. Fulltrúar Bókbandssveinafélagsins í undirbúningsnefndinni voru Þorleifur Gunnarsson og Gísli Guðmundsson. Fulltrúar Verkakvennafélagsins Framsóknar frú Jónína Jónatansdóttir og frú Karó- lína Siemsen. Dagsbrún hafði kosið þá Ottó N. Þor- láksson og Ólaf Friðriksson í nefndina. Nefndin fól síðan Jónasi Jónssyni frá Hriflu að semja drög að sambandslögum, sem hann og gerði. Lengi var á sveimi all sérkennileg saga um, að frumrit að lögum Alþýðusambandsins hefði verið til með rithönd Jónasar frá Hriflu, og hvernig það hefði glatazt. Er nú ljóst, að þetta var rétt. Sambandslaganefndin lauk lagasmíð sinni í febrúar 1916. Var Jónasi, Ólafi Friðrikssyni og Þorleifi Gunn- arssyni falið að leggja síðustu hönd á lögin. Fyrr um haustið 1915 höfðu þeir Ólafur og Jónas átt náið samstarf um undirbúning að stofnun Háseta- félagsins. Samtímis hóf svo sambandslaganefndin í umboði félaga sinna víðtækan undirbúning að fram- boði til bæjarstjórnarkosninga í Reykjavík. Þar var teflt fram í fyrsta sæti Jörundi Brynjólfssyni. Einnig þarna voru þeir Ólafur og Jónas að verki í öllu því skipulagningar- og áróðursstarfi, sem á undan gekk. — í þessum bæjarstjórnarkosningum í ársbyrjun 1916 Ólafur Friðriksson unnu verkalýðsfélögin einstæðan stórsigur, fengu þrjá bæjarfulltrúa kosna af 5, er kjósa skyldi. Það voru þessir sigurglöðu menn, sem nú höfðu öðlazt náin kynni af mætti samtakanna — sem fylgdu sigrinum eftir og létu til skarar skríða um stofnun Alþýðusambands íslands hinn 12. marz 1916. Fyrsta stjórn sambandsins var kosin á framhalds- stofnfundi viku síðar, hinn 19. marz 1916. Upphafsorð stofnfundargerðarinnar voru þessi: „Stofnfundur sambandsþings Alþýðusambands fs- lands var settur og haldinn í Báruhúsinu sunnudag- inn 12. marz 1916 kl. 3,30 síðdegis. Fundinn setti Jónas Jónsson frá Hriflu. Fundarstjóri var kosinn Þor- leifur bókbandssveinn Gunnarsson, en ritari Jón prentari Baldvinsson.“ Fundargerð þessi er með rithönd Jóns Baldvinsson- ar, sem var ritari á stofnþinginu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.