Vinnan - 01.05.1966, Page 54
vinnan
laganna í Árnessýslu, en auk þess
hefur það sérstakan sjómanna-
samning við útgerðarmenn á
Stokkseyri.
Félagsmenn eru nú rúmlega 150
að tölu.
Núverandi stjórn félagsins skipa:
Björgvin Sigurðsson form. Helgi
Sigurðsson, Grétar Zóphóníasson,
Frímann Sigurðsson og Gisli Magn-
ússon.
Verkalýðsfélag Norðfirðinga
Verkalýðsfélag Norðfirðinga er
stofnað 23. maí árið 1922 í Góð-
templarahúsinu í Neskaupstað.
Fyrsti formaður þess var Jón
Rafnsson (yngri).
Með honum í fyrstu stjórn voru:
Guðjón Símonarson og Vigfús Sig-
urðsson.
Jón Rafnsson
Stofnendur og aðalhvatamenn
þess, að félagið var stofnað, voru:
Ólafur Friðriksson Guðjón Sím-
onarson, Jón Rafnsson og fleiri.
Lengst hefur verið formaður fé-
lagsins Jóhannes Stefánsson.
Félagssvæðið er í lögum félagsins
ákveðið lögsagnarumdæmi Nes-
kaupstaðar.
í Alþýðusamband íslands gekk
félagið strax við stofnun þess.
Núverandi stjórn félagsins skipa
þessir menn:
Örn Scheving formaður, Hilmar
Björnsson varaform., Elías Kristj-
ánsson ritari, Sigfinnur Karlsson
gjaldkeri.
Meðstj órnendur eru: Fanney
Gunnarsdóttir, Karl Jörgensen og
Aðalheiður Árnadóttir.
Júlíus Þórarinsson
Verkalýðsfélagið Afurelding,
Hellissandi
Verkalýðsfélagið Afturelding er
stofnað á Hellissandi 15. júlí árið
1922 og hét þá Verkalýðsfélag Hell-
issands.
Það mun hafa verið 1936 eða
1937, sem nafni félagsins var breytt
í Verkalýðsfélagið Afturelding.
Hafði þá starf félagsins legið niðri
að mestu um nokkurt skeið.
Lengst allra var Júlíus Þórar-
insson verkamaður formaður fé-
lagsins. Hann var einn af stofn-
endum þess, og í stjórn félagsins
frá stofndegi og til dauðadags, eða
um 40 ára skeið.
Félagssvæði Aftureldingar er
Neshreppur utan Ennis.
Félagið gekk í Alþýðusamband
íslands 5. nóvember árið 1924.
Pöntunarfélag fyrir félagsmenn
var stofnað á vegum verkalýðsfé-
lagsins.
Þá stofnaði félagið einnig sjúkra-
sjóð rétt upp úr 1930.
Félagsmenn eru nú um 50.
Núverandi stjórn skipa:
Steingrímur Guðmundsson, for-
maður, Sigurður S. Sigurjónsson,
Markús Guðmundsson, Cyrus Daní-
elsson og Jörundur Þórðarson.
Verkakvennafélagið Framtíðin
Félagið er stofnað 3. desember
árið 1925 að Austurgötu 26, Hafn-
arfirði.
Fyrsti formaður félagsins var
Sigrún Baldvinsdóttir, alsystir
Jóns Baldvinssonar forseta Alþýðu-
sambands íslands.
í stjórn með henni voru:
Guðfinna Ólafsdóttir gjaldkeri,
Jónína Sigurðardóttir fjm. ritari,
Sigurrós Sveinsdóttir varaform.,
Guðlaug Bachmann ritari.
Fyrrnefndar stjórnarkonur höfðu
forgöngu um stofnun félagsins
ásamt nokkrum öðrum.
Sigrún Baldvinsdóttir
Sigurrós Sveinsdóttir hefur
lengst allra verið formaður félags-
ins.
Félagssvæðið nær yfir Hafnar-
fjörð og Garðahrepp.
Dagheimili Verkakvennafélagsins Framtíðarinnar.