Vinnan - 01.05.1966, Page 12

Vinnan - 01.05.1966, Page 12
i/tntian Stefán Jóh. Stefánsson: Þakkir og árnaðaróskir Átta árum eftir stofnun Alþýðusambands íslands, eða 1924, var ég kosinn í stjórn Alþýðusambandsins, en þá voru í gildi, eins og alkunnugt er, þau ákvæði, sem tengdu saman í skipulagslega heild, bæði Alþýðu- flokkinn og Alþýðusambandið, og héldust þeir skipu- lagshættir óbreyttir fram til ársins 1940, og allt fram til þess tíma sat ég í sameiginlegri stjórn beggja sam- takanna og var ritari þeirra á árunum 1928—1938. En er Jón Baldvinsson dó, 17. marz 1938, tók ég við störfum hans sem sameiginlegur forseti Alþýðuflokks- ins og Alþýðusambandsins og var það fram til þess tíma að formleg tengsl voru rofin milli þessara tveggja samtaka. Þó að störf mín væru frá upphafi meira tengd stjórnmálum en verkalýðsmálum, þá ræður það að lík- um, að ég kynntist mikið Alþýðusambandi íslands, störfum þess og baráttu í sambandi við verklýðsmál- efni, með því að sitja í stjórn þess samfleytt í 16 ár. Ég vildi sannarlega ekki hafa misst af þeirri reynslu, og ég vil segja þekkingu, sem ég á þeim árum fékk af baráttu verkalýðsins, störfum hans og þörfum, þroska og skilningi, og hlutverki hans í þjóðfélaginu. Kynni mín af Alþýðusambandinu, opnuðu augu mín fyrir mörgu, er áður var mér ekki nægilega ljóst. Og þó ég hafi, ég vil segja fyrr og síðar, oft haft aðrar skoðanir á mörgum málum en ýmsir af þeim mönnum, er valizt hafa til forystu í verkalýðssamtökunum, þá breytir það því alls ekki, að ég tel, að Alþýðusam- bandið hafi unnið mörg ómetanleg afrek í þágu ís- lenzks verkalýðs. Ég vil því bera fram einlægar þakkir til þess fyrir nytsöm störf og baráttu í þágu íslenzkra alþýðu, síðast liðna hálfa öld, og óska þess af heilum hug, að því megi í framtíðinni hlotnast það góða hlutskipti að berjast áfram, með djörfung og dug á drengilegan hátt, fyrir hagsmunamálum ís- lenzkrar alþýðu, og þá einnig fyrir þeim þjóðfélagsum- bótum, er skapa verulega og varanlega hagsæld og aukna menningu á íslandi. fáum árum hafi á botnvörpuskipi því, er hann var á, verið vakað við veiðar og aðgerð á fiski í 90 klukku- stundir, með aðeins 1 klukkustundar hvíld á sólar- hring, enda hafi það ekki verið nema þeir allra þrek- mestu, sem svona lengi þraukuðu, — hinir féllu smátt og smátt í valinn af ofþreytu og vökum. — Má geta nærri, hvaða vinnulag hefir verið orðið á þessum fáu uppistandandi hræðum, og ætli ekki að betra hefði verið og gagnlegra fyrir útgerðina og fólkið, að skipt hefði verið í vökur og mönnum veitt nauðsynleg hvíld. í nefndaráliti minni hlutans er fullyrt, að ekki sé hægt að benda á það, að heilsufar háseta á botn- vörpuskipunum sé neitt lakara, eða þeir endist verr en sjómenn yfirleitt. Verður þetta naumast annan veg skilið, en að minni hlutinn telji rangt að lögleiða hvíldartíma á þessum skipum, nema það sé komið í ljós, að sjómenn á botn- vörpuskipunum séu farnir að týna tölunni að greini- legum mun, vegna ofþreytu og svefnleysis. Líklega verða þeir að hrynja niður eins og flugur, til þess að háttvirtur minni hluti vilji láta hefjast handa . . . Ég held það hljóti að vera dómur flestra skynbærra manna, að það sé von um meiri afla, með því að lög- tryggja þá hvíld, sem frumvarpið gerir ráð fyrir. Og þá kemur það heldur ekki fyrir, að skip þurfi að hætta veiðum, vegna ofþreytu háseta, þó að gott sé veður og fiskur nægur . . . Málið er borið hér inn á þing samkvæmt fundar- samþykkt í félagi sjómanna . . . Ég skal játa, að mér hefði þótt það mikill heiður, ef ég hefði verið frumkvöðull þessa máls, svo þarft tel ég það og nauð- synlegt. En ég á nú ekki þann heiður, því miður . . . þó að minnihluti nefndarinnar vilji nú gefa mér hann. Það er gert af illum hug við málið. Og ég vona, að háttvirt deild láti fara hér að málavöxtum og samþykki frumvarpið. Með því vinnur hún þarft verk.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.