Vinnan - 01.05.1966, Qupperneq 14

Vinnan - 01.05.1966, Qupperneq 14
12 U aincin Guðgeir Jónsson: „Fremjið eigi rangindi — Þolið eigi rangindi,/ Þess hefir verið óskað, að ég skrifaði stutta grein — einskonar afmæliskveðju — til Alþýðusambands ís- lands vegna 50 ára afmælis þess. Ég vil reyna að verða við þessu. Mér kemur þá fyrst í hug að minnast á árið 1942. Það herrans ár hófst með verkföllum nokkurra verkalýðsfélaga. Samninga- umleitanir höfðu verið reyndar, en ekki borið neinn árangur. Þegar þessi verkföll höfðu staðið um viku- tíma, brá þáverandi ríkisstjórn á það ráð, að gefa út bráðabirgðalög til að ógilda verkföllin og skipa verk- fallsmönnum að hverfa aftur til vinnu, án nokkurra lagfæringa á kjörum. Jafnframt var settur á lagg- irnar svokallaður gerðardómur, sem verða átti alls- ráðandi um kjör og kaup verkalýðsins. Alþýðuflokkurinn átti þá einn ráðherrann af fimm. Sá ráðherra var andvígur þessum ráðstöfunum, og dró flokkurinn hann úr ríkisstj órninni af þessum sök- um. Alþingi staðfesti bráðabirgðalögin um veturinn gegn atkvæðum þingmanna verkalýðsflokkanna. Þetta gerðardómslagatilræði ríkisstjórnarinnar og meiri hluta Alþingis varð til þess að þjappa öllum stétt- vísum verkalýð svo fast saman, að verkalýðsflokk- arnir, Alþýðuflokkurinn og Sósíalistaflokkurinn, urðu, nauðugir viljugir að fella niður að verulegu leyti illvígar deilur sín á milli. Margir forystumenn verkalýðsfélaganna sneru bök- um saman, til varnar gegn þessum þvingunarlögum. Þessi sameiginlega vörn snerist furðu fljótt upp i sókn. „Gerðardómurinn“ varð óvirkur, og um sum- arið varð ríkisstjórnin að skipa sérstaka sáttanefnd til að koma á samningum milli Dagsbrúnar og Vinnu- veitendafélagsins. Fyrir ágústlok felldi Alþingi svo gerðardómslögin úr gildi og heimilaði uppsögn samninga með viku fyrir- vara. Svo fór um sjóferð þá. Þessi samstaða verkalýðsins, gegn gerðadómslög- unum, hlaut að hafa veruleg áhrif á Alþýðusambands- þingið, sem saman kom um haustið. Þar sveif sá andi yfir vötnunum, að samkomulag yrði að takast um myndun sambandsstjórnar. Sú varð og líka raunin á. Sambandsstjórnin var kosin einróma, og miðstjórnin skipuð fjórum Alþýðuflokksmönnum, fjórum Sósíal- istaflokksmönnum og einum utan flokka. Ég hygg, að mér sé óhætt að fullyrða, þótt mér sé málið skylt, að samstarfið í miðstjórninni hafi gengið furðuvel og aukið á traust verkalýðsfélaganna, bæði innávið og útávið. Meðal þess, sem þessi miðstjórn réðist í, var stofn- un og útgáfa tímaritsins Vinnunnar, og þó að tíma- ritið hafi, því miður, ekki fullnægt fyllstu vonum, sem því voru tengdar í upphafi, tel ég, að betur hafi þetta verk verið unnið, en óunnið. Því miður varð þetta samstarf of endasleppt. Þegar líða tók að kosningum til Alþýðusambandsþings, 1944, fóru flokkspólitísku sjónarmiðin að segja til sín, og á þinginu sjálfu sauð uppúr. En það er annar kapítuli, og að mínu viti til viðvörunar. Ég hefi kosið að dvelja aðallega við árið 1942, til þess að minna forystumenn verkalýðsfélaganna og allan verkalýð yfirleitt á nauðsyn þess aff standa sam- an á verði um áunninn rétt sinn og sækja fram til aukinnar menningar. „Fremjið eigi rangindi. — Þolið eigi rangindi“, voru einkunnarorð Ólafs Friðrikssonar á verkalýðsblaðinu „Dagsbrún“ forðum daga. Þetta ættum við enn að hafa í minni. Ég árna svo Alþýðusambandi íslands allra heilla á fimmtíu ára afmælinu og vona, að í forystu þess verði ætíð viðsýnir verkalýðssinnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Vinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.