Vinnan - 01.05.1966, Page 85
uinnan
vinnudeilur nokkuð tíð, en leystust
oft fljótlega og vel, vegna ágætrar
samstöðu félagsmanna. Sáu at-
vinnurekendur sér sjaldnast annað
fært en að ganga fyrr eða síðar að
peim kröfum, er fram voru settar
Snemma á árum krafðist félagið
hálftíma í kaffi tvisvar á dag, og
er félag okkar nú sennilega eitt um
svo langan kaffitíma hér um slóðir
a. m. k.
Vanskil voru alloft um greiðslu
vinnulauna fyrr á árum, og grip-
um við þá stundum til að stöðva
útskipun afurða, unz vangoldin
vinnulaun voru að fullu greidd.
Þessir hafa verið formenn félags-
ins auk fyrsta formanns:
Tryggvi Helgason 1935 og 1936,
Björn Árnason, Þorsteinn Valdi-
marsson, Þorleifur Ágústsson, Jó-
hann Hilaríus Sigurðsson, Jóhann
Einarsson, Kristján Jónasson, Pet-
er Hólm og síðast Jón Ásgeirsson,
og er hann tvímælalaust sá
sem mest hefur gert fyrir félagið.
Skal þó engin fjöður yfir það
dregin, að allir hinir gjörðu vissu-
lega sitt bezta.
í félaginu eru nú um 100 félags-
menn.
Núverandi stjórn skipa auk for-
manns:
Kristján Kristinsson varaformað-
ur, Sigurjón Kristinsson, Valdimar
Helgason.
Verkakvennafélagið Brynja,
Seyðisfiröi
Verkakvennafélagið Brynja á
Seyðisfirði er stofnað 3. marz ár-
ið 1938.
Fyrsti formaður félagsins var
Valgerður Ingimundardóttir.
Félagið gekk í Alþýðusamband
íslands 22. marz árið 1938.
Núverandi formaður er Sigur-
björg Björnsdóttir.
Verkalýðsfélag Hveragerðis
Félagið er stofnað 9. janúar 1938
að Brekku í Hveragerði.
Fyrsti formaður þess var Stef-
án Guðmundsson trésmiður og í
stjórn með honum Sæmundur Guð-
mundsson, Brekku, gjaldkeri og
Karl Guðmundsson, Hrauni, Ölfusi,
ritari.
Auk nefndra heimamanna hjálp-
aði Jón Guðlaugsson bifreiðastjóri
í Rvík til við félagsstofnunina.
Lengst allra hefur Sigurður
Stefán Guðmundsson
Sigurður Árnason
Árnason í Hveragerði verið for-
maður félagsins, en það hefur
hann verið óslitið síðan 1950.
Félagssvæðið nær yfir Hvera-
gerði, Ölfushrepp, Grafningshrepp
og Selvog.
í Alþýðusambandið gekk félagið
20. júní 1938.
Tilefni félagsstofnunar var eink-
um það að ná aðstöðu í vegavinnu
í Ölfusinu, en að þeirri vinnu sátu
þá menn frá Eyrarbakka, Reykja-
vík og nokkrir utan af landi.
Félagið hefur haft náið samstarf
við hin stéttarfélögin í sýslunni, og
er í Fulltrúaráði verkalýðsfélag-
anna í Árnessýslu. Ennfremur er
félagið meðal stofnenda Verka-
mannasambandsins.
Frá upphafi hefur félagið reynt
að standa í ístaðinu fyrir félags-
menn sína, eins og orka leyfði og
tilefni gafst til á hverjum tima.
Félagið hefur samninga fyrir
verkamenn, verkakonur, sjómenn
og starfsstúlkur í sjúkrahúsum.
Hafa umsvif félagsins farið ört
vaxandi bæði vegna vaxtar Hvera-
gerðis og þó einkum Þorlákshafn-
ar. Þar er nú risin allstór útgerð-
arstöð, frystihús er þar, og síld-
arverksmiðja er þar að rísa. Þá
hefur verið þar mikil vinna við
hafnargerð og önnur mannvirki.
Hveragerði hefur einnig vaxið.
Þar er Ullarþvottastöð, sem S.Í.S.
rekur. Trésmiðja er þar líka, og
vinna þar jafnan allmargir ófag-
lærðir verkamenn. Þá er hér elli-
heimili, sem veitir mikla vinnu. Og
loks er hér hressingarhæli, sem
Náttúrulækningafélagið rekur.
Af þessu má sjá, að félagsstarf-
ið er nokkuð margþætt, og samn-
ingar af ýmsu tagi.
Félagsmenn eru nú um 150.
Núverandi stjórn skipa þessir
menn:
Sigurður Árnason, form., Sigurð-
ur Hplgason, Þorsteinn Sigvalda-
son, Ólafur Guðmundsson, Gunnar
Magnússon, Rögnvaldur Guðjóns-
son, Stefán Valdimarsson.
Verkamannafélag Arnarneshrepps
Félagið er stofnað 11. júlí árið
1937 í þinghúsi hreppsins við Reist-
ará.
Fyrsti formaður félagsins var
Ingólfur Guðmundsson Arnarnesi,
nú bóndi í Fornhaga í Hörgárdal.
Með honum voru í stjórninni Að-
Ingólfur Guðmundsson