Vinnan - 01.05.1966, Blaðsíða 106
Vilborg Auðunsdóttir
undirrita þá. Önnur félög voru
bundin, en fengu sömu lagfæringu
síðar.
Árið 1959 varð 8 daga verkfall
vegna síldarsamninga. Að því stóðu
nokkur félög, en samstaðan rofn-
aði. Akranesfélagið náði samning-
um við Harald Böðvarsson. Fram-
kvæmdastjóri A.S.Í. samdi fyrir
Hafnarfjarðarkonur, án samráðs
við Keflavíkurkonur. Verkakvenna-
félag Keflavíkur og Njarðvíkur
varð því að heyja baráttuna eitt
sér. — Eftir 8 daga verkfall var
samið hjá sáttasemjara, og hafði
félagið sitt fram í aðalatriðum.
Ýmislegt i sambandi við þessa deilu
er með því eftirminnilegasta í sögu
félagsins og harla lærdómsríkt.
Auk samstarfsins við verka-
kvennafélögin suðvestanlands, hef-
ur félagið jafnan haft mikið og
náið samstarf við Alþýðusamband
íslands.
Þó að félaginu sé ekki skipt í
deildir, eru margskonar starfshóp-
ar í félaginu, sem vinna hjá ýms-
um atvinnurekendum, og hefur fé-
lagið því auk aðalkjarasamnings-
ins gert marga kjarasamninga.
Þrátt fyrir það, sem að framan er
sagt, hafa þeir oftast tekizt, án þess
að til verkfallsátaka hafi þurft að
koma.
Ýmis mál, sem hér verða ekki
rakin, önnur en kaupgjaldsmálin,
hefur félagið látið til sín taka.
Félagskonur eru nú 340.
Núverandi félagsstjórn skipa:
Vilborg Auðunsdóttir, form., Eva
Bryndís Ingvadóttir, Alda Jens-
dóttir, Jóna Þorfinnsdóttir og Guð-
rún I. Eiríksdóttir.
---------- i/innan --------------
Verkalýðsfélag Breiðavíkurhrepps
Félagið er stofnað 20. júní árið
1954 á Arnarstapa.
Fyrsti formaður þess var Hjört-
ur Valdimarsson.
Aðrir í fyrstu stjórn með honum
voru Stefán Hallgrímsson ritari,
Kristbjörn Guðlaugsson gjaldkeri
og Kristgeir Kristinsson varaform.
Meðstjórnandi var Sigvaldi Júlíuss.
Á stofnfundi gengu í félagið 26
manns. — Voru Hjörtur Valdi-
marson, Stefán Hallgrímsson og
Kristgeir Kristinsson aðalhvata-
menn að stofnun félagsins.
Formaður félagsins hefur lengst
verið Hálfdán Hannibalsson, eða
frá 1956—1961.
Félagssvæðið er Breiðavíkur-
hreppur.
Hjörtur Valdimarsson
Hallsteinn Haraldsson
Helgi Vigfússon
Félaginu var veitt innganga í
Alþýðusamband íslands á 24. þingi
þess, árið 1954.
Félagið hefur oftast náð samn-
ingum átakalítið í skjóli annarra
félaga og með hjálp Alþýðusam-
bandsins.
Félagsmenn eru nú um tuttugu.
Núverandi stjórn félagsins skipa:
Hallsteinn Haraldsson form.,
Ingólfur Guðmundsson, Kristbjörn
Guðlaugsson, Bjarni Kristinsson og
Guðmundur Alfreðsson.
Verzlunarmannafélag Árnessýslu
Verzlunarmannafélag Árnessýslu,
var stofnað 25. maí 1954. Félagið
var stofnað í Iðnaðarmannahúsinu
á Selfossi.
Fyrsti formaður var kjörinn
Helgi Vigfússon, Eyrabakka.
Aðrir í fyrstu stjórn: Sigfús Sig-
urðsson, Páll Sigurðsson, Ólafur
Ólafsson, Hörður Guðlaugsson.
Aðalhvatamaður að stofnun fé-
lagsins var Helgi Vigfússon, þá-
verandi útibússtjóri Kaupfélags
Árnesinga á Eyrarbakka.
Stofnendur voru alls 65.
Lengst hefur gegnt formanns-
störfum Sigfús Sigurðsson, alls í 5
ár.
Félagssvæði Verzlunarmannafé-
lags Árnessýslu er Árnessýsla öll
að undanteknum Stokkseyrar-
hreppi.
Félagið gekk í Alþýðusamband
íslands haustið 1954.
Merkasta atburð í sögu félags-
ins munum við telja undirritun
fyrstu kjarasamninga félagsins við