Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1969, Blaðsíða 147
— 145 —
1969
bifreið þeirri, er S. G. ók, en hann sagðist hafa fundið hana í bifreið
þeirri á gólfi undir framsæti um miðjan janúar 1968 og sett hana svo
í geymsluhólfið í bifreiðinni. Við rannsóknir og yfirheyrslur bera
fleiri en einn að hafa heyrt S. tala um tiltekna skammbyssu, sem hann
®etti, og gæti lýsingin átt við þessa. Þá finnst skammbyssuskot í læst-
um peningakassa á ..... sem S. getur enga skýringu gefið á, og lykill
a lyklakippu hans, sem gengur að útidyrum á ...., húsi .... [hús-
bóndans], og S. getur heldur ekki gefið skýringu á, en heldur fast við
að hafa aldrei vitað um hann á kippunni. Hins vegar leiðréttir hann
fyrri frásagnir sínar af skammbyssunni í geymsluhólfinu, þegar
líkurnar hafa hlaðizt svo upp sem raun ber vitni. Hann játar að hafa
tekið traustataki upp við .... pakka af skammbyssuskotum til að
Prófa í gamla hermannabyssu þýzka, sem hann átti. Hafi þetta verið
um 1953—1955. Skotin pössuðu ekki. Hins vegar hafi hann svo stolið
áðurnefndri skammbyssu af sínum stað í húsi .... heitins .... [hús-
bóndans] sumarið 1965, er hann var eitt sinn beðinn að koma þangað
að líta á sjónvarpstæki. Gerði hann sér hugmynd um að geta komið
benni í verð eftir umræður við starfsbróður sinn við Bifreiðastöð..
S. tók svo byssuna með sér í vinnuna einn daginn, en áðurnefndur bif-
1-eiðarstjóri var ekki í vinnunni þann daginn, svo að S. sagðist hafa
skilið hana eftir í læstu geymsluhólfi í bifreiðinni, þegar hann skilaði
henni að kvöldi, en morguninn eftir, þegar hann tók bifreiðina aftur, hafi
byssan verið horfin, og hafi hann ekki getað spurzt fyrir um hana,
Vegna þess hvernig hún var fengin. Síðan hafi hann ekkert um byss-
Una vitað, fyrr en hann fann hana í bifreið sinni „um miðjan janúar“
1968, eins og hann áður hafði greint frá, en segir hins vegar ekki til
hennar að fyrra bragði í rúmt ár, þótt hann viti, að lýst er eftir byss-
llln almennt og þessari byssu sérstaklega vegna morðsins á G. T-syni.
Segist S. hafa verið að bíða eftir því, að einhver spyrðist fyrir um
hana, en svo gleymt að minnast á hana við lögregluna eða afhenda hana,
þótt hann sé bæði persónulega kunnugur lögregluþjóninum á .........
hafi hitt hann að máli á þessu tímabili, byssuna jafnvel borið á góma
þeirra á milli, og hann hafi átt orðastað við rannsóknarlögreglumann,
sem hann vissi, að var við rannsókn þessa byssumáls. Kallar hann
þetta „einhvern trassaskap“ í einu tilviki en „einhvern klaupaskap"
1 annað sinn. Er þetta mjög undarlegt.
Hins vegar er ekkert vitað til þess, að hann hafi nokkurn tímann
att nokkur samskipti við G. heitinn T-son, eða reyndar öllu meira en
þekkt hann fyrir annan, eins og hann heldur fram. Ennfremur hefur
ekki heldur tekizt að leiða nokkrar líkur að því, að G. heitinn hafi
iðkað nokkra lánastarfsemi af nokkru tagi. Um ferðir S. morguninn
18- janúar 1968 í býtið hefur ekki heldur tekizt að leiða neitt það í
Wós, er geri hann verulega grunsamlegan í þessu máli, en óyggjandi
í jarvistarsönnun er þó ekki heldur fyrir hendi.
19