Börn og menning - 2017, Blaðsíða 34
unnar með akrýllitum og eru uppfullar af smáatriðum.
Sérlega eftirtekt vakti áherslan á mismunandi áferð
myndanna en þetta er til að mynda áberandi á opnunni
„Opinberar framkvæmdir“.
Því ber að fagna og veita eftirtekt þegar efnismikl-
ar myndaorðabækur á borð við Stærstu og sniðugustu
myndaorðabók í heimi koma út. Slíkar bækur geta oft
og lengi haft ofan af fyrir börnum, skapað skemmti-
legar samverustundir með þeim sem eldri eru og kennt
ungum lesendum sitthvað um veröldina ásamt því, sem
ekki skiptir minna máli, að auka færni þeirra í að lesa
í myndir.
Höfundur er grunnskólakennari og doktorsnemi í
íslenskum bókmenntum.
Viðfangsefni Stærstu og sniðugustu myndaorðabókar í heimi eru mjög fjölbreytileg en taka þó ávallt mið af veruleika
(vestrænna) barna. Þetta sést til að mynda þar sem skólalóðin er færð í myndrænan búning og krókódíll, tígrisdýr, fíll,
köttur, mús og svín sitja pen við borð inni í kennslustofu.