Börn og menning - 2017, Blaðsíða 35
Villti tryllti Villi
Stefán Pálsson
Leikhús
Vísindi og leikararaunir á fjölum Borgarleikhúss
Vísindasýning Villa
Höfundar: Vala Kristín
Eiríksdóttir,
Vignir Rafn Valþórsson og
Vilhelm Anton Jónsson
Leikstjórn: Vignir Rafn
Valþórsson
Borgarleikhúsið
Árið 1986 sló ódýr áströlsk grín-
mynd með líttþekktum leikurum
óvænt í gegn og rakaði inn fé fyrir
framleiðendur og dreifingaraðila.
Myndin hét Krókódíla Dundee og fjallaði um sérvitran
veiðimann sem bregður sér til stórborgarinnar. Óðar
hófu kvikmyndafyrirtækin leit að næsta Krókódíla-
Dundee, sem mala myndi gull. Fljótlega bárust böndin
að ungum leikara og kvikmyndagerðarmanni, Yahoo
Serious.
Yahoo samdi, framleiddi, leikstýrði og lék aðal-
hlutverkið í myndinni um unga Einstein (e. Young
Einstein) sem frumsýnd var árið 1988. Hún segir frá
vísindamanninum og þúsundþjalasmiðnum Albert
Einstein, sem gerður er að syni eplabónda í Tasmaníu
um aldamótin 1900. Ungi Einstein glímir við að kljúfa
bjóratómið til að skapa hinar fullkomnu loftbólur í
bjór, hann finnur upp rokktónlist, brimbrettaíþróttina
og heldur til Sydney, þar sem hann og Marie Curie
verða kærustupar og Einstein bjargar veröldinni frá
kjarnorkusprengingu undir vök-
ulum augum Charles Darwin.
Myndin féll vel að skopskyni
Ástrala og setti aðsóknarmet
þar í landi. Viðtökurnar urðu
blendnari annars staðar, þrátt
fyrir miklar auglýsingaherferð-
ir. Ungi Einstein er um margt
ágæt mynd. Þótt sögulegum at-
burðum sé öllum snúið á haus,
er hún full af skírskotunum til
vísindasögunnar og ber vott um
brennandi ástríðu. Sagan segir
að hugmyndin að verkinu hafi
kviknað þegar höfundurinn var
á ferðalagi í Suður- Ameríku og rakst á heimamann í
miðjum frumskóginum íklæddan stuttermabol með
frægri mynd af Einstein að reka út úr sér tunguna.
Sprellmyndin af Einstein er einmitt meðal fjölmargra
ljósmynda sem varpað er upp á tjald í Vísindasýningu
Villa í Borgarleikhúsinu. Þræðirnir á milli reynast fleiri
og óneitanlega er freistandi að velta því fyrir sér hvort
Vilhelm Anton Jónsson hafi skellt sér í bíó, ellefu ára
gamall, til að sjá toppgrínmyndina Ungi Einstein?
Alþjóðlegar fyrirmyndir
Báðir skarta þeir Villi og Yahoo tryllingslegri hárgreiðslu
sem fylgt hefur staðalmyndinni af „óða vísindamannin-
um“ allt frá illa snillingnum Rotwang í kvikmyndinni
Metropolis frá 1927. Á auglýsingaplakati Unga Einsteins