Fræðaþing landbúnaðarins - 08.02.2008, Page 420
418 | FRÆÐAÞING LANDBÚNAÐARINS 5, 2008
Útbreiðsla hér á landi
Ekkert er hægt að fullyrða um það hvemig eða hvenær asparglyttan kom til landsins.
Vera kann að hún hafi dulist hér í nokkum tíma áður en hún tók að fjölga sér að ráði.
Sumarið 2007 var reynt að fylgjast með útbreiðslu bjöllunnar út ffá Esjuhlíðum.
Bjöllumar em fleygar og gætu því dreifst hratt út á suðvesturhominu. Fjarlægasti
fundarstaðurinn sem höfundum er kunnugt um, er við Gullinbrú í Grafarvogi, en
bjallan fannst á nokkmm stöðum á milli Grafarvogs og Mógilsár. Ætla má því að
skaðvaldurinn nái til höfuðborgarsvæðisins alls á næsta ári, þótt ekki verði strax um
mikið tjón að ræða, þar sem það tekur dýrið einhvem tíma að byggja upp stofn af
skaðvænlegri stærð.
Það verður fróðlegt að fylgjast með framgangi þessa skaðvalds á næstu ámm.
Vafalaust verða áraskipti að skemmdum, eins og alltaf er tilfellið með skaðvalda. Það
sem við höfum orðið vitni að á Mógilsá boðar ekkert gott fyrir viðjuna og blæöspina.
Um áhrif á alaskaöspina er erfitt að fullyrða nokkuð enn sem komið er, en víst er að
lýti er að skemmdum á henni. Þar kann einnig að vera klónamunur, en um það vitum
við ekkert ennþá.
Heimildir
Briickmann, M., A. Termonia, J. M. Pasteels and T. Hartmann, 2002. Characterization of an
extracellular salicyl alcohol oxidase from larval defensive secretions of Chrysomela populi and
Phratora vitellinae (Chrysomelina). Insect Biochemistry and Molecular Biology, 32:11, 1517-1523.
Gruppe, A., M. Fusseder, R. Schopf, 1999. Short rotation plantations of aspen and balsam poplar on
former arable land in Germany: defoliating insects and leaf constituents. Forest Ecology and
Management 121. 113-122.
Kendall, D.A. and Wiltshire, C.W., 1998. Life-cycles and ecology of willow beetles on Salix viminalis
in England. Europian Joumal of Forest Pathology, 28: 4, 281-288.
Ruuhola, Teija M., Mika Sipura, Outi Nousiainen and Jorma Tahvanainen, 2001. Systemic Induction of
Salicylates in Salix myrsinifolia (Salisb.). Annals of Botany 88: 3, pages 483-497.