Bændablaðið - 14.01.2021, Page 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 20212
FRÉTTIR
Samband íslenskra sveitarfélaga efndi til netfundar um sorpeyðingarmál:
Vegna aðgerðarleysis í sorpeyðingarmálum
stefnir í stórfelldan útflutning á sorpi
– Bygging sorporkustöðvar til brennslu á 90–120 þúsund tonnum er risaverkefni sem talið er að þoli enga bið
Aðgerðarleysi í uppbyggingu
sorpbrennslustöðva á Íslandi
virðist nú vera að koma í bakið
á mönnum. Ljóst er að á árinu
2023 verður endanlega lokað
fyrir urðun sorps í Álfsnesi sem
tekur við stærstum hluta sorps af
landinu. Bendir þá flest til þess að
þá taki við stórfelldur útflutning-
ur á sorpi, eða allt þar til byggð
hefur verið ný hátæknisorporku-
stöð á Íslandi.
Þetta kom m.a. fram í mjög
fróð legum erindum sem haldin
voru á fjölmennum netfundi sem
Samband íslenskra sveitarfélaga
stóð fyrir mánudaginn 11. janúar
um hátæknibrennslu sem framtíðar-
lausn. Þar kom einnig fram að nú
er ekki lengur neinn tími eftir til að
velta vöngum yfir hvað skuli taka
til bragðs. Tímaglasið er þegar tómt
og að mati flestra sem fluttu erindi
á fundinum þarf án tafar að taka
ákvarðanir um næstu skref varð-
andi byggingu sorporkustöðvar fyrir
um 100 þúsund tonn af sorpi á ári.
Kostnaður við byggingu getur oltið
á tugum milljarða króna og allt ferl-
ið við slíka byggingarframkvæmd
getur hæglega tekið sex til átta ár.
Um 160 þátttakendur
skráðir á fundinn
Guðjón Bragason, sviðsstjóri
Sam bands íslenskra sveitarfélaga,
stýrði fundinum þar sem skráðir
voru um 160 þátttakendur. Sagði
hann að það hafi lengi verið sinn
draumur að menn kæmust á þetta
stig að ræða stóru myndina í sorp-
eyðingarmálum og þá sérstaklega
uppbyggingu innviða. Sagði hann
það reyndar markmiðið með fund-
inum að komast að því hvað þyrfti
að gera næst til að hrinda byggingu
brennslustöðvar í framkvæmd. Á
fundinum voru flutt fjölmörg er-
indi. Flutningsmenn voru Karl
Eðvaldsson, framkvæmdastjóri
Resource International ehf., Páll
Guðjónsson verkefnastjóri, Steinþór
Þórðarson, framkvæmdastjóri
Kölku, Teitur Gunnarsson, verk-
fræðingur hjá Mannviti verk-
fræðistofu, og Helgi Þór Ingason,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
SORPU.
Skýrsla um greiningu á þörf
sorpbrennslustöðva á Íslandi
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
umhverfis- og auðlindaráð-
herra hóf umræðuna á fundinum
og fagnaði útgáfu skýrslu sem
Resource International vann fyrir
Umhverfisstofnun að beiðni um-
hverfis- og auðlindaráðuneytisins
og sem heitir „Greining á þörf sorp-
brennslustöðva á Íslandi“.
„Mér fannst nauðsynlegt að
kalla eftir faglegri úttekt á þeim
möguleikum sem okkur standa til
boða varðandi brennslu með orku-
nýtingu, því ljóst er að alltaf verður
eitthvert magn úrgangs sem ekki
verður hægt að endurnota og endur-
vinna og þá er betra að brenna það
en að urða. Skýrslan er mikilvægt
innlegg inn í umræðu um tilhögun
sorpbrennslumála á Íslandi til næstu
ára og áratuga og nú stendur fyrir
dyrum að vinna málin áfram í sam-
starfi ríkis, sveitarfélaga og einka-
aðila. Gleymum því samt ekki að
auðvitað á mest áhersla að vera á að
koma í veg fyrir að hráefni verði að
úrgangi, og nauðsynlegt að stórauka
endurvinnslu, ekki síst innanlands, í
takti við hringrásarhagkerfið,“ sagði
ráðherra.
Mat lagt á þrjár sviðsmyndir
Karl Eðvaldsson, framkvæmdastjóri
Resource International ehf., flutti
erindi undir fyrirsögninni „Greining
á þörf fyrir brennslu úrgangs til
framtíðar“. Lýsti hann þar niður-
stöðum skýrslunnar sem gerð var
fyrir stjórnvöld. Markmið þeirrar
vinnu hafi verið að meta þróun óend-
urvinnanlegs úrgangs á Íslandi til
næstu 25 ára, eða til 2045. Settar
voru upp þrjár sviðsmyndir. Í fyrsta
lagi hversu mikið af sorpi kæmi til
brennslu við óbreytt ástand hvað
varðar endurnýtingu og annað. Í
örðu lagi hver staðan yrði ef upp-
fyllt yrðu öll markmið sem Ísland
hefur undirgengist að taka þátt í. Í
þriðja lagi var reynt að meta hvað
þurfi að gera til að bestu mögulegu
útkomunni verði náð.
Í erindi Karls kom fram að
samsetning úrgangs á Íslandi hafi
breyst árið 2014 þegar farið var að
taka jarðefni inn í þær tölur sam-
kvæmt Evrópustöðlum. Á árinu
2018 var hlutfall jarðefna 42,2% af
heildarumfangi úrgangs á Íslandi
og jarðvegur 9,5% á meðan bland-
aður heimilisúrgangur var 11,6%.
Efnaúrgangur var þá 9,6%.
Samkvæmt skýrslunni er áætlað
að heildarmagn brennanlegs úrgangs
á Íslandi fari úr um 280.000 tonn-
um og í 380.000 tonn á árinu 2045.
Fjölmargar aðgerðir eins og moltu-
gerð, endurvinnsla á pappír og plasti
og ýmislegt fleira minnkar þetta
magn hins vegar verulega. Á árinu
2018 fóru t.d. 35% af úrganginum í
endurnýtingu eða endurvinnslu.
Brenna þarf um 90 til 120
þúsund tonnum á ári
Við óbreytt ástand er gert ráð fyrir að
brennanlegur úrgangur verði á bil-
inu 182–207 þúsund tonn á ári. Með
því að fara að markmiðum ESB um
meðhöndlun úrgangs þyrfti væntan-
lega að brenna 91–121 þúsund tonn
á ári. Ef ýtrustu draumar um flokkun,
endurvinnslu og minni matarsóun
og annað gengur upp, þá ætti ekki
að þurfa að brenna meiru en 33–38
þúsund tonnum. Það er þó talið mjög
óraunhæft í framkvæmd.
Niðurstaðan er því sú að verið
er að horfa á að reisa sorporkustöð
eða stöðvar á Íslandi sem geti annað
brennslu á allt að 120 þúsund tonn-
um á ári.
Um 73% brennanlegs úrgangs
myndast á höfuðborgarsvæðinu.
Sem dæmi brennir Kalka um 11 til
12 þúsund tonnum á ári.
Fram kom á fundinum að taka
þurfi ákvörðun um hvort reisa eigi
eina brennslustöð eða nokkrar
minni. Ljóst er að brennslustöð fyrir
90–120 þúsund tonn þykir ekki stór
í alþjóðlegu samhengi og því minni
sem stöðvarnar eru, því óhagkvæm-
ari verða þær í rekstri með tilliti til
orkunýtingar.
Árið 2017 voru starfræktar 492
sorporkustöðvar í Evrópu. Þar af
voru 18 í Noregi, 26 í Danmörku,
34 í Svíþjóð og 9 stöðvar í Finnlandi.
Sagði Steinþór Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri Kölku, að rekstar-
hagkvæmni slíkrar stöðvar lægi í
stærðinni og forðast bæri að offjár-
festa í mörgum stöðvum með of
mikilli brennslugetu.
Hægt að nýta 72–91%
hitaorkunnar
Teitur Guðjónsson, verkfræðingur
hjá Mannviti, benti á í sínu erindi að
hátæknibrennslustöð þyrfti að vera í
rekstri allan sólarhringinn til að skila
viðunandi hagkvæmni. Þá væri slík
stöð að brenna um 2,5 tonnum eða
meiru á klukkustund og jafnvel tíu
sinnum meiru. Algengt er nú erlendis
að reistar séu brennslustöðvar sem
brenna 400 til 500 þúsund tonnum
á ári við yfir 850 °C. Þá er gengið út
frá því að hægt sé að nýta varmann
sem myndast til að hita vatn og til
raforkuframleiðslu. Með framleiðslu
á heitu vatni og rafmagni er hægt að
nýta um 72–91% af varmaorkunni.
Einnig er í slíkum stöðvum mjög
fullkomin afgashreinsun.
Helgi Þór Ingason, fyrrverandi
framkvæmdastjóri SORPU, benti
á að bygging sorpbrennslustöðvar
væri sannkallað risaverkefni sem
kallaði á mikla útsjónarsemi og
vandvirkni svo verkefni fari ekki
úr böndum. Þar væru mörg vítin að
varast. /HKr.
Ein af glærum Karls Eðvaldssonar, framkvæmdastjóra Resource International ehf., á fundinum. Þarna má sjá tölur
um magn brennanlegs úrgangs sem féll til í mismunandi landshlutum á árinu 2018. Þarna er höfuðborgarsvæðið með
179.290 tonn, Suðurnes með 11.016 tonn, Vesturland með 14.425 tonn, Vestfirðir með 3.712 tonn, Norðvesturland
með 9.048 tonn. Norðausturland með 27.071 tonn, Austurland með 6.597 tonn og Suðurland með 10.081 tonn.
SS hættir við lækkun afurðaverðs til bænda:
Fallið frá verðbreytingu til
lækkunar á verði nautgripa
Sláturfélag Suðurlands hefur
endurmetið forsendur verðlækk-
unar á nautgripum sem átti að
taka gildi 18. janúar næstkomandi
og ákveðið að falla frá lækkun-
inni.
Steinþór Skúlason, forstjóri
Slátur félags Suðurlands, segir að
staða á kjötmarkaði sé erfið og mikl-
ar birgðir til. „Birgðir af dilkakjöti
í lok nóvember voru 900 tonnum
meiri en á sama tíma í fyrra. Það
eru ekki til opinberar upplýsingar
um nautakjötsbirgðir í landinu þar
sem afurðastöðvarnar gefa þær ekki
upp.“
Hann segir að í heildina sé sam-
dráttur á kjötmarkaði og að heildar-
neysla á kjöti í landinu hafi minnkað
og innflutningur á nautakjöti líka í
tengslum við COVID-19.
Steinþór segir að ákvörðun
SS um að draga verðbreytinguna
til baka byggi á mörgum ólíkum
forsendum. „Svona ákvörðun byggir
á mörgum ólíkum þáttum eins og
rekstrarleg staða, væntingar um
þróun á markaði og að sjálfsögðu
skipta viðhorf bænda máli líka
og svo skipta menn um skoðun ef
forsendur breytast. Okkar skoðun
núna, eftir að hafa endurmetið
forsendurnar, er að falla frá verð-
breytingunni,“ segir Steinþór. /VH
Bréf til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:
Athugasemdir og áréttingar um efnistök og
niðurstöður skýrslu um þróun tollverndar
Hagsmunasamtök bænda og
fyrirtækja í afurðavinnslu
og sölu hafa sent Kristjáni
Þór Júlíussyni sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra
athuga semdir og áréttingar
um efnistök og niðurstöð-
ur skýrslu um þróun toll-
verndar.
Tildrög bréfsins, sem var
sent 16. nóvember síðast-
liðinn, var að þann 10. nóv-
ember kynnti sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytið skýr-
slu um þróun tollverndar, sem
unnin var af starfshópi sem
skipaður var þann 10. júlí 2019.
Hagsmunasamtök bænda og fyrir-
tækja í afurðavinnslu telja að á skýrsl-
unni séu slíkir meinbugir að óverjandi
sé að nota hana án lagfæringa við
opinbera stefnumörkun varðandi
tolla umhverfi landbúnaðarvara.
Rangfærslur og rangar ályktanir
Í bréfinu, sem má finna í heild
sinni á heimasíðu Bændablaðsins,
er fjallað um þau atriði sem eru
áberandi ýmist röng eða ályktanir
dregnar sem ekki standa efni til á
grundvelli þeirra upplýsinga sem
eru til staðar, eða sannleikurinn tek-
inn úr réttu samhengi.
Að mati sendanda eru tollamál
og tollvernd mikilvæg þar sem þau
hafa mikla þýðingu fyrir þróun
og skilvirkni atvinnulífsins. Víða
í skýrslunni er vikið að því að
gögn hafi skort til að unnt væri að
leggja mat á þau viðfangsefni
sem tekin voru til skoðunar.
Aldrei var leitað til aðila eins
og SAM við vinnslu skýrslunn-
ar, sem búa yfir fullkomnasta
gagnagrunni landsins um fram-
leiðslu og ráðstöfun mjólkur og
mjólkur afurða.
Niðurstaða bréfritara
Niðurstaða bréfritara er að
skýrslan sé slíkum annmörkum
háð að ekki sé hægt að leggja
hana til grundvallar án lag-
færinga við stefnumörkun í
málefnum landbúnaðarins. „Við
munum í framhaldinu koma frek-
ari athugasemdum á framfæri en
okkur þótti brýnt að vekja athygli
á því sem við teljum vera hvað
alvarlegasta meinbugi á skýrslunni.
Jafnframt teljum við nauðsynlegt að
eiga frekari samskipti við þá sem
fjalla um skýrsluna á vettvangi ráðu-
neytisins og um nýtingu hennar í
framhaldinu.
/VH
Í könnun meðal framleiðenda á árinu 2019 kom fram
að þeir telja sig vandalaust geta aukið framleiðslu
sína um allt að 40%.
Steinþór Skúlason, forstjóri Slátur
félags Suðurlands.