Bændablaðið - 14.01.2021, Page 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 20214
FRÉTTIR
Útflutningur hrossa til Belgíu
stöðvaður í kjölfar slyss
Útflutningur á hrossum til stærstu
dreifimiðstöðvar Icelandair
Cargo fyrir Evrópu, Liege í
Belgíu, hefur verið stöðvaður
um óákveðinn tíma í kjölfar slyss
sem varð vegna mannlegra mis
taka starfsmanns á flugvellinum
í Liege rétt fyrir jólin.
Slysið varð þegar gámur með
hestum féll af palli með þeim
afleiðingum að hestar slösuðust
og aflífa þurfti tvo þeirra.
„Við höfum flutt hesta í sérút
búnum gámum frá árinu 1995 með
sambærilegum búunaði og það
hefur gengið afar vel. Við erum
með ákveðna verkferla sem við
fylgjum og okkar undirverktakar
eiga einnig að fylgja. Síðan gerist
það að starfsmaður í Belgíu fylgir
ekki verkferlum, hann festir ekki
gáminn nægilega svo hann fell
ur um 50 sentímetra af palli og
því verður þetta slys. Þetta eru
mannleg mistök og við þurftum
að fella tvo hesta í samstarfi við
dýralækni á svæðinu og eigendur
þeirra. Einn hestur til viðbótar var
með minni áverka en ekki þurfti
að fella hann.
Yfirvöld í Belgíu hafa í fram
haldinu stöðvað innflutning á
hestum frá okkur þar til við erum
búin að aðlaga okkur að nýjum og
breyttum reglum yfirvalda þar í
landi. Við þurfum að átta okkur
betur á hvernig við náum að upp
fylla þær og höfum meðal annars
fundað með MAST hér heima til
að fara yfir verkferla.
Þetta er mikið hagsmunamál
fyrir hrossabændur og við tökum
svona slys mjög alvarlega en
öryggi og velferð er alltaf í fyrsta
sæti hjá okkur,“ útskýrir Mikael
Tal Grétarsson, framkvæmdastjóri
útflutnings hjá Icelandair Cargo.
/ehg
Verkefnið Þróun íslenskrar
haframjólkur, sem Sandhóll
bú ehf. stendur fyrir, hlaut
19 milljóna króna styrk úr
Matvælasjóði. Styrkurinn er sá
hæsti sem veittur var til verkefnis
sem tengist landbúnaði og
flokkast undir Afurð sem veitir
styrki til verkefna sem komin eru
af hugmyndastigi en eru þó ekki
tilbúin til markaðssetningar.
Örn Karlsson, bóndi á Sandhóli
í Meðallandi, segir að aðdragandi
verkefnisins sé að árið 2019 hafi
verið flutt inn um 1,1 milljón lítrar
af haframjólk.
„Í grunninn samanstendur
haframjólk af höfrum, vatni og
ensímum og þar sem við á Sandhóli
ræktum hafra á um 100 hekturum
fórum við að velta fyrir okkur
framleiðslu á haframjólk.“
Við höfum ræktað hafra til
þroska frá 2010 og undanfarin ár
selt þá til manneldis og þeir hafa
selst upp á hverju ári.“
Fyrsta skrefið vöruþróun
Að sögn Arnar er greinilega mikill
markaður fyrir haframjólk hér á
landi og full ástæða til að skoða
hvort ekki sé hægt að framleiða hluta
hennar innanlands. „Við verðum
reyndar að auka afkastagetuna ef
við förum út í framleiðsluna en
það er ekkert því til fyrirstöðu að
rækta meira af höfrum ef það er
markaður fyrir þá. Fyrsta skrefið
í þeirri viðleitni er vöruþróun
sem felst í því að búa til vöru sem
neytendur hafa áhuga á og stenst
erlenda samkeppni hvað varðar
bragð og gæði.
Hráefniskostnaður við fram
leiðsluna er í sjálfu sér fremur lágur
svo lengi sem vatnið er ókeypis og
við vildum láta á það reyna með
því að sækja um styrk í Afurð hvort
framleiðslan sé raunhæf.“
Afurð
Styrkveitingum Matvælasjóðs er
skipt í fjóra flokka sem kallast
Bára, Afurð, Fjársjóður og Kelda.
Afurð styrkir verkefni sem komin
eru af hugmyndastigi en eru þó
ekki tilbúin til markaðssetningar.
Styrkveitingar miða að því að gefa
styrkþegum tækifæri til að móta og
þróa afurðir úr hráefnum sem falla
til við matvælaframleiðslu og stuðla
þar með að verðmætasköpun.
Örn segir að síðastliðið sumar
hafi Erla Diljá Sæmundardóttir
landfræðinemi og Guðný Halldórs
dóttir, eðlisfræðingur og meistara
nemi í kennslufræði við Háskóla
Íslands, starfað hjá Matís við
rannsóknir á haframjólk á styrk sem
ætlað var að efla atvinnuþátttöku
háskólanema. „Meðal þess sem þær
gerðu var að búa til haframjólk úr
höfrum frá okkur og var árangurinn
góður. Í framhaldinu af því viljum
við því fara alla leið með verkefnið
og finna réttu formúluna sem
fólki líkar við í blindsmökkun og
í samanburði við vinsæla innflutta
haframjólk. Ef það gengur eftir er
ekkert því til fyrirstöðu að hefja
framleiðslu á innlendri haframjólk. “
10 til 30% markaðshlutdeild
„Næsta skref verður mikið til unnið
hjá Matís og felst í því að búa til
vöruna sjálfa.
Haframjólk er gerð úr einum
hluta af höfrum, átta af vatni og
ensímum sem brjóta niður sterkj
una í höfrunum til að búa til vökva
sem ekki er með botnfall og hefur
eitthvert geymsluþol. Í framhaldi af
því verður búin til viðskiptaáætlun
og kortlagt hvað þarf af tækjum og
mannskap og hver kostnaður við
framleiðsluna verður.“
Örn segir að eins og hug
myndin var lögð upp í umsókninni
í Matvælasjóð er gert fyrir að fram
leiðsla Sandhóls gæti náð milli 10
og 30% markaðshlutdeild.
„Satt best að segja kom mér á
óvart hvað þarf lítið af höfrum til
að búa til haframjólk og það þarf
ekki mjög marga hektara til að rækta
hafra í alla þá haframjólk sem flutt
er til landsins.“
Að sögn Arnar eru ætlaðir tólf
mánuðir til að hanna vöruna og búa
til viðskiptaáætlun um framleiðslu
hennar.
Mannakorn hafra
Sandhóll tengist einnig verkefni
sem kallast Mannakorn hafra ásamt
Háskóla Íslands, Matís, Líflandi og
Landbúnaðarháskóla Íslands sem
fékk 14,8 milljónir í styrk.
„Það verkefni felst í því að
Landbúnaðarháskólinn leggi áherslu
á að finna hafrayrki sem henta við
íslenskar aðstæður. Fram til þessa
höfum við á Sandhóli að mestu
unnið í því sjálf að finna yrki sem
henta. Sé litið til þess hversu mikið
bygg hefur verið rannsakað og að
fram eru komin íslensk yrki sem
henta vel hér á landi er kominn tími
til að gera það sama fyrir hafra.
Verkefnið felst því í að finna
hafrayrki sem gefa vel af sér
og hafa líka gott bragð og lit til
manneldis og eru því verkefnin
náskyld,“ segir Örn Karlsson á
Sandhóli að lokum. /VH
Úthlutun úr Matvælasjóði:
Sandhólsbóndi vinnur að þróun á íslenskri haframjólk
Hafraakrar við Sandhól í Skaftárhreppi.
Örn Karlsson, bóndi á Sandhóli.
Guðný Halldórsdóttir, eðlisfræðingur og meistaranemi í kennslufræði, og
Erla Diljá Sæmundardóttir, landfræðinemi við Háskóla Íslands, störfuðu
síðastliðið sumar hjá Matís við rannsóknir á haframjólk.
Yfirvöld í Belgíu stöðvuðu innflutning á hestum frá Íslandi í kjölfar slyss sem átti sér stað við innflutning á
íslenskum hestum á flugvellinum í Liege. Mynd / HKr.
Samkeppniseftirlitið:
Samruni afurðastöðva
enn til skoðunar
Samkeppniseftirlitið er enn með
fyrirhugaðan samruna Norð
lenska, Kjarnafæðis og SAH
afurða til skoðunar og er að sögn
Páls Gunnars Pálssonar, forstjóra
Samkeppniseftirlitsins, áætlað að
rannsókninni ljúki í febrúar.
Hann segir að undir meðferð
málsins hafa eftirlitinu borist ýmis
sjónarmið og upplýsingar frá sam
runaaðilum og hagsmunaaðilum sem
m.a. er haft hliðsjón af við rannsókn
málsins. Auk þess hefur eftirlitið
látið framkvæma kannanir á meðal
bænda og neytenda sem ætlað er að
gefa betri mynd af markaðnum og
mögulegum áhrifum samrunans á
samkeppni.
Páll Gunnar segir að verið sé að
vinna frekar úr framkomnum sjón
armiðum. Þegar ákvörðun í málinu
liggur fyrir mun hún verða birt á vef
Samkeppniseftirlitsins.
/MÞÞ
Sprenging varð í hrossaútflutningi á árinu 2020:
Ekki hefur verið meira flutt
út af hrossum síðan 1997
Útflutningur á hrossum frá Íslandi
á síðasta ári var með mesta móti
og hefur ekki verið meiri síðan
1997.
Alls voru flutt út 2.320 hross á
síðasta ári og þar af voru 700 með
Avottun samkvæmt tölum frá
WorldFeng sem heldur utan um
skráningu á íslenska hestinum um
allan heim. Er þetta mesti fjöldi
útfluttra hrossa á einu ári síðan 1997
þegar flutt voru út 2.565 hross. Mest
var hins vegar flutt út árið 1996, eða
2.841 hross.
Flutt voru út íslensk hross á
síðasta ári til 20 landa. Flest voru seld
til Þýskalands, eða 974. Næstflest
voru seld til Svíþjóðar, eða 306. Þá
fóru 271 hross til Danmerkur, 145 til
Austurríkis, 141 til Bandaríkjanna
og 135 til Sviss. Í sjöunda sæti kom
Holland með 80 hross, þá Finnland
með 62 hross, Noregur var með 56
og Belgía var í tíunda sæti með 43
hross. Þar á eftir kemur Bretland
með 31 hross, Frakkland með 28,
Færeyjar með 17, Lúxemborg með
12, Lettland með 3 hross, Ítalía með
2 og Ungverjaland og Litháen reka
lestina með eitt hross hvort land. /HKr.