Bændablaðið - 14.01.2021, Síða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 202110
FRÉTTIR
Káraknjúkur, Káraknjúkastífla og Hálslón.
Vatnsaflsvirkjanir Landsvirkjunar:
Miðlanir standa vel þrátt
fyrir lítið innrennsli
Þrátt fyrir litla úrkomu og kulda
tíð á hálendinu stendur orku
kerfi Landsvirkjunar vel og
er ekki útlit fyrir takmarkanir
á raforkuafhendingu á yfir
standandi vetri.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsvirkjun hefur innrennsli í
miðlunarlón verið í minna lagi í
haust og engir vetrarblotar náð inn
á hálendið það sem af er vetri. Öll
miðlunarlón voru full fram yfir
miðjan október, en frá þeim tíma
hefur niðurdráttur verið samfelldur.
Vegna þessa er heildarstaða
miðlana um áramót ívið lakari en í
fyrra. Innrennsli á Þjórsársvæði og í
Hálslón hefur verið með allra minnsta
móti. Á móti kemur að orkusala
hefur verið undir væntingum þannig
að miðlunarstaðan nú um áramót
er vel þolanleg. Aðeins rennur
á yfirfalli þegar lónið er í hæstu
stöðu sem er yfirleitt á tímabilinu
ágúst til október. Hvort og hvenær
rennur um yfirfallið og hversu mikið
er þó verulega háð árferði sem er
mjög breytilegt milli ára. Á síðasta
ári var rennsli um yfirfall frá 22.
ágúst til 17. september. Þess utan
rann ekkert um yfirfallið. Mest
var rennslið um yfirfall þann 2.
september, eða 174,26 rúmmetrar
á sekúndu, en féll svo hratt niður
í 0,41 m3/s þann 17. september.
Hægt er að fylgjast með vatnshæð
lóna daglega á vöktunarsíðu vefs
Landsvirkjunar: www.landsvirkjun.
is/rannsoknirogthroun/voktun.
Þegar lág vatnsstaða er í Hálslóni
þorna set sem getur verið rokgjarnt
þegar hvessir. Er slíkt fok vel
vaktað. Sem dæmi var lítils háttar
fok í 153,35 klukkustundir á árinu
2019. Töluvert uppfok var í 19,75
klukkutíma og mikið uppfok var
samtals í 4,6 klukkustundir.
Hálslón er stærsta manngerða
uppistöðulón á Íslandi, eða 57
ferkílómetrar. Það er 25 km að
lengd og allt að 2 km á breidd.
Nýtanlegt vatnsmagn fyrir rekstur
virkjunarinnar er 2.100 gígalítrar
(2,1 teralítrar eða 2,1 rúmkílómetrar)
og renna úr því 107 m3 á sekúndu
niður í stöðvarhús virkjunarinnar í
Teigsbjargi, þaðan sem vatninu er
beint í Jökulsá í Fljótsdal sem aftur
rennur í Lagarfljót.
Þórisvatn er reyndar líka nýtt sem
miðlunarlón fyrir virkjanir á Þjórsár-
og Tungnársvæðinu og er um 70 km2
frá náttúrunnar hendi. Það getur hins
vegar orðið allt að 86 km2 vegna
áhrifa af stíflumannvirkjum og
verður þá stærra en Þingvallavatn
sem er stærsta stöðuvatn a Íslandi,
eða 84 km2. Þingvallavatn væri
reyndar aðeins minna ef þar væru
engin stíflumannvirki vegna
Sogsvirkjunar. /HKr.
Hálslón 28. júní 2019. Myndin var
tekin úr gervihnetti. Hægra megin
á myndinni gnæfir Snæfell í 1.833
metra hæð yfir sjávarmáli.
Danskir minkabændur koma
að minkaeldi í Skagafirði
Einar Eðvald Einarsson,
loðdýrabóndi að SyðraSkörðugili
og formaður Sambands íslenskra
loðdýrabænda, hefur tekið
minkabúið í Héraðsdal á leigu
af Kaupfélagi Skagfirðinga en
danskir minkabændur fjármagna
framleiðsluna.
Að sögn Einars er hann eini
loðdýrabóndinn á Norðurlandi
og þar sem verð á minkaskinnum
hefur verið lágt undanfarin misseri
með tilheyrandi fækkun bænda er
leigan á búinu og samningurinn við
Danina hluti af því markmiði að
auka aftur framleiðsluna án þess þó
að skinnaverð séu komin á réttan
stað aftur.
Danir tryggja
framleiðslukostnaðinn
„Samningurinn við Danina
gengur út á að þeir tryggja mér
framleiðslukostnað á skinnum sem
koma frá Héraðsdalsbúinu. Í raun er
samningurinn þannig að þeir kaupa
af mér skinnin fyrir það verð sem
kostar að framleiða þau samkvæmt
mínum útreikningum. Ég er þannig
lagað búinn að selja þeim skinnin
fyrirfram og fæ mánaðarlegar
greiðslur næstu tólf mánuðina frá
og með 1. janúar síðastliðinn. Ég
veit þannig fyrirfram úr hverju ég
hef að spila fjárhagslega.
Skili skinnin hagnaði er svo í
samningnum ákvæði um hvernig
honum er skipt. Það er því tryggt
að ég tapa ekki á framleiðslunni en
á móti er ekkert víst að ég græði á
þessu heldur. Hitt er hins vegar ljóst
að með þessu erum við að búa til
um það bil tvö ný stöðugildi, auka
fóðursölu frá fóðurstöðinni og koma
vannýttum byggingum í notkun
ásamt því að auka útflutningstekjur
þjóðarinnar,“ segir Einar.
Samningur til þriggja ára
„Samningurinn við Danina er til
þriggja ára en byrjað verður með
1.500 læður og svo metum við fram-
haldið þegar hjólin fara að snúast.
Markmið Dananna með þessu er
að kanna hvernig aðstæður eru til
minkaeldis á Íslandi, prófa samstarf
við okkur og meta aðstæður. Þeir
hafa óbilandi trú á framtíðinni og
sannfærðir um að nægur markaður
verði á komandi árum fyrir skinnin.
Þeir eru því ekki hræddir við að gera
þetta með þessum hætti en mín
trygging fyrir því að þeir hlaupi
ekki frá þessu er sú að þeir kaupa
lífdýrin sem við svo sjáum um að
þjónusta og vinna með. Danirnir
hafa í raun enga beina aðkomu að
rekstri búsins aðra en að ég verð í
góðu sambandi við þá og þeir ætla
að koma hér reglulega og fylgjast
með. Þetta er mjög reynslumikið
fólk sem hefur verið í minkarækt í
tugi ára, þannig að við eigum eflaust
eftir að eiga líflegar umræður um
hvernig reka eigi minkabú en það
erum við sem ráðum og þeir hætta
þá ef þetta gengur ekki, en ég er
samt mjög bjartsýnn á að þetta eigi
eftir að ganga vel,“ sagði Einar að
lokum. /VH
Einar Eðvald Einarsson.
Sauðárkrókur:
Tilraun með almenningssamgöngur
á Sauðárkróki stendur fram í mars
Byggðaráð Sveitarfélagsins
Skagafjarðar samþykkti á síðari
hluta árs 2020 að hefja almennings
samgöngur á Sauðárkróki í
tilraunaskyni fram til marsloka
á þessu ári. Einungis verður ekið
innan þéttbýlisins.
Skólabörnum er heimilt að nýta
sér þessar ferðir og hafa þar forgang
umfram fullorðna segir í fundargerð
byggðaráðs. Einnig að allar ferðir
séu gjaldfrjálsar á þessu tímabili.
Lögð verður áhersla á að öryggi
þeirra sem nýta sér slíkar samgöngur
verði sem best tryggðar, m.a. með
reglum um hámarkshraða.
Að tilrauninni lokinni mun
byggðaráð meta árangurinn og
hvort haldið verði áfram með
verkefnið en m.a. verður tekið tillit
til mismunandi þátta við það mat,
kostnaðar, notkunar og stefnu um
heilsueflingu svo dæmi séu tekin.
/MÞÞ
Allar „strætóferðir“ verða gjaldfrjálsar á þessu tilraunatímabili.
Fuglaflensa fer eins og
eldur í sinu um Evrópu
Að undanförnu hefur fuglaflensa
farið eins og eldur um sinu í
Evrópu. Flest fuglaflensutilfelli
sem greinst hafa í Evrópu síðustu
mánuði eru vegna skæðrar
fuglaflensuveiru af gerðinni H5N8.
Mikilvægt er að hafa í huga að fólk
getur smitast af fuglaflensu.
Afbrigðið hefur greinst bæði í
villtum fuglum og fuglum í eldi.
Villtir fuglar virðast hafa mesta
þýðingu fyrir útbreiðslu veirunnar.
Mast er á vaktinni
Á heimasíðu Matvælastofnunar
segir að stofnunin fylgist stöðugt
með þróun faraldursins og metur
áhættu fyrir Ísland. Stofnunin hvetur
fuglaeigendur að huga ávallt vel að
smitvörnum og búa sig undir þann
möguleika að fyrirskipaðar verði
sérstakar smitvarnaráðstafanir.
Ekki þörf á auknum viðbúnaði
Matvælastofnun álítur ekki þörf fyrir
aukinn viðbúnað hér á landi enn sem
komið er en um leið og farfuglarnir
fara að skila sér aftur til landsins er
hugsanlegt að það breytist.
Stofnunin minnir fuglaeigendur
á að gera ráðstafanir til að verja
fugla sína fyrir smiti frá villtum
fuglum með því að viðhafa
ávallt góðar almennar smitvarnir,
forðast að hafa nokkuð í umhverfi
fuglahúsa sem laðar að villta fugla,
gæta þess að fóður og drykkjarvatn
sé ekki aðgengilegt villtum fuglum
og halda fuglahúsum vel við.
Fuglaeigendur eru líka beðnir um
að vera vakandi og hafa samband
við Matvælastofnun ef þeir verða
varir við sjúkdómseinkenni eða
aukin dauðsföll.
Svínabændur sem eru líka með
alifugla þurfa að gæta sérstaklega
vel að smitvörnum því svín geta
líka smitast af fuglaflensu.
Almenningur beðinn
að hafa augun opin
Almenningur er beðinn um að
tilkynna Matvælastofnun ef villtir
fuglar finnast dauðir og orsök
dauða þeirra er ekki augljós.
Það má gera með því að senda
ábendingu eða tölvupóst á mast@
mast.is eða hringja í 530-4800 á
opnunartíma.
Þrjú viðbúnaðarstig
Matvælastofnun hefur skilgreint
þrjú viðbúnaðarstig vegna fugla-
flensu. Viðbúnaðarstig 1 er alltaf
í gildi en ef líkur aukast á að skæð
fuglaflensa berist til landsins tekur
viðbúnaðarstig 2 gildi. Þá mun
Matvælastofnun leggja til við ráð-
herra að fyrirskipa tímabundnar
aðgerðir til að hindra að flensan
berist í alifugla og aðra fugla í
haldi. Komi upp grunur um skæða
fuglaflensu eða hún staðfest, fær-
ast viðbrögð yfir á stig 3.
Mikilvægt er að hafa í huga
að fólk getur líka smitast af
fuglaflensu. Við handfjötlun
dauðra fugla er því nauðsynlegt að
gæta smitvarna, að minnsta kosti
nota grímur og hanska. Þegar um
er að ræða smit í hópi fugla þurfa
þeir sem vinna að aðgerðum að
klæðast fullkomnum hlífðarbún-
aði. Það skal þó tekið fram að það
afbrigði sem nú geisar í Evrópu
hefur hingað til ekki valdið sýk-
ingum í fólki. Engar vísbendingar
eru um að fólk geti smitast af
neyslu eggja og kjöts.
/VH
Snemmbær Aðlögun
Það er fátítt að lömb komi í
heim inn á þessum árstíma en
það gerðist þó á bænum Gríshóli
í Helgafellssveit.
Þann 9. janúar bar ærin Aðlögun
tveimur fallegum gimbrum, sem
hafa fengið nöfnin Fanney og
Ísold. Aðlögun bar á eðlilegum
tíma í vor en hefur greinilega
átt ævintýri í úthaganum í
sumar. Á bænum Gríshóli búa
mæðginin Guðrún Reynisdóttir
og Guðmundur Karl Magnússon
með um á fjórða hundrað fjár.
/MHH