Bændablaðið - 14.01.2021, Síða 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 202112
FRÉTTIR
Menningarsetur Skagfirðinga:
Gjöf til uppbyggingar á skólamann-
virkjum í Varmahlíð
Stjórn Menningarseturs Skag
firðinga hefur ákveðið að hætta
starfsemi og afhenda sveitar stjórn
Sveitarfélagsins Skagafjarðar
allar eigur Menningar setursins
sem eru eftir sölu eigna
214.000.000 króna.
Í ljósi stofnskrár og með hlið
sjón af sögu Menningarseturs
Skagfirðinga fylgir gjöfinni sú
kvöð að þessum fjármunum skal
varið til uppbyggingar skólamann
virkja í Varmahlíð.
Menningarsetur Skagfirðinga
er sjálfseignarstofnun sem stofnuð
var 1958. Skipulagsskrá hennar var
samþykkt af dómsmálaráðherra og
forseta Íslands árið 1965. Stofnendur
voru áhugafólk um uppbyggingu á
skóla og þjónustu í Varmahlíð.
Forveri Menningarseturs Skag
firðinga var Varmahlíðar félagið
sem var stofnað árið 1936, og hafði
það meginmarkmið að byggja upp
héraðsskóla í Varmahlíð. Til að sú
uppbygging gæti orðið að veruleika
keypti Varmahlíðarfélagið jarðirnar
Reykjarhól og Varmahlíð af ríkis
sjóði árið 1941, en segja má að þær
fjárfestingar hafi verið undirstaðan
í allri uppbyggingu í Varmahlíð.
Með tímanum hafa hlutverk
og áherslur hjá Menningarsetri
Skagfirðinga breyst, sveitarfélögin
hafa einnig stækkað og þjónustu
hlutverk þeirra aukist í bæði skóla
málum sem og á öðrum sviðum. Í
ljósi þessa var samþykkt á stjórnar
fundi Menningarseturs Skagfirðinga
17. desember 2020 síðastliðinn að
hætta starfsemi og afhenda sveitar
stjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar
allar eigur Menningarsetursins. /VH
Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri og Einar Eðvald Einarsson, loðdýrabóndi
að Syðra-Skörðugil, við afhendingu gjafarinnar.
Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra:
Hæstu styrkir til BioPol
og Sýndarveruleika
Uppbyggingarsjóður Norðurlands
vestra hefur úthlutað styrkjum til
fjölmargra og áhugaverðra verk
efna í fjórðungnum. Alls bárust
123 umsóknir þar sem óskað var
eftir 228 milljónum króna.
Við tók yfirferð úthlutunarnefnd
ar og fagráða sjóðsins sem lauk
skömmu fyrir jól en niðurstaðan
var sú að alls hlutu 69 umsóknir
brautargengi og fengu í allt samtals
rúmar 75 milljónir króna.
Á sviði atvinnuþróunar og
nýsköpunar fengu 28 umsóknir
styrk samtals að upphæð rúmar 37
milljónir króna og á sviði menningar
var samþykkt að styrkja 41 umsókn
með rúmum 38 milljónum króna.
Engin úthlutunarhátíð var að þessu
sinni vegna samkomutakmarkana.
Fjármagn Uppbyggingarsjóðsins
er hluti af samningi Samtaka
sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
við stjórnvöld um framkvæmd
Sóknaráætlunar Norðurlands vestra
2020–2024.
Ærkjöt betri nýting
Sjávarlíftæknisetrið BioPol ehf.
hlaut þrjá styrki samtals um
5,5 milljónir króna og félagið
Sýndarveruleiki hlaut tvo styrki,
annars vegar stofn og rekstrarstyrk
og hins vegna vegna verkefnis við
stafræna Sturlungaslóð í Skagafirði.
Styrkir til Sýndarveruleika nema
5,2 milljónum króna. Félagið
Brjálaða gimbrin ehf. fékk einnig
styrki, annars vegar vegna verkefnis
sem nefnist Ærkjöt betri nýting og
hins vegar verkefnisins Hæverski
hrúturinn, samtals tæplega 3
milljónir króna.
Fullnýting í sauðfjárrækt
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi
hlaut styrki við þessa úthlutun
Uppbyggingarsjóðs, m.a. stofn
og rekstrarstyrk og einnig vegna
sumarsýningar og stofutónleika.
Kakalaskáli ehf. fékk stofn og
rekstrarstyrk að upphæð 2,2
milljónir króna. Pure Natura
ehf. fékk styrk að upphæð 1,4
milljónir króna vegna verkefnis um
fullnýtingu í sauðfjárrækt.
Fíflarót og burnirót
Þá má nefna að Árni Rúnar
Örvarsson fékk rúmlega 1,1,
milljón vegna verkefnis sem snýst
um verðmætaaukningu íslensks
æðardúns. Embla Dóra Björnsdóttir
fékk tæplega 1 milljón vegna
verkefnis sem nefnist, Fíflarót – allra
meina bót og María Eymundsdóttir
fékk 830 þúsund vegna verkefnis
sem snýst um ræktun á burnirót á
Íslandi. /MÞÞ Íbúar í Hörgársveit verði
um 900 innan fárra ára
Gert er ráð fyrir að íbúum í
Hörgársveit fjölgi um 200 til
250 íbúa á ári næstu árin. Íbúar
Hörgársveitar eru nú um 650
talsins, en verið er að byggja
upp íbúðahverfi við Lónsbakka
sem miðar að því að íbúum
fjölgi umtalsvert á næstu árum.
Þá er einnig verið að byggja á
öðrum svæðum í sveitarfélaginu
og hugur stendur því til þess að
íbúar verði um 900 talsins innan
fárra ára.
„Þessari fjölgun þarf að mæta
með uppbyggingu innviða og er
stækkun leikskólans Álfasteins
dæmi þess. Nú eru 45 börn í leik
skólanum og strax í vor verða þau
komin yfir 50 og mun fjölga jafnt
og þétt. Leikskólinn er fullsetinn og
verður það þar til byggingu nýrrar
deildar verður lokið í mars en með
henni getum við mætt fjölguninni
sem fram undan er,“ segir Snorri
Finnlaugsson sveitarstjóri í
áramótapistli sínum.
Skólastarfið hjartað
í samfélaginu
Hann segir að mikil ásókn sé í
þær nýju íbúðir sem verið er að
byggja, m.a. á Lónsbakka, og
virðist fólk kunna vel að meta
umhverfið og það orðspor sem fer
af góðu sveitarfélagi sem vel hlúi
að menntun og uppeldismálum.
Nemendur í Þelamerkurskóla eru
nú 67 og mun þeim fjölga talsvert
frá árinu 2023 og svo jafnt og þétt
ef áætlanir ganga eftir. „Skólastarf
Álfasteins og Þelamerkurskóla er
hjartað í samfélaginu, öflugt og gott
og mörgum öðrum til eftirbreytni,“
segir Snorri. Íbúar í Hörgársveit fá
afhent árskort í sund án endurgjalds
og segir sveitarstjórinn það vera
hluta af góðum lífsgæðum.
Sterk staða
Þrátt fyrir áhrif af völdum kórónu
veirunnar hafi sveitarfélaginu tekist
að halda í fjárhagslega sterka stöðu
sína. „Við nutum þess að hafa ekki
skuldsett okkur síðustu ár þrátt fyrir
uppbyggingu og áttum orðið í sjóði
sem við gátum nýtt til að mæta bæði
tímabundnum áföllum í rekstri og
haldið áfram framkvæmdum og
heldur bætt í ef eitthvað var,“ segir
Snorri og bætir við að tekjur hafi
vissulega lækkað, einkum í kringum
sundlaugina sem var lokuð svo
vikum skipti á árinu.
Engin ný lán voru tekin á árinu
þrátt fyrir um 100 milljón króna
framkvæmdir. Á næsta ári er hins
vegar gert ráð fyrir lántökum til
að halda áfram uppbyggingu, til
að fjölga íbúðum og íbúum og fá
þannig fleiri til að standa undir
framtíðarrekstri sveitarfélagsins.
Á liðnu sumri störfuðu um 30
námsmenn á aldrinum 13 til 25
ára hjá sveitarfélaginu við að fegra
sveitarfélagið en eitt verkefnanna
var að handgera nýjan göngustíg í
kringum Hjalteyrartjörn. /MÞÞ
Leikskólinn Álfasteinn í Hörgársveit er fullsetinn og verður það þar til
byggingu nýrrar deildar verður lokið í mars.
Mikil ásókn er í nýjar íbúðir sem verið er að byggja í hverfinu við Lónsbakka.
Myndir / MÞÞ
Vitinn á Svalbarðseyri 100 ára
Svalbarðseyrarviti varð 100
ára á nýliðnu ári, en hann var
byggður árið 1920. Sveitarfélög
við Eyjafjörð kostuðu byggingu
vitans en ríkissjóður greiddi
stærsta hlutann.
Vitinn er byggður eftir sömu
teikningu og vitarnir í Hrísey og
Papey. Vitinn er 7,5 m yfir sjó og er
ljóshæð hans 9 m yfir sjó. Vitavörður
er Eiríkur Ásmundsson.
Árið 1933 var byggt steinsteypt
anddyri við Svalbarðseyrarvita en
hönnuðir vitans voru þeir Thorvald
Krabbe og Guðmundur J. Hlíðar,
verkfræðingur og hönnuður
anddyris var Benedikt Jónasson
verkfræðingur.
Umhverfið verður lagað
Umhverfi vitans hefur verið lagað og
til stendur að leggja hellur umhverfis
hann næsta vor eða sumar þegar
lagfæringum á varnargarði lýkur.
Vitinn var málaður síðastliðið sumar.
Vitinn var upphaflega hvítur að lit,
með rauðri rönd á miðjum veggjum
en var síðar málaður gulur.
Fjöldi ljósmynda er til af
Svalbarðseyrarvita og nú í byrjun
árs 2021 verður hafist handa við að
safna myndum og skrá þær. Stefnt
er að því að skilti verði sett upp
með upplýsingum um vitann og
dýralífið í kringum Svalbarðstjörn.
Þetta kemur fram á vefsíðu
Svalbarðsstrandarhrepps. /MÞÞ
Vitinn á Svalbarðsseyri varð 100 ára
á nýliðnu ári. Til stendur að fegra
umhverfi hans og setja skilti með
upplýsingum um vitann og dýralífið
í kringum Svalbarðstjörn.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
GRAFAGRINDUR
GOTT ÚRVAL
Bænda
28. janúar