Bændablaðið - 14.01.2021, Page 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 202116
Guðjón Einarsson
gudjone3@gmail.com
Nýliðið ár, 2020, COVID-
19 árið var mörgum erfitt,
ekki síst fyrirtækjum og
einstaklingum sem hafa haft
afkomu sína af ferðamennsku
og tengdum greinum.
Öðrum þótti árið erfitt eða
bara leiðinlegt vegna þeirra
takmarkana sem settar voru
á samkomur og skemmtanir
af öllu tagi.
Mikið hefur verið rætt og
ritað um um lausnir og hvort
rétt hafi verið að grípa til hinna
eða þessara aðgerða. Sjálfur hef
ég litið svo á að ég hafi engar
forsendur til að taka vitræna
afstöðu um hvort rétt sé að
bera andlitsgrímu eða ekki. Ég
hef því valið að fara að ráðum
sóttvarnaryfirvalda og vera með
grímu í almannarými og halda
mig að mestu heima.
Fyrstu vikurnar eftir að
alvarleiki pestarinnar varð
að veruleika birgði ég mig
upp af humar og íslenskum
landbúnaðarafurðum, hvít- og
rauðvíni. Afstaða mín var sú
að ef ég yrði settur í sóttkví og
gæti jafnvel dáið þá skyldi ég
að minnsta kosti njóta lífsins
eins og hægt væri með góðum
mat og drykk. Dósamatur er
ekki matur í mínum huga og
bannvara.
Ólíkt fjölda fólks gat ég
samt sem áður mætt til vinnu
og einangrast ekki og gat haft
samskipti við samstarfsmenn
mína á vinnustað og gegnum
fjarfundi. Framan af var
ég talsverður klaufi hvað
það varðar að komast inn á
fjarfundina en nú orðið er
mér sagt að ég tali of mikið á
þessum fundum og að aðrir eigi
erfitt með að komast að.
Á mínum vinnustað, sem er
í fremur stóru húsnæði, hefur
starfsfólk getað valið hvort
það vill vinna heima eða mæta.
Margir hafa gert hvort tveggja
eftir þörfum, aðrir mætt upp á
dag og enn aðrir ekki komið í
hús síðan um mitt síðasta ár.
Í kjölfar alls kyns takmark-
ana á samkomuhaldi hélt ég mig
að mestu heima í frítíma mínum
eins og reglur gerðu ráð fyrir
og sótti ekki mannamót. Ekki
það að ég sakni fjölmennis, ég
er það sem kallast „introvert“
og líklega „antisocial“.
Tómstundir mínar fóru mikið
í að lesa bækur og hlusta á
tónlist þar sem ég er ekki mikið
fyrir sjónvarp nema þá einstaka
bíómynd og seríu. Ég las alls
konar bækur, bæði skáldsögur
og fræðirit, skemmtilegar
og góðar bækur en einstaka
sinnum grútleiðinlegar bækur
sem ég lét mig samt hafa að
klára. Hvað tónlist varðar
húkkaðist ég á miðalda- og
kirkjutónlist ásamt því að rifja
upp eitt og annað sem ég var
búinn að gleyma.
Samkvæmt fréttum fer að sjá
fyrir endann á pestinni og er
það vel og mörgum skiljanlega
létt. Ekki síst þeim sem eru
með undirliggjandi sjúkdóma
og hafa misst atvinnuna vegna
ástandsins.
Niðurstaða mín er sú að þrátt
fyrir allt hafi árið 2020 fyrir
mér verið að mestu hefðbundið
þrátt fyrir COVID-19. Að því
undanskildu að ég borðaði
meira af humar en undanfarin
ár, sem var alls ekki svo slæmt.
Það sem ég sakna helst
er að ég hafi ekki komist í
utanlandsferð síðastliðið haust
og ég hafði hlakkað mikið til.
En hvað um það, vonandi kemst
ég í hana næsta haust.
Ég hlakka til ársins 2021 og
óska öllum heilla. /VH
STEKKUR
Áætlað er að 20–50% af fisk-
aflanum úr heimshöfunum
komi frá ólöglegum, óskráðum
eða stjórnlausum veiðum. Þetta
er ein ástæða þess að mörgum
fiskistofnum hrakar hratt.
Rányrkjan kemur harðast niður á
fátækum strandveiðisamfélögum.
Þessi ólöglega starfsemi elur svo
af sér annars konar glæpi, svo
sem vinnuþrælkun og mansal, en
glæpamennirnir sleppa yfirleitt
með lágar sektir og halda síðan
áfram iðju sinni.
Þessar ólöglegu veiðar birtast á
margvíslegan hátt. Breska tímaritið
The Economist gerir þessu málefni
skil nýlega og nefnir nokkur dæmi.
Nú um nokkurra ára skeið hefur
það undarlega gerst að frumstæð
tréfiskiskip frá Norður-Kóreu hefur
rekið upp að strönd Japans í hundraða
tali, oftast mannlaus en stundum
með líkamsleifum sjómanna
um borð. Vitað er að fiskveiðar í
Norður-Kóreu eru vanþróaðar en
sjórinn við strendur landsins er
ríkur af sjávarfangi. Því hafa menn
furðað sig á því að svona frumstæðar
fleytur hafi leitað svo langt frá landi
að þær hafi annaðhvort týnst eða
hrakist af leið í stormum og stórsjó
í Japanshafi.
Þúsund skip á veiðum
Á sama tíma hefur strandgæsla
Suður-Kóreu orðið þess vör að stór
floti hraðskreiðra smokkfiskskipa frá
Kína hafi siglt í einni röð í gegnum
lögsögu Suður-Kóreu með slökkt
á sjálfvirku auðkenniskerfi þeirra
(AIS). Með hjálp gervihnattaeftirlits
hefur verið áætlað að næstum eitt
þúsund kínversk smokkfiskskip hafi
verið að veiðum á ári hverju innan
200 mílna lögsögu Norður-Kóreu.
Ofveiði þessara skipa er talin hafa
hrakið norður-kóreska sjómenn
lengra á haf út en góðu hófi gegnir
með fyrrgreindum afleiðingum. Auk
þess er ofveiði kínversku skipanna
við strendur Norður-Kóreu talin
orsök þess að mjög hefur dregið úr
smokkfiskafla úti fyrir ströndum
Suður-Kóreu og Japans hin síðari ár.
The Economist segir að ólíklegt
sé að kínversku skipin séu þarna
að veiðum samkvæmt samningi
kínverskra stjórnvalda og Kim Jong
Un, einræðisherra í Norður-Kóreu,
en jafnvel þótt sú sé raunin séu
veiðarnar engu að síður ólöglegar
því þær séu brot á viðskiptabanni
Sameinuðu þjóðanna frá 2017
gagnvart Norður-Kóreu vegna
kjarnorkuvopnamála.
Kínverjar umsvifamiklir á
heimshöfunum
Kínverjar eru mjög umsvifamiklir
í fiskveiðum á heimshöfunum.
Skömmu eftir að skýrsla um
smokkfiskveiðar þeirra við Norður-
Kóreu var birt var frá því skýrt að
floti 260 kínverskra fiskiskipa væri
á smokkfiskveiðum rétt utan við
lögsögu Ekvador við Galapagoseyjar
og sum þeirra hefðu slökkt á
tækjum sínum og laumast inn fyrir
lögsögumörkin. Flest skipanna voru
þó að veiðum á alþjóðlegu hafsvæði
og virtust því ekki brjóta nein lög.
Smokkfiskveiðar í úthafinu eru ekki
háðar neinni stjórnun gagnstætt því
sem á við um t.d. túnfiskveiðar,
og því er ekki hægt að hafa neinn
hemil á þeim. Kínverski flotinn
flytur sig yfirleitt í kringum áramót
að landgrunnsbrún Argentínu og
mokar þar upp smokkfiski áður en
smokkfiskvertíð Argentínumanna
byrjar í kjölfar hrygningar. Þetta
skerðir lífsafkomu þúsunda suður-
amerískra fiskimanna sem veiða
nær landi.
Sókn í smokkfisk í heimshöfunum
hefur aukist verulega í seinni tíð
vegna þess hve mjög hefur verið
gengið á stofna fiska sem eru
ofar í fæðukeðjunni. Þetta er ekki
síður alvarleg þróun vegna þess
að smokkfiskur er mikilvæg fæða
margra fisktegunda, sem fiskimenn
með ströndum fram byggja afkomu
sína á.
Víðtækt vandamál
Þótt kínverski flotinn sé sá
umsvifamesti á heimshöfunum
er hann auðvitað ekki sá eini.
Þannig hefur verið ljóstrað upp
um ólöglegar veiðar næstum
200 íranskra fiskiskipa sem nota
reknet til veiða á túnfiski undan
ströndum Sómalíu og Jemen og
svo eru ólöglegar veiðar á hinum
verðmæta tannfiski í Suðurhöfum
einnig áhyggjuefni, svo einhver
dæmi séu nefnd.
Þótt ólöglegar veiðar svonefndra
sjóræningjaskipa séu alvarlegt og
útbreitt vandamál má ekki loka
augunum fyrir því að flest brotin eiga
sér stað á skipum sem eru löglega
skráð. Skip sem veiða meira en þau
hafa leyfi fyrir eða skrá ranglega þær
tegundir sem þau veiða. Skip sem
nota ólögleg reknet eða net með of
smáum möskvum svo inn hrúgast
meðafli sem síðan er fleygt í sjóinn,
bæði fiskur og friðuð sjávardýr.
Vinnuþrælkun og
mannréttindabrot
Svo rammt kveður að þessum
lögbrotum að eftirlitsaðilum í
fátækari löndum heims, svo sem
í Afríku, Suðaustur-Asíu og við
Kyrrahaf, er algjörlega ofviða að
stemma stigu við þeim eða koma
lögum yfir brotamennina. Ofan
á fiskveiðilagabrotin koma svo
alvarleg mannréttindabrot á sjó.
Vinnuþrælkun og önnur misnotkun
á vinnuafli er útbreidd um borð í
asískum fiskiskipum. Fiskveiðar
eru gríðarlega stór atvinnugrein í
Taílandi en Taílendingar eru sjálfir
tregir til að ráða sig í skipsrúm
og því er tugþúsundum manna
smyglað inn í landið á ári, aðallega
frá Kambódíu og Míanmar, til að
vinna á skipunum. Óvandaðir
skipstjórar versla með þessa menn
eins og búfénað og aðbúnaðurinn
og meðferðin á mannskapnum er oft
eins og í þrælabúðum. Taívan hefur
einnig orð á sér fyrir illa meðferð á
sjómönnum og slæma umgengni um
fiskistofna. Það leiddi m.a. til þess að
Evrópusambandið hótaði árið 2015
að banna innflutning á sjávarafurðum
frá landinu og bandarísk tollayfirvöld
hafa hert eftirlit sitt af sömu ástæðu.
Ólöglegum veiðum fylgir svo einnig
önnur ólögleg starfsemi, svo sem
vopnasmygl og peningaþvætti.
Hvað er til ráða?
Erfitt er að meta umfang ólöglegra,
óskráðra og stjórnlausra veiða í
heimshöfunum en hugveitan Stimson
NYTJAR HAFSINS
Árið gert upp
Þ ótt ólöglegar veiðar svonefndra sjóræningjaskipa séu alvarlegt og
útbreitt vandamál má ekki loka
augunum fyrir því að flest brotin
eiga sér stað á skipum sem eru
löglega skráð.
Argentínska strandgæslan hefur afskipti af kínversku túnfiskveiðiskipi.
ólöglegum
óskráðum stjórnlausum
Eitt af hundruðum norður-kóreskra „draugabáta“ sem rekið hafa upp að strönd Japans í seinni tíð.