Bændablaðið - 14.01.2021, Qupperneq 29

Bændablaðið - 14.01.2021, Qupperneq 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 2021 29 móður minni. Auk þess sem ég tók upp eftir henni að gera eftir­ rétt úr rabarbarahófum sem voru nýttir hér áður fyrr því þeir voru kjarnmestir. Þá sýður maður niður rabarbara og sveskjur í sykurvatni og fyrr á tímum var þetta borð­ að með ís eða þeyttum rjóma á sunnudögum. Mamma var uppi á þeim tíma sem allt var nýtt til hins ýtrasta og reynt að drýgja eins og hægt var. Síðan leitaði ég í bók Helgu Sigurðardóttur sem heitir Matur og drykkur og sá þar ýmis­ legt fróðlegt.“ Ræktun og framleiðsla fer fram á æskuslóðum Rögnu að Þverá en þar er viðurkennt eldhús til fram­ leiðslunnar. „Ég tek upp rabarbara tvisvar til þrisvar yfir sumarið. Síðan var ég svo heppin að komast í kynni við mann inni á Akureyri sem er með mjög stóran garð og aðeins brotabrot af honum er nýtt. Þar fæ ég að taka upp rauðan rabar­ bara. Ég sel líka ferskan rabarbara og frosinn sem ég er þá búin að vakúmpakka. Mín sýn er að geta nýtt sem mest af því sem jörðin gefur án þess að kosta miklu til og nota til dæmis Spánarkerfil sem vex upp við húsið á Þverá til að fá anísbragðið.“ Elskar að vera sjálfs síns herra Ragna er búin að vera dugleg að fara með vörur sínar á markaði sem hefur gengið framar vonum að hennar sögn. Einnig er hún að­ ili að Beint frá býli og Samtökum smáframleiðenda. Þá eru vörurnar hennar til sölu í Gott og blessað í Hafnarfirði. „Ég er aðallega í þessu mér til skemmtunar en þetta er orðið meiri vinna en ég bjóst við. Mér finnst skemmtilegt að fara á markaði, hitta fólk og selja. Það skiptir mig miklu máli að básinn minn sé fal­ legur og að það sjáist að ég sé að vanda mig. Mér finnst áhugavert að sjá hvað selst öðruvísi hér fyrir norðan en fyrir sunnan og selst til dæmis gamaldags rabarbarasulta mjög vel fyrir sunnan,“ segir Ragna brosandi og bætir við: „Það gerðist heilmikið hjá mér í þessu á síðasta ári þrátt fyrir kórónuveirufaraldurinn, eins og til dæmis varðandi að bæta merk­ ingar. Nú er ég í þeirri stöðu fyrir næsta sumar að ég þarf að útvega mér meira hráefni, vera duglegri að taka meira upp af rabarbara yfir sumarið til að eiga nóg í fram­ leiðsluna út árið. Þannig að þetta sem byrjaði hjá mér sem smá flipp og ævintýri hefur aðeins undið upp á sig og það er mjög skemmtilegt, enda elska ég að vera sjálfs míns herra.“ Maður Rögnu, Jón Illugason, er liðtækur að hjálpa konu sinni eins og hér sést við að líma merkimiða á rabarabarakrukkur. Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 SÍUR Í DRÁTTARVÉLAR GRÓÐURHÚS TÖLVUPÓSTUR sala@bkhonnun . is SÍMI 571-3535 VEFFANG www .bkhonnun . is BJÁLKAHÚS Mikið úrval! Á GRÓÐURHÚSUM TILBOÐ Í JANÚAR Á BJÁLKAHÚSUM TILBOÐ Í JANÚAR A L H L I Ð A B Ó K U N A R K E R F I R E K S T R A R Þ J Ó N U S T U R S Í M A O G P Ó S T Þ J Ó N U S T A T E K J U - O G V E R Ð S T Ý R I N G W W W . G O D O . I S HÖFÐABAKKI 9A - 1 10 REYKJAV ÍK S ÍMI : 555 4636 NETFANG : INFO@GODO . I S ERT ÞÚ Í GISTIREKSTRI ? GODO BÝÐUR UPP Á FRÁBÆRAR TÆKNI - OG REKSTRARLAUSNIR FYR IR E INSTAKL INGA OG FYRIRTÆKI Í FERÐAÞJÓNUSTU Friðheimar er fyrirmyndarfyrirtæki Ábyrgrar ferðaþjónustu Garðyrkjubýlinu og hestamið stöð­ inni Friðheimum í Reykholti var á degi Ábyrgrar ferðaþjónustu þann 7. janúar veitt hvatningarverðlaun Ábyrgrar ferðaþjónustu. Það var Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sem veitti hjónunum Knúti Rafni Ármann og Helenu Hermundardóttur garðyrkju­ fræðingi viðurkenningu, en þau reka Friðheima ásamt fjölskyldu sinni. Í Friðheimum eru ræktaðir tómatar allan ársins hring í raf­ lýstum gróðurhúsum og tekur fjöl­ skyldan á móti gestum og sýnir þeim hvernig ræktunin gengur fyrir sig og gefur að smakka. Þá er boðið upp á hestasýningar í Friðheimum, en þar er einnig stunduð hrossarækt. Skapar einstaka upplifun í ferðaþjónustu Í rökstuðningi dómnefndar segir að Friðheimar sé fjölskyldufyrir­ tæki sem hafi vaxið og dafnað í gegnum árin með það að markmiði að ganga vel um og virða náttúruna. „Umhverfismál eru eigendum hug­ leikin, þau hafa verið í hvatningar­ verkefninu Ábyrg ferða þjónusta frá upphafi. Þá er fyrirtækið með bronsvottun Vakans og stefna þau ótrauð á gullið. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á réttindi starfsfólks. Nýliðaþjálfun og fræðsla er til fyrirmyndar enda er starfsfólk hjarta fyrirtækisins, eins og þau segja sjálf. Á nýliðnu ári var lögð áhersla á að halda öllu starfs­ fólki og byggja upp sterka innviði fyrir bjartari tíma. Á Friðheimum er lögð áhersla á stuðning við nærsamfélagið, m.a. með því að versla í héraði auk þess sem allir gestir eru upplýstir um ylrækt á Íslandi og þá merku sögu sem svæðið hefur að geyma. Fyrirtækið leggur áherslu á nýsköp­ un og tileinkar sér umhverfisvænar lausnir, má þar nefna aðferðir til að minnka matarsóun og lágmarka kolefnisspor. Friðheimar eru lifandi dæmi um hvernig íslenskt hugvit þar sem landsins gæði eru nýtt getur orðið til þess að skapa einstaka upplifun í ferðaþjónustu. Upplifun sem tengir saman marga þætti og styður við þá hugsun að nýta landið á sjálfbæran hátt, fræða, skapa, upplifa og vinna saman að því að bæta umhverfi og samfélag. Dómnefnd vill jafnframt koma því á framfæri að tilnefningar að þessu sinni voru mjög frambæri­ legar og vel rökstuddar. Það væri greinilegt að mörg fyrirtæki eru að standa sig frábærlega, svo eftir því er tekið. Af þeim sökum var val dómnefndar alls ekki einfalt. Það var þó einróma niðurstaða dóm­ nefndarinnar, þegar allir þættir voru teknir saman, að Friðheimar séu vel að þessum hvatningarverðlaunum komin. Uppbyggingin á Friðheimum getur verið okkur öllum innblástur um hvað hægt er að gera með íslenskt hugvit og íslenskt hráefni í höndunum og ábyrga ferðaþjónustu að leiðarljósi.“ Verkefninu um Ábyrga ferða­ þjónustu hefur verið haldið úti frá 10. janúar 2017 en hátt í 200 fyrir­ tæki um allt land taka virkan þátt í verkefninu í gegnum fræðslu­ fundi, vinnustofur og viðburði. Framkvæmdaaðilar eru Íslenski ferðaklasinn og Samtök ferðaþjón­ ustunnar í samstarfi við FESTU, félag um samfélagsábyrgð. /smh Frá viðburðinum á Bessastöðum. Helena Hermundardóttir, Knútur Rafn Ármann og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.