Bændablaðið - 14.01.2021, Qupperneq 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 202132
Út af dálitlu sem hefur angrað
heiminn síðustu mánuði var ekki
hægt að halda haustfagnað Félags
sauðfjárbænda í Dalasýslu um vet-
urnætur í október sl. FSD stóð fyrst
fyrir sameiginlegri héraðssýningu
lambhrúta haustið 2005 og hefði
hrútasýningin síðasta haust því
orðið sú 16. ef samkomur hefðu
verið leyfðar. Í stað hrútasýningar
ákvað stjórn FSD að verðlauna skv.
fyrirliggjandi dómagögnum gripa
ásamt viðbótarupplýsingum úr
skýrsluhaldskerfinu Fjárvís.
Frá árinu 2008 hafa verið veitt
verðlaun fyrir efstu fimm vetra
kindina. Í ár voru það ær fæddar 2015
sem veittar voru viðurkenningar fyrir
og þurftu þær að hafa átt lömb vorið
2020 til að komast til uppröðunar.
Við uppröðun gildir heildareinkunn
kynbótamats. Jafnar í 3. og 4. sæti
voru alsystur frá Geirmundarstöðum,
ær númer 15-608 og 15-609 með
114,5 í einkunn. Í 2. sæti var ær
15-017 frá Klifmýri með 115,0 í
einkunn og í efsta sæti var ær 15-022
frá Klifmýri með 115,2 í einkunn.
Ærnar í efstu fjórum sætum þetta árið
voru allar dætur Tjalds 11-922 frá
Sandfellshaga 2 í Öxarfirði.
Efsta gimbrarlambið
Árið 2015 gáfu Kjartan og Guðrún,
fyrrum bændur á Dunk í Hörðudal,
bikar sem skyldi veittur besta gimbr-
arlambi sýslunnar. Við þessa verð-
launaveitingu koma til uppröðunar
allar þær gimbrar sem settar eru á til
lífs og hafa verið dæmdar. Einkunn
fyrir frampart, læri og þykkt ómvöðva
eru lögð saman og hæsta gimbur er
best. Til viðbótar þurfa gimbrarnar að
hafa að lágmarki 7,5 í einkunn fyrir
ull, 4 í lögun bakvöðva og ómfita
þarf að vera á milli 1,5 og 4 mm. Eins
þurfa þær að hafa að lágmarki 100
BLUP stig fyrir frjósemi og mjólk-
urlagni. Þegar gripir eru jafnir ræður
ómfita og lögun bakvöðva röðun.
Í þriðja sæti var 20-140 frá
Geirmundarstöðum með 67 í einkunn
en hún hafði 38 mm ómvöðva, 10
í einkunn fyrir frampart og 19 í
einkunn fyrir læri. Faðir hennar er
Loki 19-531 sem var undan Heiki
18-524, héraðsmeistara Dalasýslu
árið 2018. Í móðurætt er gimbrin
afkomandi Veturs 12-914 frá Hesti.
Í öðru sæti var 20-249 frá Stóra-
Vatnshorni með 68,5 í einkunn en hún
hafði 40 mm ómvöðva, 9,5 í einkunn
fyrir frampart og 19 í einkunn fyrir
læri. Faðir hennar er Hiksti 19-009
undan Dreka 13-953 frá Hriflu. Í
móðurætt er gimbrin afkomandi hrúts
05-005 frá Stóra-Vatnshorni sem var
fyrsti héraðsmeistari á sýningum
FSD haustið 2005.
Efsta gimbrin var 20-143 frá
Geirmundarstöðum einnig með 68,5
í einkunn og sömu tölur og gimbrin í
öðru sæti eða 40 mm ómvöðva, 9,5 í
einkunn fyrir frampart og 19 í einkunn
fyrir læri. Við röðun réð lögun bak-
vöðva en gimbrin í öðru sæti var
með 4,5 í lögun, en sú í efsta með 5
í lögun. Ómfita á baki var sú sama á
báðum eða 2,7 mm. Faðir hennar er
Múli 19-528 sonur Glæpons 17-809
frá Hesti og í móðurætt er hún afkom-
andi Kjarks 08-840 frá Ytri-Skógum.
Verðlaun hrúta
Veitt eru verðlaun í þremur flokkum,
flokki mislitra, kollóttra og hyrndra
hrúta. Skilyrði var að hrútur væri
ásettur og ráða heildarstig. Séu
stig jöfn ráða samanlögð stig fyrir
frampart, bak, malir og læri. Ef stig
eru enn jöfn þá ræður bakvöðva-
þykkt, svo fituþykkt og lögun bak-
vöðva til að skera úr um röðun. Eins
gilti að hrútar þurftu að lágmarki 7,5
fyrir ull og 4 í lögun til að komast
til uppröðunar. Hrútlömb sem voru
gengin einlembingar undan ám
tveggja vetra og eldri voru gefin tvö
refsistig. Eins gilti að lömbin þurftu
að hafa að lágmarki 100 BLUP stig
fyrir frjósemi og mjólkurlagni.
Í þriðja sæti í flokki mislitra hrúta
var Surtur 20-539 frá Ásgarði undan
Ramma 18-834 frá Hesti og afkom-
andi Kalda 12-950 og Guma 09-880
í móðurætt. Surtur er eins og nafnið
gefur til kynna svartur að lit og hyrnd-
ur og stigaðist upp á 87 stig. Hann var
seldur að Geirmundarstöðum nú í
haust.
Í öðru sæti í flokki mislitra hrúta
var Grámann 20-504 frá Svarfhóli
en hann er grár og kollóttur að lit.
Faðir hans er Fengur 19-191, hrútur
sem var í sameign fjárræktarfé-
lags Laxárdals og frá Melum 1 í
Árneshrepp. Grámann stigaðist upp
á 87,5 stig.
Í efsta sæti í flokki mislitra hrúta
var Svarti-Smári 20-090 frá Vatni
með 89,5 stig. Faðir hans er Fannar
19-082 frá Hesti sem var seldur vet-
urgamall að Vatni en í framætt er
Fannar afkomandi Kögguls 17-810.
Svarti-Smári er svartur og hyrndur.
Kollóttir hrútar
Þegar kom að kollóttum hrútum féllu
12 hrútar út við uppröðun vegna
skilyrða um fituþykkt í ómmælingu
skyldi vera undir 4 mm eða lágmark
100 BLUP stig fyrir frjósemi og
mjólkurlagni.
Allir hrútarnir í efstu þremur sæt-
unum komu frá Sauðfelli en í þriðja
sæti var 20-362 með 87,5 stig. Sá
hrútur er undan Fálka 17-821 frá
Bassastöðum og í móðurætt afkom-
andi Hnalls 12-934 frá Broddanesi.
Í öðru sæti var 20-363 með 88
stig en faðir hans er Fannar 14-972
frá Heydalsá og í móðurætt er hann
afkomandi Kropps 10-890 og Boga
04-814.
Í efsta sæti var síðan 20-367 með
89 stig en faðir hans er heimahrút-
ur númer 18-374 sem er sonarson-
ur Plútós 14-973 frá Heydalsá en í
móðurætt er hann afkomandi Hnattar
09-887 frá Húsavík.
Hyrndir hrútar
Í þriðja sæti í flokki hyrndra lamb-
hrúta var Tandri 20-091 frá Vatni með
88,5 stig en faðir hans er Tóbías 19-
080 frá Bakkakoti í Stafholtstungum
sem var afkomandi Saums 12-915
frá Ytri-Skógum. Í móðurætt rekur
Tandri sig til Borða 08-838 frá Hesti
og Fróða 04-963 frá Hagalandi.
Í öðru sæti var Klettur 20-326
frá Háafelli undan Heimakletti
16-826 með 89 stig en í móðurætt
er hann afkomandi Kvists 07-866 frá
Klifmýri. Klettur er mjög athyglis-
vert lamb en samhliða miklum þroska
(54 kg) var hann lágfættur (104 mm)
og verður fróðlegt að sjá hvernig
afkvæmi hans koma út næsta haust.
Í efsta sæti var síðan Bessi
20-056 frá Hlíð með 89,5 stig en
hann er sonur Amors 17-831 frá
Snartarstöðum í Núpasveit og móðir
hans er ein af dætrum Dúdda 14-699
frá Ósi, en margir afkomenda Dúdda
hafa sýnt mikla yfirburði er kemur
að skrokkgæðaeiginleikum á undan-
förnum árum.
Héraðsmeistari 2020
Svarti-Smári 20-090 var héraðs-
meistari FSD árið 2020 en líkt og
Bessi 20-056 höfðu báðir 89,5 stig.
Það sem skildi þá að voru samanlögð
stig fyrir frampart, bak, malir og læri
en þar hafði Svarti-Smári 56,5 stig en
Bessi 56 stig.
Þetta er í fyrsta skipti sem mis-
litur hrútur hlýtur nafnbótina hér-
aðsmeistari FSD en í langflestum
tilvikum hafa þeir komið úr hópi
hvítra hyrndra hrúta. Svarti-Smári
var dæmdur um leið og hann kom
heim úr sumarhögum þann 7. sept-
ember en þá var hann 54 kg, fótlegg-
ur 109 mm. Ómmæling 35-3,2-5,0.
Stigun: 8-9-9,5-9,5-9,5-19-8-8-9,
alls 89,5 stig.
Eyjólfur Ingvi Bjarnason tók
saman uppröðun á dómum fyrir
stjórn FSD út frá skráðum gögnum
í Fjárvís en áður hafði verið sendur
hvatningarpóstur til félagsmanna um
að ganga frá skráningum, þ.e. setja
fullorðinsnúmer í gripina í Fjárvís og
skrá hornalag fyrir ákveðinn tíma.
Svavar Jóhannsson, formaður FSD,
og Jón Egill Jóhannsson, gjaldkeri
félagsins, fóru síðan í bíltúr rétt fyrir
jól og afhentu ræktendum þeirra
gripa sem lentu í efstu sætum viður-
kenningu fyrir árangurinn.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
ráðunautur, Búfjárræktar-
og þjónustusvið
eyjólfur@rml.is
Besta gimbrarlambið. Bryndís Karlsdóttir og Þórður Baldursson, Geirmundar
stöðum.
Besti kollótti hrúturinn. Finnbogi Harðarson, Sauðafelli.
Besti hyrndi lambhrútur Dalasýslu var Bessi, en eigandi er Svavar
Jóhannsson í Hlíð.
Besti misliti lambhrútur Dalasýslu var SvartiSmári sem jafnframt er
héraðsmeistari. Eigandi er Sigurður Hrafn Jökulsson, bóndi á Vatni.
Myndir / Jón Egill Jóhannsson
Verðlaunaveitingar Félags sauðfjárbænda í Dalasýslu 2020:
Hrúturinn Svarti-Smári frá Vatni er héraðsmeistari
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
RÚÐUR Í
DRÁTTARVÉLAR
FRÁBÆR VERÐ
John Deere
Zetor
Case IH
McCormick
Steyr
Claas
Ford
Fiat
New Holland
Deutz-Fahr
Massey Ferguson