Bændablaðið - 14.01.2021, Page 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 2021 33
Árlega úthlutar Landbótarsjóður Landgræðslunnar styrkjum
til að styðja félagasamtök, bændur, sveitarfélög og aðra
umráðahafa lands við verndun og endurheimt gróðurs og
jarðvegs. Áratugurinn 2021 til 2030 er tileinkaður endurheimt
vistkerfa og er fólk eindregið hvatt til þátttöku.
Landgræðslan veitir ráðgjöf við framkvæmd þeirra
verkefna sem sjóðurinn styrkir og hefur jafnframt eftirlit með
framvindu þeirra og metur árangur.
Opið verður fyrir umsóknir á tímabilinu frá 11. janúar til
og með 25. janúar. Umsóknareyðublöð og reglur sjóðsins eru
á heimasíðu Landgræðslunnar www.land.is. Einnig er hægt
að nálgast þessi gögn og fá nánari upplýsingar og ráðgjöf á
héraðssetrum stofnunarinnar um land allt.
Ákvörðun um styrkveitingar byggir á markmiðum laga nr.
155/2018 um landgræðslu.
Landbótasjóður Landgræðslunnar
Auglýsing um styrki fyrir árið 2021
Landgræðslan - Gunnarsholti, 851 Hella - Sími 488 3000
Veffang www.land.is – Netfang lbs@land.is
Smurefni fyrir vélvæddan
landbúnað
Nútíma landbúnaður krefst mikils vélakosts. Gæðasmurefni skipta öllu máli fyrir virkni og
endingu véla. Olís veitir ráðgjöf um olíu- og smurefnanotkun fyrir allar landbúnaðarvélar.
Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | 515 1100 | Austurvegi 69 | 800 Selfossi | 480 1306 | rekstrarland.is
NÝ VERSLUN Á SELFOSSI
Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík
Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA
VÍKURVAGNAR EHF.
RAFMAGNSBÚNAÐUR
BREMSUR
BEISLI
DEKK
LJÓS
LED LJÓS
Allar nánari upplýsingar
veita starfsmenn
Ríkiskaupa í síma 530 1400
eða í gegnum netfangið
fasteignir@rikiskaup.isBorgartúni 7c, 105 Reykjavík | Sími 530 1400 | www.rikiskaup.is
RÍKISKAUP
AUGLÝSA EFTIRFARANDI EIGN TIL SÖLU:
BORGARVÍK 18, BORGARNES – OPIÐ HÚS
ÞRIÐJUDAGINN 19. JANÚAR N.K. KL. 15:00 – 16:00
Borgarvík 18, 310 Borgarnes ásamt öllu því sem eigninni fylgir.
Birt stærð er 172,8 m2.
Einbýlishús á einni hæð 134,7 m2 ásamt 38,1 m2
sérstæðum bílskúr.
Vegna sóttvarna er nauðsynlegt að skrá sig á opið hús á
netfangið fasteignir@rikiskaup.is.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Ríkiskaupa: www.rikiskaup.is.
Verð: 42,9 mkr.
UTAN ÚR HEIMI
Breskum bændum létt
eftir samning við ESB
Bændur á Stóra-Bretlandi anda
léttar eftir að yfirvöld þar í landi
náðu viðskiptasamningi við
Evrópusambandið á aðfangadag
eftir Brexit. Menn óttuðust að
Bretar stæðu eftir án samnings
þegar bráðabirgðasamningurinn
rynni út þann 1. janúar síðastliðinn
en betur fór en á horfðist.
Rúmlega 60 prósent af matvæla-
og drykkjarframleiðslu Breta verður
flutt út til landa Evrópusambandsins
en verðmæti þessa eru rúmir
14 milljarðar punda. Með nýja
samningnum geta þeir nú flutt
þessi matvæli út tolla- og kvótafrítt
til ESB. Samningurinn er mikið
gleðiefni fyrir breskan landbúnað og
er tollfrjáls útflutningur til markaða
ESB grundvöllur fyrir áframhald
hans. Þrátt fyrir það verður ekki
þrautalaust að koma vörunum á
markað því nú gengur í hönd nýtt
eftirlit, aukin pappírsvinna og meiri
kröfur á útflytjendur sem mun auka
kostnað og flækjustig. Að sögn
Financial Times getur þetta einnig
haft í för með sér fleiri vandamál
eins og að að lágmarki 50 prósent
af vörunni verður að hafa breskan
uppruna.
Þann 18. desember birti fram-
kvæmda stjórn Evrópu sambandsins
ráð til aðildarlanda sinna um hvernig
þau eiga að vinna að stefnumótandi
áætlunum innan sameiginlegrar
landbúnaðarstefnu (CAP) til
að ná markmiðum í vaxtar- og
sjálfbærnistefnu sambandsins
(Green Deal). Framkvæmdastjórnin
óskar eftir því að aðildarlöndin
ýti á og auðveldi það að sjálfbær
landbúnaður verði leiðarstef á
sama tíma og innkoma bænda verði
tryggð. Í stefnumótandi áætlununum
á að leggja áherslu á nútímavæðingu
og virðisauka í öllum hlutum
virðiskeðjunnar ásamt því að styrkja
umhverfis- og sjálfbærnivinnuna í
landbúnaði.
Á þessu ári hyggst fram-
kvæmdastjórnin nota 183
mill j ónir evra til að markaðssetja
landbúnaðarvörur. Hátt í 10 milljónir
verða nýttar til að markaðssetja
land búnaðarvörur utan landa
sambandsins. Á árinu verða ávextir
og grænmeti ásamt lífrænum
vörum og sjálfbærum landbúnaði
forgangsraðað. Loftslags- og
umhverfismarkmið verða grunnurinn
að mati á umsóknum við notkun
á ofangreindum upphæðum til
markaðsmála. /ehg - Landbruksnytt