Bændablaðið - 14.01.2021, Qupperneq 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 2021 35
Hveitiframleiðsla heimsins heldur áfram að aukast:
Spáð er 781 milljón tonna hveitiframleiðslu á þessu ári
– Þá verða framleidd yfir 60 milljónir tonna af þurrkuðu korni fyrir vín- og bjórgerð
Samkvæmt spá Efnahagssam
vinnu og þróunar stofnunarinnar
(OECD) og Matvæla og land bún
aðar stofn unar Sameinuðu þjóð
anna (FAO), þá mun korn fram
leiðsla í heiminum aukast á árinu
2021 miðað við síðasta ár og fara í
tæplega 781 milljón tonna.
OECD og FAO gera ráð fyrir
að hveitiframleiðslan haldi áfram
að aukast á næstu árum og ný
framleiðslu met verði slegin á hverju
ári. Þannig fari hveitiframleiðslan í
heiminum yfir 800 milljón tonn árið
2024 og verði komin í 838 milljónir
tonna árið 2028. Er þetta þvert á
spár á undanförnum árum um að
samdráttur verði í hveitiframleiðslu
og annarri kornrækt vegna hlýnunar
jarðar.
ESB-löndin og Kína
framleiða mest af hveiti
Mestu hveitiframleiðsluþjóðir
heimsins á síðasta ári, samkvæmt
áætluðum tölum á vefsíðu World
Agriculture Prodution, voru ESB-
þjóðirnar samanlagt með um 143
milljónir tonna. Þá kom Kína með
um 135 milljónir tonna, Indland
með um 103 milljónir tonna,
Rússland með um 77 milljónir
tonna, Bandaríkin með tæplega 51
milljón tonna, Kanada með um 34
milljónir tonna, Úkraína með um
28 milljónir tonna og Pakistan var
með rúmlega 26 milljónir tonna,
Ástralía með um 24 milljónir tonna
og Argentína var í tíunda sæti með
um 21 milljón tonna.
Spáð um 1,2 milljarða tonna
maísframleiðslu í ár
Framleiðsla á öðrum korntegundum
hefur einnig verið að aukast og er þar
líka búist við áframhaldandi fram-
leiðsluaukningu. Þannig fór fram-
leiðsla á maís í fyrsta sinn yfir einn
milljarð tonna á árinu 2013 og verður
samkvæmt spám tæplega 1,185 millj-
arðar tonna á árinu 2021. Er því spáð
af OECD og FAO að maísframleiðsla
heimsins verði orðin yfir 1,3 millj-
arðar tonna árið 2028.
Um 304 milljónir tonna
af öðru grófu korni
Framleiðsla á „öðru grófu korni“,
sem svo er skilgreint í tölum OECD
og FAO, nam tæplega 301 milljón
tonna á árinu 2020. Er því spáð að
framleiðsla á slíku korni muni fara
í rúmlega 304 milljónir tonna á yf-
irstandandi ári.
Um 60 milljónir tonna af
korni fer í vín- og bjórgerð
Framleiðsla á þurrkuðu korni til vín-
og bjórgerðar hefur stóraukist, en
það er sérstaklega skilgreint í tölum
OECD og FAO fyrir utan aðra korn-
framleiðslu. Þannig var framleiðslan
á slíku korni í nærri 59,9 milljónir
tonna á síðasta ári og fer yfir 60
milljónir tonna á árinu 2021.
Um 538 milljónir
tonna af hrísgrjónum
Hrísgrjónaframleiðsla heimsins nam
rúmlega 532 milljónum tonna á árinu
2020 samkvæmt áætluðum tölum. Er
því nú spáð að hrísgrjónaframleiðslan
fari í tæplega 538 milljón tonn á árinu
2021. Ræktun og framleiðsla á hrís-
grjónum hefur verið að aukast jafnt
og þétt á liðnum árum og mun halda
áfram að aukast samkvæmt spám.
Hrísgrjónaframleiðsla heims ins mun
samkvæmt spám fara yfir 578 millj-
ónir tonna árið 2028. /HKr.
Íslendingar eru ekki stórtækir í framleiðslu á korni á heimvísu. Eigi að síður hefur íslenskum bændum af eljusemi tekist áratugum saman að framleiða hér ýmsar tegundir af korni, m.a. bygg,
hveiti og hafra. Hér er Páll Eggert Ólafsson, bóndi á Þorvaldseyri, að losa úr þreskivél á vagn. Mynd / HKr.
Um 60 milljónir tonna af korni eru notuð í bruggun á bjór og víni í heiminum árlega. Hér er Hákon Hermannsson í
brugghúsinu Dokkunni á Ísafirði að huga að sinni bjórframleiðslu.
Korn maltað fyrir framleiðslu á viskíi. Mynd / Whisky Intelligence
Þreskivélar á akri í Rússlandi. Mynd / Sputnik International
Hveitiuppskera í Kasakstan.
Ármúli 7, 2 hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is
Sérfræðingar
í sölu fyrirtækja
• Myndarlegt matvinnslufyrirtæki á Vesturlandi, fyrirtækið er með sterka
stöðu á Vesturlandi.Meðal viðskiptavina eru veitingahús, stofnanir og
sveitafélög. Velta er rúmar 100 milljónir.
• Áhugaverð sérverslun á Laugaveginum með mikla sérstöðu og mikil
tækifæri þegar ferðamenn birtast á ný.
• Öflugt fyrirtæki í barnavörum, velta tæpar 200 milljónir, góður hagnaður.
• Lítil heildverslun með sælgæti. Velta um 60 milljónir.
• Við vinnum að sölu á herrafataverslun, verslunin er með góð
viðskiptasambönd. Góður hagnaður hefur verið af starfseminni um árabil.
• Við höfum til sölu kvenfataverslun í Kringlunni, velta um 100 milljónir.
• Sérhæft matvælafyrirtæki sem veltir um 130 milljónum, mikill vöxtur.
• Bílasprautun með samning við öll tryggingarfélögin. Næg verkefni.
Við vinnum að nokkrum söluverkefnum sem
snúast um sterk merki í veitingarekstri
sem velta frá 200 til 400 milljónum.
Töluverð eftirspurn er eftir fyrirtækjum á verðbilinu 50 til 200
milljónir. Mest er spurt eftir fyrirtækjum í heildsölu, innflutningi,
veitingahúsum, ferðaþjónustufyrirtækjum og verktakafyrirtækjum
auk þess er eftirspurn eftir fyrirtækjum í sjávarútvegi.
Hafðu samband ef þú hefur áhuga á að skoða sölu á þínu fyrirtæki.
LANDBÚNAÐUR Á HEIMSVÍSU