Bændablaðið - 14.01.2021, Page 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 2021 39
Á FAGLEGUM NÓTUM
hvaða skref eru notuð og í hvað röð
þau eru unnin. Til dæmis er síðasta
þrepið í hreinsun á lýsi og sumum
jurtaolíum aflyktun en þá er heitri
gufu blandað saman við olíuna sem
rífur með sér rokgjörn illa lyktandi
efni. Til vinnslu á hágæða repjuolíu
fyrir matvæli og húðvörur notuðum
við bleikingu til að ná burtu græna
litnum og fosfólípíðafellingu til að ná
burtu gúmmíkendum fosfólípíðum
en þau má einnig nota í verðmætar
aukafurðir eins og fjallað er nánar
um í þessari grein
Bleiking
Fyrsta skrefið í hreinsun repju
olíunnar var bleiking, en með
henni er dregið úr magni blaðgrænu
(klórófíll) úr olíunni en blaðgrænan
hefur oxunarhvetjandi áhrif og flýtir
fyrir þránun olíunnar auk þess sem
hún gefur olíunni mjög sterkan
grænan lit.
Olía var fengin frá Þorvaldseyri
og var hún pressuð af Ólafi
bónda en ekki unnin frekar. Í
rannsóknastofunni var olían hituð
í 90°C og 3% bleikileir bætt út í
olíuna. Leirblönduð olían var höfð
við 90°C í 40 mínútur á meðan hrært
var. Í kjölfarið var leirinn síaður frá
og breytingar í olíunni mældar.
Niðurstöður sjást á myndinni
hér á síðunni. Nokkur munur var
á upphafsmagni klórófíll milli
ára en í öllum tilfellum var olían
græn fyrir bleikingu en ljósgul
eftir bleikingu og mældist þá mjög
lítið af klórófílefnum í henni eða
niður í 0,3mg/kg. Þessi hreinsaða
olía frá Þorvaldseyri var síðan
notuð af fyrirtæki okkar Taramar
til að framleiða húðvörur eins og
dagkrem og reyndust mjög vel. Áður
var olían þó unnin aðeins frekar því
fosfólípíðin voru fjarlægð.
Við bleikingu fyrir almennan
markað er einfaldlega notast við pott
sem hægt er að hræra í og vitanlega
er kostur ef hægt er að nota ketil með
gufu kápu til hitunar. Olían er síðan
síuð í síupressu eða með einfaldri
aðferð allt eftir umfangi reksturs á
hverjum stað. Bleikileirinn er ekki
dýr en verð er vitanlega mjög háð
magni sem keypt er en hann er seldur
í litlum einingum fyrir tilraunastofur
eða í 50 kg pokum og í lausu í
tonnum fyrir stærri framleiðendur
Fosfólípíðafelling
(„degumming“)
Næsta skref var fosfólípíðafelling
(degumming) en þá eru skautuð
fosfólípíð fjarlægð úr olíunni.
Að öðrum kosti geta þau fallið út
sem gúmmíkendar útfellingar sem
draga verulega úr gæðum olíunnar.
Hinsvegar má vinna verðmætar
afurðir úr fosfólípíðunum eins og
kemur fram hér fyrir neðan.
Olíur sem innihalda mikið af
fosfólípíðum hafa almennt verri
lykt og bragð og eru litsterkari. Ef
fosfólípíð eru til staðar í olíu sem á
að nota til bíódísil framleiðslu þá
geta þau haft skaðleg áhrif á hvata
sem notaðir eru í framleiðslunni
(eins og KOH) en þau valda einnig
ýringu í lausninni og gera það
að verkum að mun erfiðara er að
aðskilja ester og glyserín fasana frá
hvor öðrum.
Við framleiðslu á fosfólípíðum
úr repju notuðum við hrat frá
hjónunum Eymundi Magnússyni og
Eygló Björk Ólafsdóttur sem eiga
og reka fyrirtækið Móðir Jörð að
Vallarnesi en þar rækta þau lífræna
repju sem hentar einkar vel í þessar
rannsóknir. Fosfólípíðin eru nánast
alfarið staðsett í frumuhimnum í
olíufræjum en við vinnslu þeirra
bæði hitun og núning þegar að
olían er pressuð úr fræjum brotna
himnurnar upp og jafnframt losna
ensím úr læðingi sem losa um
fosfólípíðin sem eru bæði vatns og
fituleysanleg og þau flæða að hluta
til yfir í olíuna og eru pressuð út
með henni. Mikið af fosfólípíðum
verður þó eftir í hratinu. Magn
fosfólípíða í repjufræjum fer meðal
annars eftir afbrigðum repjunnar og
er meira af fosfólípíðum í vor og
sumarrepju ( 26,5 g/kg) heldur en í
vetrarrepju (um 19,1 g/kg) en einnig
eru til afbrigði sem liggja þarna á
milli. Í öllum jurtaolíum er því auk
þríglýseríðanna ávalt nokkuð af
fitutegundum eins og fosfólípíðum
og fitupróteinkomplexum sem hafa
gúmmíkenda áferð í olíunni.
Þegar fosfólípíð komast í
snertingu við vatn verða þau óupp
leysanleg í fitu og falla út. Það er
því algeng aðferð til að hreinsa
þessi efni úr olíum að hrista olíuna
saman við vatn og láta fosfólípíð
in falla út í vatninu. Fosfólípíðin
verða gúmmíkennd og safnast
saman og má sía þau frá olíunni
enda nefnist aðferðin á ensku „deg
umming“ og er upphaflega gerð til
að hreinsa olíuna og gera hana betri
til notkunar t.d. í matvæli, húðvörur
og á seinni tímum bíódísil. Það má
auka úrdrátt fosfólípíða með því
að nota svokallaða sýru fosfólíp
íðafellingu en þá er olían hituð og
síðan bætt við hana fosfórsýra eða
sítrónusýra sem er blönduð mjög
vel við olíuna áður en vatni er
bætt við til að fella út fosfólípíð
in. Fosfórinnihald er mælikvarði á
magn fosfólípíða í olíunni en magn
fosfór í olíunni minnkar við fos
fólípíðafellingu með vatni og enn
meira við sýrumeðferð.
Fosfólípíðafelling er mjög ein
föld vinnsluaðferð og krefst ein
göngu tanks þar sem hægt er að
hræra vatni saman við olíuna (og
sýru ef þess er óskað en þá er olían
einnig venjulega hituð) og síðan
er hægt að fleyta olíunni ofan af
gúmmíkennda hlutanum eða sía
hann frá. Venjulega er olían þó skilin
frá í skilvindu. Nota má sama tækja
búnað og notaður er við bleikingu.
Gúmmíkennda afurðin sem eftir
verður þegar olían er skilin frá er
að langmestu leyti fosfólípíð og er
þetta því aðferð sem er notuð til að
vinna og framleiða fosfólípíð sem
jafnan eru kölluð lesitín vegna þess
að fosfatitílchólín er í langmestu
magni fosfólípíða en það fosfólíp
íð er einnig kallað lesitín og hefur
það fest sem samheiti fosfólípíða úr
plöntufræjum.
Í hratinu eftir að olían hefur verið
pressuð úr þeim verður eftir tölu
vert af frumuhimnum og þar með
fosfólípíðum.
Samsetning hratsins fer mjög
eftir því hvernig pressað er og hvort
hitað sé við pressun t.d. má pressa
meiri olíu í upphitaðri skrúfupressu
heldur en í lítilli framleiðslu pressu.
Almennt er þó miðað við um 87%
þurrefni þar sem að prótein geta
verið 1220% og fita 1325% en
mest af þeirri fitu eru fosfólípíð,
afgangurinn er svo mismunandi
gerðir af trefjum sem geta verið
bæði meltanlegar og ómeltanlegar.
Fitan í hratinu er almennt dregin út
með leysum eins og eter sem hefur
mjög lágt suðumark og er því auvelt
að eima frá fitunni. Besti leysir fyrir
fosfólípíð er hexan en það verða ætíð
leifar af hexan í afurðinni sem er
mjög óæskilegt í hágæða snyrtivörur
eða matvæli, auk þess sem hexan er
ekki talið mjög umhverfisvænt. Eter
er hinsvegar vandmeðfarinn vegna
sprengihættu. Fosfólípíðin eru síðan
dregin út með vatni eins og gert er
með fosfólípíðafellingu á olíunni.
Þróaðar hafa verið mjög sérhæfðar
Bleikileir (Bleaching earth).
Repjuolía fyrir og eftir bleikingu.
Klórófíll í olíu fyrir (R.O) og eftir (B.O)
bleikingu.
Repjufræ pressuð.Repjufræ tilbúin til vinnslu.
Gúmmíkennd fosfólípíð í olíu.
Fosfór í hrárri olíu og eftir fosfólípíða
fellingu með vatni (W.D.) og sýru
(A.D.)
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
– Framhald á næstu síðu.