Bændablaðið - 14.01.2021, Qupperneq 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 2021 45
Búvörudeild SS tekur fjölmörg
heysýni ár hvert. Nú í haust voru
tekin yfir 100 sýni víðsvegar af
landinu en þó mest á Suður- og
Vesturlandi. Fróðlegt er að skoða
þennan samanburð milli ára,
en hafa verður í huga að þessir
heysýnaútreikningar eru gerðir
á forsendum Búvörudeildar SS
sem er einn stærst söluaðili á
áburði á Íslandi.
Við upphaf sprettutíðar var
kalt og þurrt sem seinkaði fyrri
slætti um viku til tíu daga á Suður-
og Vesturlandi. Á Norður- og
Austurlandi fengu menn gott vor
eftir erfiðan vetur. Snjó tók seint
upp og lentu margir bændur í
gríðarlega miklum kalskemmdum.
Orka og prótein
Ef skoðuð eru meðaltöl fyrir
fyrri slátt þá er orkan 0,87 FEm
á árinu 2020 var heldur lægra
en 2019. Próteinið er hins vegar
hærra í heyjunum þetta árið eða
145 g/kg. Mikilvægt er að skoða
kjarnfóðurgjöf með hliðsjón af
niðurstöðum heysýna.
Stein- og snefilefni
Steinefnainnihald var heldur betra
2020 en í 2019. Ef meðaltöl hey-
sýna eru skoðuð fyrir uppskeru úr
fyrri slætti þá eru bara kalsíum (Ca)
og natríum (Na) undir viðmiðunar-
mörkum. Gríðarleg hækkun er á
fosfór (P) milli ára en í fyrra var
meðaltal fosfórs 2,4 g/kg en er nú
3,1 g/kg. Allt bendir til þess að
aukin kölkun hafi skilað sér í betra
steinefnainnihaldi gróffóðurs.
• Ef fosfór er undir viðmiðunar-
mörkum þá er mikilvægt að
skoða hlutina í samhengi,
hversu mikill fosfór hefur
verið borinn á og hver er
kalsíumstaðan.
• Mikilvægt er að sýrustig
jarðvegs sé rétt því fosfórinn
bindst auðveldlega jarðvegi
við lágt sýrustig.
• 49% sýna eru undir við-
miðunarmörkum fyrir fosfór.
Mikilvægt er því að taka jarð-
vegssýni og skoða áburðar-
gjöfina.
• 80 % sýnanna eru undir
viðmiðunarmörkum fyrir
kalsíum (Ca).
• Mikilvægt er að bændur
hugi vel að kölkun túna
sérstaklega ef kalsíum (Ca)
er lágt í gróffóðrinu.
• Góðir kalkgjafar sem
Sláturfélag Suðurlands er að
selja eru Dolomit-Mg kalk og
kalksalpeter.
Tímabært að gera
áburðaráætlanir fyrir
komandi sumar
Nú er rétti tíminn til að huga að
áburðaráætlun og gera plön fyrir
komandi sumar. Mikilvægt er að
hafa hey-, jarðvegs- og skítasýni
til þess að áætlunin verði sem
nákvæmust. Auk þess eru bændur
hvattir til að vigta heyrúllurnar.
Ef rúllurnar eru vigtaðar og fyrir
liggja heysýni þá er m.a. hægt að:
• Reikna út hve margar fóður-
einingar fengust af hverjum ha.
• Reikna út hve mörg kg þurr-
efnis fengust af hverjum ha.
Gróffóðuröflun er einn stærsti
kostnaðarliðurinn í landbúnaði.
Það er því gríðarleg hagræðing
að fá sem mest fóður í magni og
gæðum af hverjum ha.
Hægt er að sjá niðurstöður
heysýna 2020 í heild sinni inni á
https://www.yara.is/.
Á FAGLEGUM NÓTUM
0
1
2
3
4
5
6
0 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100
Fo
sf
ór
, g
/k
g þ
e
Þurrefni, %
Fosfór
Allar mælingar Káranes Brúsastaðir Stærri-Árskógur Hánefsstaðir Brekkur 1 Bræðratunga
Tafla 1. Fyrri sláttur - Helstu meðaltals niðurstöður heysýna frá 2017-2020 - Rauðu tölurnar eru undir viðmiðunarmörkum
Fyrri sláttur Þe. FEm NDF Protein AAT PBV Sykur P K Ca Mg S Na Se
Ár % kg þe g/kg g/kg g/kg g/klg g/klg g/klg g/klg g/klg g/klg µg/kg
Æskileg gildi: 32-45 0,8-0,9 450-520 140-180 80-90 1 40-80 3,0-4,0 18-28 4,0-6,0 2,0-3,0 2,0-4,0 2,0-3,0 250-600
Meðalt. 2020 47,5 0,87 521 145 88 -7,6 60 3,1 20,8 3,6 2,2 2,2 1,6 253
Meðalt. 2019 52,6 0,89 488 138 86 -10,8 79 2,4 17,1 3,7 2 2 1,4 173
Meðalt. 2018 41,6 0,88 506 150 89 -4 65 3,3 18 3,6 2,2 2,4 1,3 197
Meðalt. 2017 46,3 0,87 507 152 88 0 68 3 18,6 3,4 2,2 2,2 1,4 269
0,0
2,0
4,0
6,0
8,0
10,0
0 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100
Ka
lsí
um
, g
/k
g þ
e
Þurrefni, %
Kalsíum
Allar mælingar Káranes Brúsastaðir Stærri-Árskógur Hánefsstaðir Brekkur 1 Bræðratunga
Niðurstöður heysýna Búvörudeildar SS fyrir árið 2020:
Orkugildi lækkaði milli ára en próteininnihald jókst
Mynd 1: Y-ásinn er fosfór (P), g/kg og X-ásinn er Þe%. – Viðmið fyrir fosfór (P)
er 3-4 g/kg, svörtu brotalínurnar sýna neðri og efri mörk. – Bláu punktarnir eru
öll heysýnin úr fyrri slætti. Hinir punktarnir eru keppendur í Gróffóðurkeppni
Yara.
Mynd 2: Y-ásinn er kalsíum (Ca), g/kg og X-ásinn er Þe%. – Viðmið fyrir
kalsíum (Ca) 4-6 g/kg, svörtu brotalínurnar sýna neðri og efri mörk. – Bláu
punktarnir eru öll heysýnin úr fyrri slætti. Hinir punktarnir eru keppendur í
Gróffóðurkeppni Yara.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga óskar eftir að leigja vönduð sumarhús eða orlofsíbúðir
fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði víðs vegar um landið og erlendis. Eignirnar
þurfa að vera snyrtilegar, fullbúnar húsgögnum og öðrum viðeigandi búnaði.
Átt þú orlofseign sem þú vilt leigja?
Áhugasamir sendi upplýsingar á hjukrun@hjukrun.is
eða hafi samband við skrifstofu í síma 540 6400.